02.03.1951
Efri deild: 81. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 741 í B-deild Alþingistíðinda. (1686)
193. mál, verðlag og dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna
Páll Zóphóníasson:
Herra forseti. Mig langar til að fá upplýsingar um tvö atriði. — Fyrra atriðið er það, að með 3. gr. þessa frv. er afnuminn tekjustofn fyrir ríkið, sem nemur á aðra millj. kr. Nú hefði ég haldið, að ríkinu veitti ekki af sínum tekjum, og vildi ég gjarnan fá að heyra, á hverju það er byggt, að ríkið geti fleygt frá sér einum af hinum réttlátari tekjustofnum sínum. — Hitt atriðið er það, að við höfum áður hér í deildinni fellt till. þess efnis að afnema þessa tolla. Nú upplýsir hæstv. forseti, að ef brtt. hv. 1. landsk. verði felld eða samþ., þá geti hann ekki tekið aftur fyrir hér á fundi frv. um sama efni. En hér hefur veríð greitt atkv. um 3. gr. þessa frv. og þingið fellt að afnema þessa skatta. (Forseti: Hvar fór sú atkvgr. fram?) Hér á Alþingi. (GJ: Um brtt. á þskj. 405, forseti.)