01.03.1951
Efri deild: 79. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 725 í B-deild Alþingistíðinda. (1662)
193. mál, verðlag og dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Viðskmrh. (Björn Ólafsson):
Herra forseti. Ég verð að segja það, að mér er alveg ókunnugt um þessi viðskipti, sem hv. þm. Barð. var að tala um, og satt að segja kemur mér það ókunnuglega fyrir sjónir, hvernig þau hafa getað gerzt.
Það hefur undanfarið verið unnið að því að gera viðskiptasamninga við Danmörku, sem þó er ekki á þessu stigi málsins hægt að segja um, hvort takast, en ef þeir verða gerðir, þá skuldbinda þeir okkur ekki á neinn hátt til þess að hafa meiri viðskipti við þá en okkur gott þykir. En mér þætti gott að fá nánari upplýsingar um þessi viðskipti hjá hv. þm. Barð. Og ég sé ekki, á hvern hátt það getur verið óheppilegt fyrir Íslendinga, að Danir kaupi af þeim vörur fyrir hagstætt verð, þó að við kaupum meira af þeim en þeir af okkur. Og ég vil upplýsa í sambandi við þetta mál, að markmið Greiðslubandalags Evrópu er, að við getum selt vörur í því landi, þar sem bezt verð er að fá fyrir þær, en svo getum við farið með þann gjaldeyri og keypt fyrir hann vörur, þar sem verðið er hagkvæmast. Þess vegna geta viðskiptin orðið hagstæð, þótt ekki fáist greiðslujöfnuður við hvert einstakt land.