03.03.1951
Efri deild: 82. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 815 í B-deild Alþingistíðinda. (1806)

176. mál, lántaka handa ríkissjóði

Forseti (BSt):

Eins og ég gat um í gær, þá hef ég ekki hugsað mér að taka önnur mál á dagskrá að þessu sinni en þau tvö, sem hér hafa verið tekin til umræðu nú á þessum óvenjulega fundartíma; en ég mun hins vegar taka málið á dagskrá strax á mánudag.