16.02.1951
Neðri deild: 70. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 794 í B-deild Alþingistíðinda. (1773)
176. mál, lántaka handa ríkissjóði
Ásmundur Sigurðsson:
Herra forseti. Ég skal ekki tefja umr. um málið lengi, en ég vil gera dálitla grein fyrir atriði, sem ekki hefur komið hér fram, þrátt fyrir allar þær umræður, sem fram hafa farið um málið.
Ég vil gjarna byrja á að undirstrika það, sem hæstv. ráðh. sagði, að þetta er ekki nema bráðabirgðalán, sem bætir aðeins úr lánsfjárþörf landbúnaðarins í bili. En ég vil gera dálitla grein fyrir, hvers vegna lánsfjárþörf landbúnaðarins er svona mikil, eins og hún er nú. Fyrir 4 árum, eða árið 1946, voru samþykkt lög um landnám og nýbyggingar í sveitum. Frv. til þessara laga var fyrst undirbúið árið 1944, og var þá vísað til nýbyggingarráðs, en varð, eins og áður segir, að lögum árið 1946. Í lögum þessum var gert ráð fyrir, að stofna skyldi nýbyggingarsjóð til byggingar íbúðarhúsa á sveitabæjum og peningshúsa og íbúðarhúsa á nýbýlum, og í þingskjölum frá þessum tíma liggja fyrir nákvæmar áætlanir um sjóðinn, fjárútvegun til hans og áætlun um lánastarfsemi hans næstu 10 ár. Þessi sjóður skyldi upphaflega stofnaður af þeim tiltölulega litlu sjóðum, sem þá voru til, þ.e. byggingarsjóðnum og viðlagasjóðnum. Þetta var mjög lítið fé, eða um 3 millj. kr. Síðan var ákveðið, að ríkissjóður skyldi leggja honum til svo mikið fé við gildistöku laganna, 1. júlí 1947, að stofnsjóðurinn næmi 10 millj. kr. Síðan skyldi stofnféð aukið með 21/2 millj. kr. framlagi á ári. Sjóðurinn mundi því alls vera um 30–40 millj. kr. árið 1950. Nú er það ljóst, að þetta var ekki nægilegt fé til að standa undir þeim byggingarframkvæmdum, sem fyrirhugaðar voru. Þess vegna var ákveðið, að sjóðnum skyldi heimilt að afla fjár með vaxtabréfaútgáfu. Í lögunum stendur, með leyfi forseta: „Byggingarsjóði skal heimilt, ef stofnfé hrekkur ekki til fyrir þeim lánum, sem álitin eru æskileg, að taka lán eða gefa út handhafavaxtabréf, allt að þreföldum stofnsjóði sínum. — Handhafavaxtabréfin skulu tryggð með skuldabréfum lánþega, stofnfé sjóðsins og ábyrgð ríkissjóðs.“
Í áætlun þeirri, sem fyrir liggur um lánastarfsemi sjóðsins, er gert ráð fyrir, að á þessum 10 árum skyldi hann hafa lánað út um 80 millj. kr., og þó ekki notaðir til fulls þeir möguleikar, sem lögin heimila til að afla honum fjár. Einu ári síðar, eða árið 1947, voru samþ. lög um ræktunarsjóð, og var í þeim lögum gert ráð fyrir, að ræktunarsjóðnum skyldi séð fyrir fé á svipaðan hátt, og lána á sama tíma, eftir áætlun hans, um 44 millj. kr. M.ö.o., það er gert ráð fyrir því í þessum lögum, að þessir 2 sjóðir láni til landbúnaðarins 120 millj. kr. á þessu tímabili, og var það miðað við áætlaða lánaþörf, og sú lánaþörf var miðuð við þágildandi verðlag í landinu. Nú vita allir, að verðlag hefur hækkað svo mikið í landinu síðan 1946, að sú áætlun, sem þá var í fullu gildi, er hvergi nærri fullnægjandi nú. Þess vegna liggur það ljóst fyrir, að þó að þessi lög hefðu verið framkvæmd til fulls, þá væru þessar 120 millj. miklu minna fé en þá var áætlað. En það, sem hefur svo ekki verið gert í þessu sambandi, er að reyna að útvega fé með vaxtabréfaútgáfu. Hefði það verið gert eins og l. heimiluðu 4947, þá mundi stofnlánadeild húsbyggingarsjóðs vera það mikil nú, að það hefði ekki verið fyrir hendi sú lánsfjárkreppa, sem nú er fyrir hendi í þessum efnum. Ég ætla að benda á, að þrátt fyrir það, að það hefur ekki verið til meira fé til þess að lána úr þessum sjóði heldur en sá stofnsjóður, sem til var árið 1947, og hið árlega framlag ríkisins, sem hefur komið á hverju ári auk lítils háttar láns, sem Búnaðarbankinn hefur getað útvegað, og svo sá hlutur, sem sjóðurinn fékk af gengishagnaði og áreiðanlega gerir ekki betur en að vega upp á móti því verðlagi, sem hefur hækkað á byggingarvörum við gengisfellinguna, þá er nú þetta svo komið, að þó að þessar 15 millj. komi í sjóðinn, þá mundi það ekki gera betur en að bæta úr brýnustu lánsþörf á þessu ári. En í sambandi við þetta vil ég líka minnast fáeinum orðum á annað atriði, sem einmitt hefur komið inn í þessar umr., og það er fjárfestingin í landinu. Það hefur verið mikið um það talað nú að undanförnu og líka í sambandi við þetta frv., að fjárfestingin í landinu væri of mikil. Hæstv. fjmrh. lagði fyrir fjvn. að draga verulega úr þeim fjárframlögum ríkisins, sem miðuðu að fjárfestingu. Í samræmi við þessa stefnu, sem mjög hefur verið uppi á síðustu árum, þá er það upplýst, að nýbýlastjórn sótti um leyfi til þess að fá að hefja byggingu á 5 nýbýlum, sem búið er að undirbúa og rækta landið fyrir, og henni var neitað um fjárfestingarleyfi. Ég tel, að þetta stangist nokkuð við öll þau orð, sem sögð hafa verið um það, hve mikið þurfi að gera fyrir landbúnaðinn. Ég skal ekki draga úr því, að það sé nauðsynlegt, og ég undirstrika það, að það er nauðsynlegt að efla stórkostlega þetta fé til landbúnaðarins. Það er auðséð, að þær áætlanir, sem fyrir liggja frá 1946, eru ekki fullnægjandi nú, vegna þess hve verðlagið hefur hækkað í landinu á þessum 4 árum síðan. – Í sambandi við þetta vil ég líka minnast á það, að það virðist hafa farið mikið fé í gegnum hendur þjóðarinnar og þeirra ríkisstj., sem ráðið hafa hér í þessi 4 ár frá því 1946. Mér hefur reiknazt það til, að það fé, sem farið hefur í gegnum þeirra hendur til þarfa þjóðarinnar, fjárfestingar og nauðsynlegra framkvæmda, hafi verið á þessum 4 árum ekki langt fyrir neðan 2000 millj. kr. Þegar í fyrsta lagi er talin sú upphæð, sem eftir var um áramót 1946–47, og í öðru lagi, þegar taldar eru útflutningstekjur þjóðarinnar á þessum árum, og í þriðja lagi Marshallhjálpin, þá hygg ég, að það sé nálægt 2000 millj. kr. Þess vegna verður að teljast fullkomin ástæða til að draga þetta fram, til þess að benda á, að það hefði mátt framkvæma ákvæði þessara tveggja l., sem fjalla um að afla þessum sjóði fjár með lántöku innanlands þessi ár, eins og ákveðið var. Og þá væri þessi lánsfjárkreppa landbúnaðarins ekki fyrir hendi í þeim mæli, sem hún nú er.