26.02.1951
Neðri deild: 75. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 811 í B-deild Alþingistíðinda. (1790)

176. mál, lántaka handa ríkissjóði

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Það eru fáein orð út af brtt. þeim, sem hafa verið lagðar fram við þetta frv. — Það er þá fyrst í sambandi við brtt. á þskj. 724, frá 1. minni hl. fjhn., sem eru um það, að lántökuheimildin verði hækkuð um 7 millj. króna, og því láni verði varið til byggingar íbúðarhúsa; einnig um það, að hærri upphæð af láninu renni til iðnaðarins, en lánið til Búnaðarbankans lækki þá samkvæmt því. Ég vil taka fram, að ég get ekki mælt með því, að lántökuheimildin verði hækkuð frá því, sem er í frv., og er það ekki vegna þess, að ég álíti ekki nauðsynlegt. að bæta við íbúðarhúsabyggingum, heldur er það vegna þess, að við teljum ekki rétt að taka meiri erlend lán en frv. gerir ráð fyrir. Því verða menn að meta það, hvað réttast sé að láta sitja fyrir lánunum, og okkar mat er það, að landbúnaðurinn eigi að sitja fyrir í þessu sambandi að svo miklu leyti, sem frv. gerir ráð fyrir. Hér er um að ræða, hvort setja eigi fjármagnið til landbúnaðarins og auka með því atvinnureksturinn og framleiðsluna eða til íbúðarhúsabygginga.

Þá er brtt. á þessu sama þskj. um það, að nýrri grein verði bætt inn í frv., og er hún þess efnis, að ríkisstj. verði heimilt að ábyrgjast En til breytingar á kolakyndingu gömlu togaranna o.s.frv. Hv. þm. Hafnf. flutti einnig brtt. varðandi þetta efni. Ég vil nú fara fram á það við hv. flm. þessara brtt., að þeir taki þær aftur til 3. umr., vegna þess að ríkisstj. er einmitt að athuga þetta mál núna og hvað eðlilegt sé að gera í því. Þetta á líka í sjálfu sér ekki heima í frv. og ekki rétt að binda það við lántökuheimildina. Ég tel því rétt að biðja hv. flm. að taka brtt. sínar aftur, svo að hægt verði að athuga þetta nánar fyrir 3. umr.

Þá er það brtt. frá 2. minni hl. um það að hækka lántökuheimildina og verja þeirri upphæð á svipaðan hátt og 1. minni hl. leggur til, þó einvörðungu til að lána til bygginga íbúðarhúsa. Ég vil mæla gegn þessari brtt. með sömu rökum og brtt. 1. minni hl. um svipað efni. Hv. 2. þm. Reykv. minntist í þessu sambandi á það, að Framsfl. hefði lýst því yfir við síðustu kosningar, að hann vildi stuðla að byggingu nýrra íbúðarhúsa. Ég vil í þessu sambandi minna hv. þm. á það, að fyrir tilstilli Framsfl. voru sett ákvæði inn í gengisbreytingarlögin, sem urðu þess valdandi, að þessir sjóðir, þ.e. byggingarsjóður verkamanna og sjóðir byggingarsamvinnufélaganna, fengu á síðasta ári um 7 millj. króna. Þetta fé fengu þeir einvörðungu vegna þessara ákvæða, sem Framsfl. fékk komið inn í lögin. Svo það er ekki hægt að segja, að Framsfl. hafi ekki gert sitt til að bæta úr þessum málum, þótt hann treystist ekki til að fylgja þessari brtt. hv. 2. þm. Reykv.

Loks er svo skrifleg brtt. frá hæstv. forseta um það, að tekið verði inn í þetta frv. ákvæði um það, að iðnbanki skuli vera stofnaður. Það leiðir af sjálfu sér, að ríkisstj. getur ekki mælt með þessari till. Það er tekið fram í grg. frv., að þetta mál sé í athugun hjá ríkisstj., og því er ekki viðeigandi að ákveða nokkuð í þessu efni, fyrr en sú athugun hefur leitt í ljós, hvort skynsamlegt sé að bæta við banka eða ekki. Því mælist ég til þess við hv. flm., að hann taki till. til baka til 3. umr. og þá verði reynt að komast að samkomulagi um það, hvernig þessu láni til iðnaðarins verður bezt fyrir komið.