16.02.1951
Neðri deild: 70. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 796 í B-deild Alþingistíðinda. (1774)
176. mál, lántaka handa ríkissjóði
Gylfi Þ. Gíslason:
Herra forseti. Ég kemst ekki hjá því að segja nokkur orð í tilefni síðustu ræðu hæstv. fjmrh. Hann sagði, að sér fyndist allt tal um verðbólguhættu í sambandi við þessa lántöku vera út í bláinn. Mig undrar, að hæstv. ráðh. skuli taka þannig til orða, því að málið hefur verið þannig lagt fyrir Alþ., að ógerningur er að vita, hvernig tilætlunin er að verja því lánsfé, sem hér um ræðir. Ég sýndi fram á það síðast þegar þetta mál var til umr., að til greina kæmu tveir möguleikar með gerólíkum áhrifum á fjárhagskerfi kostnað, þá hlyti að verða að útvega innlend lán til þess að greiða innlenda kostnaðinn, og afleið hins vegar, að það væri notað til þess að greiða bæði erlendan og innlendan kostnað. Ég sýndi fram á það með rökum, að ef ætlunin væri að nota þetta lán til þess að greiða eingöngu erlendan kostnað, þá hlyti að verða að útvega innlend lán til þess að greiða innlenda kostnaðinn, og afleiðingin hlyti að verða aukin verðbólga í landinu, nema lánveitingar til annarra framkvæmda væru takmarkaðar tilsvarandi. Ef hins vegar væri tilætlunin að greiða bæði erlendan og innlendan kostnað, þá yrði einhver afgangur af gjaldeyri í bönkunum, og ef afleiðingin ætti ekki að verða verðbólga, þá yrði að nota verulegan hluta þess afgangsgjaldeyris til þess að flytja inn neyzluvörur til að mæta þeirri auknu kaupgetu, sem skapast í landinu við framkvæmdirnar. Verði þessi hluti gjaldeyrisins ekki notaður til þess að auka neyzluvöruinnflutninginn, þá hlýzt af því aukin verðbólga. Ég geri ekki þessa aths. vegna þess, að mér ofbjóði upphæðin, sem hér er um að ræða, og ekki vegna þess, að ástæða sé til að óttast stórfelldar afleiðingar af þessum ráðstöfunum, heldur vegna þess „prinsips“, sem hér er fylgt. En það er mjög svo mikilsvert, þótt ekki hafi verið minnzt á það í grg. frv. og ekki heldur af þeim hæstv. ráðh., sem málið hafa flutt.
Með tilliti til þessara staðreynda verð ég að segja, að mér finnst furðulegt, að hæstv. ráðh. skuli segja, að það sé út í bláinn að tala um aukna verðbólguhættu í þessu sambandi og að það sé broslegt. Var það líka broslegt, þegar hann sjálfur gagnrýndi þær tillögur fyrrv. ríkisstj. að nota gengishagnaðinn til lánveitinga? Það var auðvitað broslegt, að ríkisstj. og meiri hl. þingsins skyldi láta sér til hugar koma að gera þessar ráðstafanir, en hæstv. ráðh. samþykkti þær að síðustu. Þá var brosað, og ekki að ástæðulausu. — Nú hefur hæstv. ráðh. upplýst, en þó ekki nægilega skýrt, að mér finnst, að fyrirhugað sé að verja þessu lánsfé til þess að greiða bæði erlendan og innlendan kostnað, en þá er ekki hægt að afstýra því, að nokkur verðbólga hljótist af hinni erlendu lántöku, nema með því að nota verulegan hluta af láninu til innflutnings á neyzluvörum. Þá yrði hér sumpart um neyzluvörulán að ræða. Hæstv. ráðh. fór í kringum þetta eins og heitan graut. En ég get ekki skilið, af hverju hæstv. ráðh. víkur ekki sérstaklega að þessu, en honum er það ljóst eins og mér, að mjög margir misskilja þetta atriði, og ákveðnir stuðningsmenn hans, t.d. hv. þm. Borgf., sem talaði þegar málið var síðast á dagskrá, telja, að þetta fé eigi að nota til þess eins að greiða erlendan kostnað við framkvæmdirnar, þ.e.a.s., að hægt sé að auka fjárfestinguna svo mikið sem svarar 15 millj. kr. í erlendum kostnaði. Hæstv. ráðh. sagði hins vegar, að heildarverð framkvæmdanna eigi ekki að fara fram úr 15 millj. kr. — En það hefur ekki verið látið koma greinilega fram af hæstv. ríkisstj., að með því móti verður hluti af láninu að vera neyzluvörulán, og þá er spurningin þessi: Er undir núverandi kringumstæðum rétt að taka erlent lán til fjárfestingar, þegar ástandið er þannig í fjárhagsmálum landsins, að lánið verður sumpart að vera neyzluvörulán, ef það á ekki að vera verðbólguaukandi? Það er kjarni málsins, sem hér er um að ræða. Ég tel, að miðað við ríkjandi ástand, sé ekki rétt að taka þetta lán vegna þess, að hluti af því hlýtur að verða neyzluvörulán.
Mér koma skoðanir hæstv. ráðh. á þessu máli á óvart. Þær eru í ósamræmi við fyrri skoðanir hans á svipuðum málum. Hann hefur einna gleggst og eindregnast varað við erlendri lántöku, að svo miklu leyti, sem um neyzluvörulán væri að ræða.
Hæstv. ráðh. sagði, að lán hefði verið tekið að undanförnu án mikilla móimæla af minni hálfu eða flokksblaðs míns. Það er rétt, en þau lán hafa fyrst og fremst eða eingöngu verið liðir í Marshallsamstarfinu, og þar hafa Íslendingar notið algerðrar sérstöðu, bæði hvað snertir kjör og lánstíma. Mér virðist enginn ágreiningur hafa verið um það milli lýðræðisflokkanna, að eðlilegt hafi verið að taka þátt í því samstarfi. En mér hefur aldrei komið til hugar, að líta ætti á það sem almennt fordæmi. Landbúnaðurinn hefur vissulega fengið sinn hluta af því fé, sem fengizt hefur sem liður í Marshallsamstarfinu.
Eitt atriði í minni ræðu nefndi hæstv. ráðh. ekki, en það var spurningin um, hvernig lánsfé Búnaðarbankans væri nú notað, og hvort ekki væri tiltækilegt að bæta úr lánsfjárkreppu landbúnaðarins með því að breyta ráðstöfun þess lánsfjár, sem Búnaðarbankinn hefur til umráða. Mér leikur nokkur grunur á því, að Búnaðarbankinn hafi lánað talsvert fé til húsbygginga í Reykjavík. Það verður vissulega að teljast óeðlilegt, að því skuli vera þannig varið, þegar jafnháværar kvartanir heyrast um, að þessi stofnun geti ekki fullnægt lánsfjárþörf landbúnaðarins.
Að síðustu vil ég geta þess — og það kannske frekar til gamans — , að aldrei þessu vant hefur hv. 2. þm. Reykv. verið stuðningsmaður ríkisstj. í þessu máli. Ýmis rök hans hafa hnigið í sömu átt og þau, sem fram eru borin af hæstv. ríkisstj. varðandi fjármálapólitíkina almennt. Hv. 2. þm. Reykv. hefur gert sér ljóst, að þessi lántaka verki frekar verðbólguaukandi, og þess vegna var hv. 2. þm. Reykv. að stríða hæstv. ríkisstj. á því, að með þessu frv. væri hún komin í mótsögn við yfirlýsta stefnu, sem er að berjast gegn verðbólguaukningu og lánsfjárþenslu. Þetta sýnir, að það er ekki út í bláinn, að það skuli hafa verið gert að umtalsefni, að svo gæti farið, að lántaka þessi hefði áhrif til aukningar verðbólgunni í landinu.