26.02.1951
Neðri deild: 75. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 809 í B-deild Alþingistíðinda. (1788)
176. mál, lántaka handa ríkissjóði
Emil Jónsson:
Ég lýsti við 1. umr. þessa máls nokkuð undrun minni yfir þeirri stefnubreyt., sem virðist hafa orðið hjá ríkisstj., þar sem er farið fram á að taka stórt erlent lán, án þess að það sé ætlað til ákveðins hlutar, heldur ótiltekið afhent Búnaðarbankanum að nokkru leyti og til iðnlána að miklu leyti, en hvort tveggja óákveðið. Ég ætla ekki að endurtaka það, sem ég sagði við 1. umr. Málið virðist á þeim rekspöl nú, að stuðningsmenn ríkisstj. í fjhn. hafa skilað nál. og lagt til, að frv. verði samþ. Svo að það virðist sýnilegt, að það eigi að ná fram að ganga. En ég vil aðeins geta þess, að við 1. umr. málsins benti ég á það einnig, að afleiðing af þessu hlyti að verða sú, að það komi fram krafa frá öðrum aðilum en þeim, sem hér um ræðir, um aðstoð við ýmis önnur mjög aðkallandi atriði, sem þarfnast úrlausnar. En menn hafa ekki talið, að það ætti, eins og sakir standa, að fara fram á erlend lán. Þegar því hins vegar er slegið föstu, að þessi stefna er upp tekin að taka lán, er ekki óeðlilegt, að þeir láti nú til sín heyra. Ég segi þetta af því sérstaka tilefni, sem hér er gefið í þessu skyni af nál. minni hl. fjhn. á þskj. 724, þar sem hv. þm. V-Ísf. leggur til, að ábyrgðarheimildin verði hækkuð nokkuð og henni varið öðruvísi en í frv. greinir. Ég er efnislega því fylgjandi, að ef út í þetta verður farið, verði hækkað framlag til iðnaðar, og að þá verði einnig bætt við 7 millj. kr. til verkamannabústaða, eins og þar er lagt til. En alveg sérstaklega vil ég leiða athygli að 3. lið brtt., þar sem segir, með leyfi hæstv. forseta, að á eftir 2. gr. komi ný gr., svo hljóðandi: „Ríkisstj. er heimilt að ábyrgjast lán til breytingar á kolakyndingu gömlu togaranna í olíukyndingu fyrir þá kaupstaði, kauptún eða einstaklinga, sem sótt hafa um nýsköpunartogara, en ekki fá úrlausn.“
Útgerð gömlu togaranna, sem svo eru nefndir, er mikið vandamál. Þeir hafa legið ónotaðir nú um æði langan tíma flestir, ekki allir að vísu; en vitað er, að ef hægt er að gera þá út undir einu formi eða öðru, mundi skapast mjög mikil aukning atvinnu í landinu og bætt úr atvinnuleysi, sem hefur gert vart við sig. Því hefur verið haldið fram, að þetta væri hægt að gera með því að breyta kyndingaraðferðinni yfir í olíukyndingu. Og það lítið ég hef kynnt mér málið er ég þeirrar skoðunar, að þetta sé hægt. Þetta er að vísu ekki rannsakað til hlítar. Liggur fyrir Alþ. till. um, að þessi athugun fari fram. Leiði hún í ljós, að þetta muni takast, er ætlazt til, að ríkisstj. veiti aðstoð sína til, að út í þetta verði hægt að fara. Þessi aðstoð er að vísu að því leyti öðruvísi en önnur lán, sem gert er ráð fyrir að veita hér, að allar líkur eru til, að þegar skipin mundu, að henni veittri, komast af stað, öfluðu þau nægilegs gjaldeyris til að standa undir þeim erlendu lánum, sem til þess verða tekin. Mér er ekki fullkunnugt, um hvað stóra upphæð er að ræða. En ég hygg. að ef gert er ráð fyrir, að 10 skip þurfi þessarar aðstoðar við, mundi ekki þurfa miklu meira en 5 millj. kr. í allt, eða um 1/2 millj. kr. á skip. Og ef það er unnt, þá er því fé vel varið. Það verður ekki einasta til þess að bæta úr atvinnuleysi, sem hér er í landi, heldur líka til þess að gera þessi verðmæti, sem togararnir eru, varanlega arðbær. En það hafa þeir ekki verið um langan tíma.
Mér þykir sá galli á till., að þar er eingöngu gert ráð fyrir, að þessi aðstoð verði veitt kauptúnum og kaupstöðum, sem sóttu um nýsköpunartogara, en fengu ekki úrlausn. Nú er vitað, að allir eða flestir þessara gömlu togara, sem hér um ræðir, eru í Reykjavík eða Hafnarfirði. Það eru a.m.k. 4–5 togarar í Hafnarfirði og álíka margir í Reykjavík eða fleiri. Báðir þessir staðir hafa, að ég ætla, sótt um að fá einn eða fleiri af nýju togurunum og fengið þá, og mundu þess vegna ekki, ef till. verður samþ., koma til greina með aðstoð til aðgerðar á gömlu togurunum samkv. till. Ég vildi leyfa mér að leggja til, að till. yrði breytt þannig, að þetta ákvæði, sem takmarkar ábyrgðarheimildina, verði fellt niður og till. orðuð á þessa leið:
Ríkisstj. er heimilt að ábyrgjast lán til breyt. á kyndingu gömlu togaranna í olíukyndingu.
Í samræmi við það ber ég fram skrifl. brtt., að niðurlag málsl. frá orðunum „fyrir þá kaupstaði“ o.s.frv. falli niður. Ég vildi mega vænta þess, að þeir, sem að frv. standa, taki þessa till. til velviljaðrar athugunar. Því að ég hygg, að það sé með fáu móti hægt að auka atvinnulíf í landinu betur með litlum tilkostnaði en með því að koma einmitt gömlu togurunum á veiðar. Væri hægt með ekki meira en 5 millj. kr. að koma 10 togurum á veiðar, mundi það bæta mjög úr því erfiða atvinnuástandi, sem hér er.
Ég skal að öðru leyti ekki fjölyrða um frv. og afgreiðslu þess, ekki endurtaka það, sem ég hef sagt fyrr um málið, en leyfi mér að leggja fram skrifl. brtt. og bið hæstv. forseta að leita afbrigða fyrir hana.