03.03.1951
Efri deild: 82. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 814 í B-deild Alþingistíðinda. (1803)

176. mál, lántaka handa ríkissjóði

Jóhann Jósefsson:

Herra forseti. Í niðurl. 2. gr. þessa frv. er talað um að verja allt að 3 millj. kr. til stofnunar iðnbanka Íslands eða til iðnlánasjóðs; en fyrr í sömu gr. er talað um að verja allt að 15 millj. kr. til landbúnaðarins eða Búnaðarbankans, — „enda kæmi jafnhátt framlag annars staðar að“. — Er það ekki svo að skilja, að þessi fyrirvari gildi jafnt um Búnaðarbankann sem iðnlánasjóð, og jafnhátt framlag lánsupphæðunum skuli koma annars staðar að til beggja? — Um þetta vildi ég spyrja hæstv. ráðh. Enn fremur vildi ég drepa á það, að minni hl. iðnn. gefur út álit um frv. um iðnbanka Íslands, sem nú hefur verið samþ. af hv. Nd. Og ég vildi því mælast til þess við hæstv. forseta, að þessi d. fengi einnig að fella um það mál sinn úrskurð. Ég veit ekki, hvort meiri hl. n. skilar áliti eða ekki, en ég treysti hæstv. forseta til þess að sjá svo um, að vilji þingsins í þessu efni fái einnig að koma í ljós í þessari hv. deild.