26.02.1951
Neðri deild: 75. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 812 í B-deild Alþingistíðinda. (1792)
176. mál, lántaka handa ríkissjóði
Frsm. 2. minni hl. (Einar Olgeirsson):
Herra forseti. Ég vil ekki tefja umr. mikið úr þessu, en vildi segja nokkur orð í sambandi við yfirlýsingu hæstv. fjmrh. um það, að hann gæti ekki mælt með minni brtt. vegna þess, að í henni fælist heimild til að taka lán til að byggja íbúðarhús. Hins vegar mætti taka 12 millj. til landbúnaðarins vegna þess, að þær færu til atvinnuaukningar. Nú vildi ég mega spyrja hæstv. ráðh.: Er ekki meiningin að nota þessar 12 millj. króna meðfram til að byggja íbúðarhús í sveitum? Mér hefur skilizt, að svo væri, og það kom líka greinilega fram við 1. umr. málsins. Þannig er ríkisstj. ekki mótfallin því að verja erlendu láni til byggingar á íbúðarhúsum, heldur er hún á móti því, að þau verði byggð í bæjum. Hæstv. ráðh. minntist í þessu sambandi á það, að Framsfl. hefði fengið komið á ákvæðum nm veitingu allmikils fjár til íbúðarhúsabygginga í bæjum í sambandi við gengislækkunina. Ég skal ekkert segja um það, hvernig samningar stjórnarflokkanna hafi verið nm þetta mál, hvort Framsfl. hafi eingöngu komið þessum ákvæðum á og Sjálfstfl. hafi ekkert átt í þeim. En ef á að fara að vega þetta og meta, þá væri ekki úr vegi að fá upplýsingar um, hvað gengisbreytingin hefur gert byggingarnar miklu dýrari og hvað framlag það, sem Framsfl. þykist hafa komið á, vegi upp á móti þeirri dýrtíð, sem hann skapaði með sömu lögum. Ég held, að fjmrh. komist ekki hjá að verða var við, að ef ástandið í byggingarmálum sveitanna er svo slæmt sem hann lætur, þá er bein neyð fyrir hendi í þessu efni í bæjunum. Fyrir 22 árum voru samþ. lög um útrýmingu kjallaraíbúða, og þessi lög hafa enn ekki verið framkvæmd. Síðan hafa líka verið byggðar íbúðir, sem eru enn þá verri og bölvanlegri en kjallaraíbúðirnar. Þannig fæ ég ekki séð, hvernig hægt er að halda því fram, að svo framarlega sem sú leið er farin að taka erlend lán til byggingar íbúðarhúsa, þá sé ekki jafnnauðsynlegt að byggja þær íbúðir í bæjum sem sveitum. Þetta vildi ég aðeins segja í sambandi við ræðu hæstv. ráðh.
Það sýnir sig að sjálfsögðu við atkvgr., hvert álit hv. þm. er í þessu máli. Ég bjóst satt að segja ekki við því, að loforð Framsfl. við síðustu kosningar um það, hvað þeir ætluðu að gera fyrir bæina, yrðu haldgóð, en nú reynir á þm. bæjanna, hvernig þeir standa sig í þessu sambandi.