26.02.1951
Neðri deild: 75. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 804 í B-deild Alþingistíðinda. (1782)

176. mál, lántaka handa ríkissjóði

Frsm. meiri hl. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Fjhn. hefur haft þetta frv. til athugunar, og eins og fram kemur í nál. á þskj. 722, þá mælir meiri hl. n. með því, að frv. verði samþ. - Nú hefur verið útbýtt nál. frá minni hl. fjhn., þ.e.a.s. öðrum þeim hv. þm., sem á sæti í n. og ekki stendur að meirihlutaáliti n., og geri ég ráð fyrir, að hann geri grein fyrir því. Hins vegar hefur ekki borizt enn álit frá hv. 2. þm. Reykv.