16.02.1951
Neðri deild: 70. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 786 í B-deild Alþingistíðinda. (1771)
176. mál, lántaka handa ríkissjóði
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég hafði í fyrri ræðu minni um þetta mál gert nokkrar fyrirspurnir til hæstv. fjmrh., og hann hefur nú í ræðu sinni svarað nokkrum þeirra, en þó ekki nema hluta af þeim. Ef hann gæti nú verið hér viðstaddur, vildi ég árétta nokkuð spurningar mínar, því að það væri mjög æskilegt, ef þetta frv. á að fá skjóta afgreiðslu í nefnd, að málið lægi ljósar fyrir í heild, hver væri raunverulegur tilgangur ríkisstj. með frv. og að hve miklu leyti þær aths., sem hér hafa komið fram við það, væru á rökum reistar. Hæstv. fjmrh. ræddi nokkuð mikið, eins og oft áður, um lánsfjárþenslu og verðbólgu í sambandi við þetta frv. Þó talaði hann ekki eins skorinort um þau mál og oft áður, og það var eins og hann hefði hugboð um, að með ráðstöfunum sínum og hæstv. ríkisstj. væri nú verið að sigla nokkuð nærri þeim skerjum, sem hann og hans flokkur hafa sífellt varað þjóðina við að undanförnu. Með því sé hann nú að draga þjóðina fram fyrir þann draug, sem hann hefur áður vakið upp og reynt að særa fyrir þjóðinni. Það er rétt að geta þess strax, að þegar rætt er um þessi mál, þá verðum við að minnast þess, án þess þó að gera lítið úr nauðsyn þess að forðast lánsfjárþensluna og verðbólguna, að þær eru ekki það versta, sem komið getur fyrir þjóðina. Ef ómögulegt er að bæta úr neyð fólksins, koma í veg fyrir atvinnuleysi eða minnkun framleiðslunnar, án þess að komi til verðbólgu og lánsfjárþenslu, þá er ekki ástæða til að óttast tilkomu þeirra. Því er rétt að ræða ekki um þær einvörðungu frá því sjónarmiði, hvaða illar afleiðingar þær hafi í för með sér. Við verðum ætíð að hafa það fyrir auga, að takmarkið er að bæta úr þörfum fólksins, sjá því fyrir atvinnu, fæðu og klæðnaði, og þessar þarfir verða því að ganga fyrir öllu öðru, og ef engin leið er til þess að ná þessu takmarki öðruvísi en stofna til aukinnar verðbólgu og lánsfjárþenslu, þá verður að berjast áfram á þann hátt. Ef um velferð manna annars vegar og gildi peninganna hins vegar er að ræða, þá verða peningarnir að víkja. Þetta vil ég leggja áherzlu á, því að þetta eru þær forsendur, sem ég byggi mín rök á í þessu máli.
Hæstv. fjmrh. sagði, að lánsfjárþenslan væri nú svo mikil í landinu, að það væri ekki á hana bætandi. Í grg. fyrir frv. stendur, með leyfi hæstv. forseta: „Það væri mikið áfall fyrir þjóðina, ef nú þyrfti að minnka lánveitingar til slíkra framkvæmda í landbúnaðinum og þar með draga stórkostlega úr þeim.“ — Með öðrum orðum: Ráðh. heldur því fram, að lánsfjárþenslan sé nú þannig, að ekki sé á hana bætandi, en um leið segir hann, að það mundi vera mikið áfall fyrir þjóðina, ef landbúnaðurinn fengi ekki 15 millj. kr. til framkvæmda. Síðan segir hæstv. ráðh., að fjárfestingin hafi verið svo mikil síðustu ár, að hún geti ekki aukizt, en þó yrði landbúnaðurinn að fá þessar 15 millj. til framkvæmda. M.ö.o.: Það á að draga úr fjárfestingunni í öðrum atvinnugreinum. En hann hefur ekki upplýst það hér, hvar eigi að draga úr. Hins vegar heyrðum við það frá öðrum ráðh., hæstv. landbrh., að það ætti að auka fjárfestinguna á næsta ári, og heyrðist mér hann tala um það með kvíða, að áætlað væri, að hún yrði um 520 millj. á þessu ári. Ég vil nú spyrja hæstv. fjmrh.: Ef hann álítur fjárfestinguna hafa verið of mikla, hvað hefur hann þá gert til þess að minnka hana? Hvar á að draga úr henni, svo að skapist bil fyrir fyrirhugaða fjárfestingu í landbúnaðinum? Mér virðist því, að hæstv. ráðh. komist í algera mótsögn við sjálfan sig, er hann segir í öðru orðinu, að fjárfestingin sé of mikil og lánsfjárþensla og verðbólga megi ekki aukast, en í hinu að það sé voðalegt áfall fyrir þjóðina, ef framkvæmdir í landbúnaðinum verði minnkaðar, — sem ég viðurkenni að er alveg satt. Og hann kemst í þessa mótsögn vegna þess, að landbúnaðurinn kemur við hjartað í honum. Ef til vill er það þó ekki landbúnaðurinn sjálfur, sem hann ber svo mikla ást til, heldur er þarna máske um að ræða umhyggju fyrir velferð hans flokks. Skoðun hæstv. ráðh. er með öðrum orðum: Þó að lánsfjárþenslan sé þegar of mikil, þá væri það mikið áfall fyrir þjóðina, ef hætt yrði við að taka erlent lán til landbúnaðarins. Það kemur þá af því, sem ég sagði áðan, að það eru fleiri hlutir en lánsfjárþenslan, sem taka verður tillit til, er rætt er um mál sem þessi. Og úr því að ráðh. viðurkennir nauðsyn þess að brjóta í bága við lögmálið um sem minnsta lánsfjárþenslu, þegar landbúnaðurinn á í hlut, þá ætti hann líka að koma auga á hana í sambandi við sjávarútveginn og iðnaðinn, þegar um er að ræða nákvæmlega sömu þörf hjá þessum atvinnuvegum fyrir lánsfé. M.ö.o.: Ef þjóðin hefur einhvern möguleika á því, þá ræðst hún í meiri framkvæmdir á öllum sviðum atvinnulífsins en hún hefur efni á, enda þótt það brjóti í bága við lögmálið um lánsfjárþensluna. Ég vildi benda á þetta, að það, sem ráðh. sagði í ræðu sinni, stangast mjög á við það, sem stendur í grg. En svo kom hann að seðlaveltu Landshankans og sagði, að ríkisstj. teldi ekki fært að auka hana. Nú vildi ég spyrja hæstv. ráðh.: Ef tekið verður 15 millj. kr. lán og Landsbankinn látinn hafa það gegn því, að hann greiði Búnaðarbankanum 15 millj. kr. í íslenzkum seðlum, hvað á landsbankastjórnin þá að gera? Á hún að draga inn lánsfé frá öðrum atvinnugreinum, svo að landbúnaðurinn geti fengið þessar 15 millj. til sinna þarfa? Það eru stór fyrirtæki hér í Reykjavík, sem eru að stöðvast núna þessa dagana vegna lánsfjárskorts, og þau fá ekki einu sinni lán til þess að halda uppi eðlilegri starfsemi. Nú vildi ég spyrja hæstv. ráðh.: Er meiningin að taka þessar 45 millj. kr. úr veltunni frá sjávarútveginum og iðnaðinum og lána þær til landbúnaðarins? Ef svo er, þá eigum við kröfu á að fá upplýsingar um það nú, hvar eigi að draga úr lánastarfseminni og hvort meiningin sé að loka mörgum fyrirtækjum hér í bænum. Og ég trúi ekki, að það sé meining hæstv. ríkisstj., heldur mun fyrirætlunin sú, að auka lánveitingar sem nemur þessum 15 millj. króna. Hæstv. ráðh. segir svo, að nú sé svo komið, að það sé ekki fært að auka seðlaveltuna, nema erlent fé komi á móti. Nú sé ég ekki betur en það komi alveg í sama stað niður hvað lánsfjárþensluna snertir, hvort erlent fé er fengið til að standa á bak við aukningu seðlaveltunnar eða. ekki. Það er hægt að gera ýmislegt við þessar 15 millj. af erlendum gjaldeyri, t.d. láta þær liggja erlendis. Ég held því, að það verði ekki komizt hjá því að álíta, að hæstv. ráðh. sé þarna kominn í algera mótsögn við sjálfan sig viðvíkjandi kenningum sínum um lánsfjárþenslu og verðbólgu, og hann komst í þessa mótsögn vegna ástar sinnar á landbúnaðinum. Og því er þessi afstaða hans máske skiljanleg, því að það er einmitt baráttan fyrir því að geta aukið auðsköpun okkar þjóðar, barátta, sem hefur haft einn tiltölulega smáan galla samanborið víð kostina, sem sé þann, að auka verðbólgu og lánsfjárþenslu. Ég held því, að ráðh. verði að gera það upp við sig, hvaða fjármálapólitík hann ætlast til að verði rekin. Það er enginn efi á því, að íslenzku atvinnuvegirnir þurfa meira lánsfé en þeir hafa nú fengið að undanförnu, og íslenzku þjóðinni er það nauðsynlegt, að gerðar verði tafarlausar ráðstafanir til þess að auka lánveitingarnar. Það er ekki hægt að breyta út frá tveim sjónarmiðum í því sambandi, og við verðum að gera það upp við okkur, hvaða stefnu við ætlum að taka. Hæstv. ráðh. segir, að bað sé í lagi að taka erlent lán og auka með því lánsfjárþensluna hér heima. Ég vil vekja athygli hans á því í þessu sambandi, að þegar hann gengur út frá réttmæti þess, þá gerir hann það út frá lögum Landsbankans, sem kveða svo á, að það megi því aðeins gefa út seðla, að þeir séu tryggðir með gulli eða verðbréfum. Mér virðist það undarlegt, ef fara á að auka við seðlaveltuna hér heima, að þá verði gengið út frá þessari reglu. Það er alveg öfug regla við þá, sem gengið hefur verið út frá hingað til á Íslandi. Þegar landsbankalögin voru sett og ákvæði um það, að seðlarnir skyldu vera tryggðir í erlendum gjaldeyri og gulli, þá var gengið út frá frjálsum alþjóðaviðskiptum. Það var gengið út frá því, að íslenzka myntin væri gjaldgeng í öðrum löndum og seljanleg á frjálsum heimsmarkaði. Lögin voru ekki miðuð við krepputíma eða ætlað að gilda á þeim tímum, er við girtum okkar land af. Þetta er ástand, sem hér hefur ekki ríkt í ein 17 ár og aldrei verið um þessa hluti þráttað. Íslenzkir seðlar hafa ekki verið seljanlegir erlendis, og landsbankinn getur ekki staðið við skuldbindingar sínar hvað þetta snertir. Ef við eigum að fara að taka upp það hagkerfi aftur og að það sé út frá því, sem ráðh. segir óhjákvæmilegt að taka erlent lán, þá þýðir það, að við verðum að láta lögmál þess ráða á öllum sviðum. Það verður þá að leyfa framboði og eftirspurn að njóta sín og treysta síðan á lögmál þess kerfis til að regúlera efnahagslífið. Eðlileg afleiðing af því yrði afnám allra hafta í viðskiptalífinu og sköpun frjáls markaðar hér heima. Það er ekki hægt að ganga út frá þessu hagkerfi í dag, en hafa svo annað á morgun. Það er ekki hægt að samþ. eitt frv. með tilliti til þessa og þessa ástands og svo annað með tilliti til hins öfuga. Það væri að sleppa því kontróli, sem ráðh. vill hafa á öðrum sviðum, og kemur sú stefna hans m.a. fram í afstöðu hans til þess, hvort menn eiga að hafa frelsi til að byggja eða ekki. Ég held því, að ef við verðum að ganga út frá þessu lögmáli í dag, þá getum við ekki fylgt öðru á morgun, því að þá fer allt út í vitleysu. Við höfum undanfarin ár verið að reyna að byggja upp eins konar áætlunarbúskap. 1. liður í 2. gr. laganna um fjárhagsráð átti að tryggja það, að allir skyldu hafa nóga vinnu og öll framleiðslutæki hagnýtt til fullnustu. Ef þessi lög eru lögð til grundvallar, þá er ekki hægt að miða við það hagkerfi, sem landsbankalögin voru grundvölluð á. Allar hugmyndir í áætlunarkerfinu um það, að bjóðin tæki sjálf valdið af þeim, sem réðu framboðinu og eftirspurninni, þýddu að miða við hið mannlega í þessu efni. En þetta kerfi krafðist allsherjar kontróls á efnahagslífinu. Og það, sem hefur gerzt núna, er það, að ríkisstj. hefur horfið burt frá því að hagnýta þetta vald til að skipuleggja þjóðfélagið, til að tryggja, að allir hefðu vinnu og öll framleiðsluöfl væru nýtt til fullnustu. Í stað þess hefur hún horfið að því að skinuleggja atvinnuleysi undir því yfirskini, að ef allir hefðu fulla vinnu, þá komi til aukinnar verðbólgu og lánsfjárþenslu. Einmitt eftir að mér varð ljóst, að þessu valdi var beitt af hálfu ríkisstj., þá get ég sagt fyrir mitt leyti, að það er betra að afnema þetta kerfi en sjá hugsjónina notaða til að skipuleggja neyð hjá þjóðinni.
Það er betra að sjá þetta kerfi afnumið en misnotað svona. Þá er betra að fá allan þann glundroða og þær kreppur, sem fylgja því hagkerfi, sem ég var að lýsa. Það gefur bændum, sjómönnum og verkamönnum tækifæri að berjast innan þessa kerfis og hagnýta þannig fjármagnið til góðs. Hins vegar stendur fólk alveg varnarlaust, ef valdið er í höndum ríkisstj. Ef horfið er frá því að miða við þjóðarþörf og þau lög, sem Landsbanki Íslands byggist á, er ekki nema eðlilegt, að krafa um erlent lánsfé verði gerð af fleirum en hér eiga í hlut. Það getur ekki átt að fara eftir því. hvað pólitísku valdi á Alþingi þóknast að leyfa. Það er ekki sanngjarnt að veita einni stétt lán á sama tíma og aðrar stéttir, t.d. verkamenn, þurfa á nauðsynlegum lánum að halda. Ríkisstj. getur sett takmarkanir á öðrum sviðum, en ef hér á að takmarka við það, að hlutirnir séu arðbærir, getur stór hluti þjóðarinnar heimtað lán. Hins vegar vil ég segja, að ég álít heppilegt, ef hægt er að hafa skinulagt samstarf um þetta.
Hvað viðvíkur þessu láni til landbúnaðarins verð ég að segja, að ég er óhræddur við að taka það lán, ef samtímis því fylgdi stærra lán til aukninga á framleiðslunni. Íslenzka þjóðin getur hagnýtt meira lánsfé og skapað meira en hún gerir. En hún þarf að gera stór átök, ef hún ætlar að tryggja, að staðið sé í skilum á þeim lánum, sem eru fengin. Ef tekið er lán til landbúnaðarins, verður að hugsa um leið um aðrar framleiðslugreinar, sem geta aukið og útvegað gjaldeyri. Ég hef komið inn á þetta áður, og eins og ég benti á, þá er til annar stór möguleiki. Hv. þm. Borgf. hélt hér — víst í gær — fagra ræðu um landbúnaðinn og var að verja frv. með því að segja, að við Íslendingar ættum ekki um nema tvo kosti að velja, eins og nú er komið með togarana, sem er rányrkja og eru að þurrausa okkar mið: 1) að flýja til landbúnaðarins, 2) að flýja af landi burt. — Lýsti hv. þm. trú sinni á landbúnaðinum með fögrum orðum. Ég vil leyfa mér að koma með aths. Ég er sannfærður um, að íslenzkur landbúnaður á sér mjög mikla framtíð, og er viss um, að við eigum eftir að margfalda landbúnaðarframleiðsluna og gera hana fjölbreyttari en hún er nú, og við eigum eftir að rækta öll héruð landsins. Það er ekki nokkur efi á, að landið bíður okkar vitsmuna til að hagnýta auðlindir þess. En ef allir bæir í sveitum tækju að rækta allt það land, sem þeir eiga, og unnið væri að ræktuninni með fullkomnustu vélum, verðum við að gá að því, að afköst fólksins tífaldast og margfaldast frá því, sem nú er. Við skulum gera okkur ljóst, að þótt hundraðfaldist afköstin við landbúnaðinn, er ekki víst, að fjölgi í sveitunum. Kjör þjóðarinnar mundu batna, en fólkinu í sveitunum mundi ekki fjölga, ekki hlutfallslega frá því sem nú er, vegna þess hvað afköstin margfaldast. Þetta þýðir, að við getum ekki flúið til landbúnaðarins. Við getum ekki annað en hagnýtt iðnaðarmöguleikana. Við getum byggt upp stóriðju. Ef unnið er úr Þjórsá einni, þá gefur hún í köfnunarefni meira en allur sjávarútvegur Íslendinga bezta útflutningsárið. Þar eigum við að byggja upp okkar stóriðju. Í fossunum liggur okkar framtíð. Ísland er hentugt til að þar sé sköpuð kemisk stóriðja, ef beitt er hagkvæmum vísindum. Landið er að sumu leyti hart land, þar er lítið af málmum en mikil orka. — Þegar rætt er um lántöku til landbúnaðarins, verður að gera sér ljóst, að það þarf einnig að gera stórkostlega aukningu í raforkumálunum. Hefur verið rætt um að ráðast í svo mikla virkjun í sambandi við áburðarverksmiðju, að þar gæti verið unnið til útflutnings. Við erum langt á eftir í raforkumálum. — Það er kannske rétt að minnast á það, að orkuvinnsla úr vatni nam s.l. ár 170 millj. kílóvattstunda, en úr gufu 18 millj., og var kostnaður álíka hjá báðum. Svo mikið mundi það spara erlendan gjaldeyri, ef við hröðuðum rafvírkjunum. Ég held, að ef við leggjum út á þá hættubraut að taka erlend lán, þá yrðum við að taka þau í stærri stíl og láta það fylgjast að, að þeim yrði varið til gjaldeyrisskapandi fyrirtækja og til að bæta lífskjör fólksins. Hins vegar, ef ekkert kerfi á að vera í afgreiðslu þessa máls, þá verður að segja þeim í fjhn. að finna upp einhverjar aðferðir, sem ekki brjáluðu þetta enn meir.
Ég veit ekki, hvað yrði um það, ef þessar 15 millj. kr. verða afhentar Búnaðarbankanum sem gjaldeyrir og honum áskilið að verja þeim eingöngu til að kaupa landbúnaðartæki, og Landsbankanum fyrirskipað að greiða Búnaðarbankanum þessar 15 millj. kr. — Mér finnst, að hæstv. fjmrh. ætti að tala alvarlega um þetta við okkur, en ekki að slá fram neinum „frösum“. Ég býst við, að það sé mikill vilji fyrir hendi á Alþingi til að tryggja landbúnaðinum lánsfé. Ég býst við, að Landsbankanum verði fyrirskipað að greiða Búnaðarbankanum 15 millj. kr., sem Landsbankinn fær í erlendum gjaldeyri. Þess vegna er það rangt, að það sé andúð gegn því að tryggja landbúnaðinum lánsfé. Það er vilji fyrir því að tryggja honum 15 millj. kr. og það er líka vilji fyrir því að tryggja, að menn geti fengið að byggja nauðsynlegar byggingar. En spurningin er, hvort það eigi að taka nokkuð út úr, eða hvort hér skal aðeins veitt lán til einstakra aðila. — Ég hef beðið hæstv. ráðh. að segja, út frá hvaða sjónarmiði endurskoðunin á bankakerfinu færi fram og hverjir hefðu hana með höndum. Það er sagt frá þessari endurskoðun í grg., en Alþingi hefur ekkert fengið um hana að vita. Þegar bankakerfið hefur verið endurskoðað, hefur verið kosin til þess n. og rætt á Alþingi. Er það ekki sízt mikilsvert, þegar fjárhagskerfið er í annarri eins ringulreið og nú og þegar — eins og allir vita — vald Landsbankans er orðið slíkt ríki í ríkinu, að Alþingi hefur orðið að grípa inn í með löggjöf. — Enn fremur vegna þess, að landbrh. sagði, að fjárfestingaráætlunin væri komin og væri 520 millj. kr., óska ég eftir að fá að sjá þessa áætlun, þar sem fjvn. á að taka afstöðu til hennar. Ég vil ekki hvað sízt óska þess vegna þess, að ég álít þessa lánsfjárkreppu skapaða að óþörfu og hana verði að stöðva. — Lánveitingavaldið er gífurlegt vald í lokuðu þjóðfélagi, og er byrjað að misnota það þannig, að fyrirtækjum er lokað og aðrir taka síðan lán hjá bönkunum til þess að kaupa þau. Og þegar það eru einstakir aðilar, sem njóta sérréttinda, er hægt að yfirfæra eignir manna, sem er neitað um lánsfé, til annarra, sem fá lánsfé. Þegar svona mikið vald er sett í hendur eins banka, verður að vera strangt eftirlit með því, og þegar þetta vald er misnotað, eins og nú, verður að knýja fram meira frjálsræði í landinu. — Vona ég, að hæstv. fjmrh. láti fjhn. þessar umbeðnu upplýsingar í té, svo að hægt sé að móta afstöðu n. á sem réttustum grundvelli.