26.02.1951
Neðri deild: 75. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 808 í B-deild Alþingistíðinda. (1786)
176. mál, lántaka handa ríkissjóði
Jóhann Hafstein:
Herra forseti. Við fyrri umr. þessa máls hreyfði ég nokkurri gagnrýni varðandi það, hvernig málið er undirbúið, og skal ekki endurtaka það hér. Hins vegar hef ég ásamt tveimur öðrum nm. lagt til, að frv. verði samþ., eins og fram kemur á nál. 176. Mínar aths. við frv. við fyrri umr. voru efnislegar að nokkru leyti, — þær sömu og hér komu fram frá hv. þm. V-Ísf., að í frv. sjálfu væri ekki nægilega gætt þess jafnvægis, sem æskilegt væri varðandi lánsfjárútvegun milli einstakra stétta og starfsgreina. Ég átti og viðræður við einstaka ráðh. um þetta og hefði gjarnan kosið að koma að brtt. á þessu frv. En eins og málið stendur og komið er mjög nálægt þinglokum, lítur ekki út fyrir, að auðvelt verði að koma slíkum breyt. fram. Tveir nm., hv. þm. V-Ísf. og hv. 2. þm. Reykv., hafa komið með brtt. við frv. Hins vegar finnst mér, að í því gæti nokkurs ósamræmis hjá a.m.k. hv. 2. þm. Reykv., sem hefur látið í ljós jafnmiklar efasemdir um það, að rétt væri að stofna til erlendrar lántöku, þar sem hann byggir nú sína brtt. á því, að hækkuð sé lánsheimild, sem í frv. felst, á sama hátt og gert er ráð fyrir að hækka í brtt. hv. þm. V-Ísf. Hvorugri þessari till. treysti ég mér til að fylgja, af þeirri ástæðu, að þær byggja á þessari hækkunartill. fyrst og fremst um heildarupphæð lána. En þá finnst mér skorta nokkra nánari athugun á málinu í heild. Ég óttast þá skort á eðlilegu jafnvægi, eins og ég hef áður vikið að um þetta frv. Út af viðræðum innan míns flokks og við ráðh. leizt mér ekki þannig á, að auðvelt væri að fá meiri hl. þingfylgi fyrir breytingartillögum. Vildi ég því freista þess að setja fram þau sjónarmið, sem fyrir mér vakti, og er það gert í þáltill., sem útbýtt er. En þar er gert ráð fyrir, að fram fari athugun á þeirri nauðsyn að auka lánsféð, og stjórninni falið að undirbúa málið. Þegar mál koma fram á 41. stund, er undir hælinn lagt, hvort afgreiðsla fæst tímans vegna. Tel ég þá betra, ef þingvilji væri fyrir því að hann kæmi fram í áskorun í garð ríkisstj. Ég hygg hins vegar, að þó að svo fari, að þetta mál nái ekki afgreiðslu, sem ég þó vona, ef nokkur tími vinnst til, þá sé samt sem áður ekki loku fyrir skotið að ná eyra ríkisstj. um efnislega meðferð málsins fyrir næsta Alþ. Væri hægt að freista þess t.d. í samvinnu við bæjarstj. Reykjavíkur, sem á hér mikilla hagsmuna að gæta. Ég vildi aðeins setja þetta fram, áður en til atkvgr. kemur um þetta mál. Og að lokum þetta: Ég tel mig ekki bundinn við að fylgja allsendis einni breyt. á frv. Í brtt. þeirri, sem hv. 7. þm. Reykv. hefur nýlega lýst, tel ég ekki efnisbreyt. felast, og mun þess vegna að henni fram kominni fylgja henni við atkvgr.