03.03.1951
Neðri deild: 78. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 743 í B-deild Alþingistíðinda. (1691)

193. mál, verðlag og dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Stefán Jóh. Stefánsson:

Herra forseti. Eins og fram kom í ræðulok hjá hæstv. viðskmrh., er það ætlun hæstv. ríkisstj. að fá þetta frv. gert að lögum hið bráðasta, og ég geri ráð fyrir, að hæstv. ríkisstj. hafi að baki sér þann flokk manna, sem þegar hefur afráðið um afdrif þessa máls. Ég vil þó ekki láta þessar umræður liða svo, að segja ekki nokkur orð um frv. þetta.

Það er eitt atriði í frv., sem ég tel varhugavert og beinlínis hættulegt. Það má segja, eins og sagt hefur verið á gömlu þingmannamáli, að frv. þetta sé bandormur eða höggormur. Hér er safnað saman í eitt og sama frv. ákvæðum um þrjú óskyld efni. Það varð allfrægt, þegar þetta var tekið upp, og ég tel óheppilegt að halda áfram á þessari braut og Alþingi ekki til sæmdar að setja ein og sömu lög um óskyld atriði. Ég hefði fyrir mitt leyti, eins og hv. þm. Barð., kosið, að þetta væru a.m.k. tvö frv., ef ekki þrjú.

Ég sagði áðan, og ég mun miða þessi orð við það, að ég tel varhugaverðan og hættulegan þann anda og ætlun, sem býr á bak við ákvæði 1. gr. hjá hæstv. ríkisstj., þar sem gert er ráð fyrir, að það sé að vild fjárhagsráðs, hvort nokkurt verðlagseftirlit verður haft. Lögin um fjárhagsráð voru byggð á því, og verðlagseftirlitið þótti einmitt nauðsynlegt á þeim tímum, þegar lögin voru sett, og ekki hafa tímarnir farið batnandi síðan, og er hin fyllsta þörf á að hafa hemil á verðlagi í landinu, ef allt á ekki um koll að keyra í vaxandi dýrtíð. Og ég veit ekki betur en yfirleitt allar þjóðir telji sér nú hina mestu nauðsyn á að hafa sem strangast verðlagseftirlit. Í Bandaríkjunum, sem eru vagga liberalismans, eru nú sett hin ströngustu fyrirmæli um verðlag. Það mun vera algert einsdæmi, að hér á Íslandi á að veita ríkisstj. heimild til að afnema allt verðlagseftirlit. Ég tel, að það, sem felst á bak við 1. gr. frv., sé að draga úr og síðan að afnema allt verðlagseftirlit, og ég byggi þetta á þeirri staðreynd, sem upplýst hefur verið, að þær vörur, sem flytja á til landsins fyrir bátaútvegsgjaldeyrinn, eigi að vera undanþegnar öllu verðlagseftirliti. — Hæstv. viðskmrh. lýsti því yfir í eldhúsdagsumræðunum, að veitt yrði enn þá meiri frjáls innflutningur, og hann taldi upp í ræðu sinni marga vöruflokka, sem setja ætti á frílista, og skýrsla yrði gefin um það á Alþingi. Þá spurði ég hæstv. ríkisstj., hvort meiningin væri að afnema verðlagseftirlitið einnig. Þá fékk ég ekkert svar, en ég tók eftir því í eldhúsdagsræðu hjá hæstv. fjmrh., að hinn mikli innflutningur ætti að hans áliti að gera það að verkum, að það þyrfti ekkert verðlagseftirlit, því að hin frjálsa samkeppni mundi sjá fyrir því, þar sem vöruframboðið yrði nóg. Ég skal ekki segja, hvort hin frjálsa samkeppni sé orðin eitt helzta stefnumál Framsfl. og sé nú talin allra meina bót. En haldið hef ég, að framsóknarmenn hafi stundum hampað öðru en þessu. Mig uggir, að í skjóli þeirra vara, sem fluttar verða inn fyrir bátagjaldeyrinn og full heimild er til að leggja á, — að í skjóli þessara vara með hina háu álagningu geti líka svo farið, að verð verði hækkað á öðrum vörum, er til landsins flytjast. Það var a.m.k. álit hinna ágætu hagfræðinga hér í fyrra, að einmitt í skjóli hins frjálsa gjaldeyris mundi verðlag hækka á öðrum vörum. Ég er því algerlega andvígur hugsuninni í 1. gr. frv. og þeirri stefnu að fella niður allar opinberar hömlur á verðlagi. Mig uggir, að þessi stefna muni leiða til hækkunar á vöruverði í landinu. Það er meira að segja nauðsyn að herða nú á verðlagseftirlitinu, en draga ekki úr því, og það er einmitt hin ríkjandi stefna meðal flestra þjóða nú á dögum.

Um bráðabirgðaákvæði 2. gr. frv. þarf ekki að segja margt. Það bjuggust margir við því, að svo mundi fara, að ríkisstj. léti sér ekki nægja þau framlög, sem veitt eru í sambandi við Marshalláætlunina, til að flytja inn vörur til landsins. Þess vegna leitar hún eftir heimild til að mega nota yfirdráttinn gegn loforði um að skila upphæðinni aftur á yfirdráttarreikninginn. Hæstv. viðskmrh. lét þau orð falla hér áðan, að þetta væri ekki venjulegt lán, heldur aðeins yfirdráttur á reikningi. Ég hef nú talið, að eins og yfirdráttur á hlaupareikningi er í raun og veru lán, þá mætti ekki síður kalla þetta lán, þar sem ríkisstj. dregur á reikning þessa upphæð og ætlar svo að borga þetta síðar, — eins og um öll önnur lán. Þetta er alveg skýrt. Ég vildi benda á þetta, að svo fór, sem okkur uggði, að það fé, sem ekki þarf að endurgreiða, mundi ekki hrökkva til, og því þyrfti að taka gjaldeyrislán. Og þetta lán er til skamms tíma og á að greiðast upp innan 3 ára. Að vísu á að vera til jafnvirði þessa yfirdráttar í íslenzkri mynt, miðað við það, þegar lánið er tekið. Þróunin hefur verið sú, að það var um að ræða frekari gengislækkun, og eins og hv. 3. landsk. þm. hefur haldið fram, var það hin eina rökrétta leið, sem ríkisstj. gat farið og mörkuð var með gengislækkunarlögunum fyrir ári síðan, þótt menn vonuðu, að ekki þyrfti að lækka gengi krónunnar enn á ný.

Þá vildi ég segja þetta út af 3. gr. frv., að ég er því sammála, að afnema beri bifreiðaskattinn. Sterkustu rökin fyrir því eru einmitt þau, að nú er verið að leggja á bifreiðaeigendur þyngri álögur en áður með því að flytja inn varahluti í bifreiðar á bátagjaldeyrinum og leggja þar með á þá hluti 50–60%.

Þessar almennu athugasemdir vildi ég láta falla, þótt ég gangi að því sem gefnu, að flokkar hæstv. ríkisstj. muni gera þetta frv. nú að lögum. En það er þá algerlega á þeirra ábyrgð, og afleiðingar þess munu seinna verða teknar til athugunar.