16.02.1951
Neðri deild: 70. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 798 í B-deild Alþingistíðinda. (1775)

176. mál, lántaka handa ríkissjóði

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Mér fannst þetta broslegt vegna þess, að hér er um svo litla lántöku að ræða miðað við það, að undanfarið hefur verið fjallað um geysilega stóra lántöku, sem þannig er vaxin, að ef að gagni á að koma, þá hefur orðið að útvega innlent lán fyrst til viðbótar til framkvæmdanna, sem skiptir hundruð millj. kr. — Ég held, að hv. 3. landsk. þm. hafi misskilið mig áðan, þegar ég var að reyna að upplýsa, að þetta lán mundi verða látið ganga í gegnum stofnlánadeild Búnaðarbankans, eins og sagt er í grg. frv., og þaðan lánað eftir reglum, sem þar gilda um lán fyrir nokkrum hluta kostnaðar af þeim framkvæmdum, sem stofnlánadeild Búnaðarbankans er ætlað að lána til. Sumar framkvæmdirnar fá ekki nema 30% af kostnaðinum og aðrar 40% og hæst 60% á vissar byggingar. Reyndin verður því sú oftast nær, að sá hlutinn, sem kemur að láni frá Búnaðarbankanum, verður ekki nema fyrir erlenda kostnaðinum við framkvæmdirnar. Hinn hlutann verða því bændurnir sjálfir að leggja á móti. Mér skilst, að það verði í þessu tilfelli enginn afgangsgjaldeyrir, því að oftast nær verður kostnaðurinn við framkvæmdirnar upp undir það eins mikill og veitt er til þeirra. Ég hygg, að ef það verður nokkur afgangsgjaldeyrir, þá þýði það, að taka verður tillit til almennrar fjárfestingar, og verður það til þess, að einhverjar minni framkvæmdir yrðu þá mögulegar. En hitt er mér ljóst, að Búnaðarbankinn getur ekki, nema að mjög takmörkuðu leyti, lánað sparisjóð Búnaðarbankans til 40 ára langra lána, sem er regla stofnlánadeildarinnar. Og það má Ekki blanda þessu tvennu of mikið saman.