28.02.1951
Sameinað þing: 48. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 833 í B-deild Alþingistíðinda. (1848)

150. mál, fjáraukalög 1948

Frsm. (Halldór Ásgrímsson):

Herra forseti. Það er alllangt síðan þetta mál var til umr. hér í hæstv. Alþ. Í framsöguræðu minni um málið vakti ég athygli á því, hve mjög útgjöld hafa mörg undanfarin ár farið fram úr áætlun og nefndi þar til nokkur dæmi. Hv. þm. Vestm. sá ástæðu til að svara þessari ræðu minni, og virtist mér ræða hans vera sambland af afsökunum hans sem fyrrv. fjmrh. og ásökunum í garð fjvn. Þegar umr. var frestað, var ég byrjaður að svara ræðu hv. þm., og skal ég nú halda áfram þar, sem frá var horfið, en ég geri ráð fyrir, þar sem svo langt er um liðið síðan málið var til umr., að það geti komið fyrir endurtekningar. — Hv. þm. Vestm. sagði m.a., að spekingarnir í fjvn. hefðu skorið niður augljós útgjöld og beitt til þess einræði. Þetta er alvarleg ásökun, ef sönn væri, og ég taldi ástæðu til þess að athuga dálítið frv. að fjárl. fyrir árið 1948 og fjárlögin fyrir sama ár og gerði nokkurn samanburð á þeim breyt., sem höfðu orðið á frv., og vil ég leyfa mér að skýra frá því, sem þar kom í ljós. Ef borið er saman fjárlfrv. fyrir árið 1948 og fjárlögin fyrir sama ár, þá kemur þetta í ljós: 7., 8. og 9. gr. frv. eru samþ. óbreyttar. 10. gr. er samþ. með 77 þús. kr. hækkun. 11. gr. A., þar er 20 þús. kr. lækkun, og er það áætlaður kostnaður við útgáfu dóma. 11. gr. B., þar á sér stað 160 þús. kr. lækkun og af þeirri upphæð er 144 þús. kr., sem frv. ráðgerði halla á skipaskoðun ríkisins, en fjvn. taldi ástæðu til að vænta þess, að sú stofnun bæri sig fjárhagslega. Auk þess lagði fjvn. til samtals um 16 þús. kr. lækkun á kostnaði við alls konar afurðamat, þetta er samtals 160 þús. kr. — 11. gr. C., þar er lækkun frá frv. um 5 þús. kr., og var þar felld niður fjárveiting til nýbyggingarsjóðsnefndar, sem fjvn. gerði ráð fyrir, að væri ekki svo nauðsynleg fjárveiting, eins og komið var. 11. gr. D. er samþ. óbreytt. — Á 12. gr. er samþ. 97 þús. kr. hækkun. — 13. gr. A. er 4.970 þús. kr. hækkun frá frv. 13. gr. B. er 442 þús. kr. hækkun. 13. gr. C. er 1723 þús. kr. hækkun. 13. gr. D. er 485 þús. kr. lækkun. Þar var gerð lækkun á rekstrarkostnaði flugvalla, sem sýndi sig að gat staðizt. En ef við athugum fjáraukalagafrv., þá er þessi gr. þar með 657 þús. kr. umframgreiðslu, og við nánari athugun kemur í ljós, að 526 þús. kr. af þessari upphæð er vegna útgjalda, sem ekki eru í áætlun fjárlfrv. og þar af leiðandi ekki í fjárl. - 14. gr. A. er samþ. óbreytt. 14. gr. B. er samþ. með 630 þús. kr. hækkun. — 15. gr. A. er samþ. með 83 þús. kr. hækkun. 15. gr. B. er óbreytt. — 16. gr. A. er með 5 þús. kr. hækkun. 16. gr. B. er með 1511 þús. kr. lækkun, þar af aðalupphæðin 1500 þús. kr. færsla milli greina, en það var fjárveiting til Samábyrgðarinnar, sem þótti eiga heima á 20. gr. 16. gr. C. er óbreytt. 16. gr. D. er 1065 þús. kr. hækkun. — 17. gr. er lækkun 260 þús. kr. Á einum lið á þessari gr. var lækkun 500 þús. kr., meðlag með börnum erlendra manna, og sú lækkun stóðst svo að segja alveg, en aftur eru ýmsar hækkanir á gr. 240 þús. kr., þannig að raunveruleg lækkun var 260 þús. kr. — 18. gr. var samþ. með 55 þús. kr. hækkun. — 19. gr. samþ. óbreytt. — 20. gr. samþ. með 1345 þús. kr. lækkun. Það var undantekningarlaust lækkun á fjárveitingum til ýmissa framkvæmda á vegum ríkisins, svo sem til ríkisspítalanna, til byggingar menntaskólans í Reykjavík og til Skálholtsskóla, og við athugun kemur í ljós, að sumar þessar fjárveitingar, sem samþ. voru í fjárl., voru ekki notaðar, svo lækkunin virtist ekki hafa komið að sök.

Samtals hafa lækkanir verið nál. 3.786 þús. kr., en hækkanir nál. 9.117 þús. kr., og sést af því, að það er síður en svo, að fjvn. hafi í blindni skorið niður nokkra fjárveitingu eða útgjöld á þessum umræddu fjárl. Það eina, sem mætti segja, að kæmi í ljós, er það, að lækkanirnar á 11. gr., 185 þús. kr., standast ekki, en benda má á það, að það er lítill hluti af þeim 41/2 millj. kr., sem þessi gr. fer fram úr áætlun, og ég er sannfærður um það, að ýmsir þessir liðir, sem fjvn. samþ. að lækka á 11. gr., hefðu ekki verið lækkaðir, ef þáv. fjmrh. hefði óskað eftir og gefið upplýsingar til n. um, að ógerlegt væri að skera niður þau útgjöld.

Síðan ég kom í fjvn. hef ég aldrei orðið var við, að fjvn. hafi ekki haft sjálfsagða löngun til þess að starfa í samráði við hvern þann fjmrh., sem þá hefur farið með völd. Ef nokkru er undan að kvarta, sem ég er ekki að gera, þá er frekar hægt að segja, að fjmrh. hafi ekki ævinlega verið í sambandi við fjvn. eins og æskilegt hefði verið og betur hefði farið á. Ég held þess vegna, að það séu staðlausir stafir, að fjvn. hafi í blindni skorið niður augljós útgjöld, þegar hún hafði til meðferðar fjárlfrv. 1948. - Að fjvn. hafi beitt einræði í málum, það er náttúrlega út af fyrir sig broslegt, því að ef litið er eingöngu á það, þá er öll fjvn., ef hún stæði saman sem einn maður, ekki einu sinni 1/5 af Alþ., svo að hún hefur ekki aðstöðu til að beita einræði í meðferð þeirra mála, sem til hennar er vísað.

Hv. þm. Vestm. sagði, að það væri auðvitað erfitt að áætla útgjöld, því að margt í fjárlagaútgjöldum væri áætlunarupphæðir, og nefndi hann t.d. jarðræktarstyrkinn og viðhald vega. Þetta er alveg rétt, og ég tók það fram í framsöguræðu minni, að það væri vitað mál, að það væri oft vandkvæðum bundið að hitta nákvæmlega á raunverulegu upphæðina í hverju tilfelli. En ef við athugum fyrir árið 1948 þessar 2 áætlunarupphæðir, sem hv. þm. Vestm. nefndi sem dæmi, svo sem áætlunina um jarðræktarstyrkinn, þá kemur í ljós, að í frv. til fjárl. fyrir þetta ár gerir fjmrh. ráð fyrir því, að þessi útgjöld verði 21/2 millj. kr., en á fjárl. eru þau áætluð 3 millj. kr. Því segi ég, að fjvn. hefur ekki stutt að því að skera í blindni niður eða draga fjöður yfir augljós útgjöld, og ég vil bæta því við, að fjvn. hafði mikla tilhneigingu til að áætla upphæðina hærri, vegna þess að það hafði sýnt sig á undanförnum árum, að þessi útgjaldaliður hafði farið fram úr 3 millj. kr. En við 3 millj. kr. var látið sitja, og ég hygg, að það hafi frekar staðið á þáv. ríkisstj. að taka til greina hærri upphæð en fjvn., en þó er það svo að þessi útgjaldaliður, sem að tilhlutan fjvn. var færður á fjárl. upp í 3 millj., hefur reynzt 3,6 millj. árið 1948, svo að ekki hefur fjvn. þar farið spillandi höndum um verkefni sitt. — Þá er sömu söguna að segja um hinn liðinn, sem hv. þm. Vestm. nefndi, viðhald á vegum. Á fjárlfrv. fyrir árið 1948 voru þau útgjöld áætluð 9 millj., og var það samþ. í fjárl. Það var ekki gert ráð fyrir því að áætla þessi útgjöld hærri, en ég hygg, að það sé ekki ofsagt, að fjvn. hafi haft mjög mikla tilhneigingu til þess að áætla þessi útgjöld 11 millj., eða 2 millj. hærri en í frv. En ríkisstj. vildi ekki ganga inn á slíkt, og fjvn. taldi, að við svo búið yrði að sitja.

Hv. þm. Vestm. taldi, að ég hefði haldið því fram, að það mætti ekki eiga sér stað að nokkrum stafkrók væri breytt frá fjárl., þegar til útgjaldanna kæmi. Þetta er náttúrlega ranghermi. Ég hélt því fram og vakti athygli á því, hvað það væri fjarrí öllu lagi, að útgjöld færu svo langt fram úr áætlun eins og raun ber vitni, en tók fram, að vitanlega yrði aldrei komizt hjá fjáraukalögum. Hafði ég þar að sjálfsögðu m. a. í huga 22. gr. fjárl., útgjöld samkv. ýmsum l., sem samþ. eru, og síðast en ekki sízt það, að það er aldrei hægt að gera ráð fyrir því að taka í áætlun fjárl. nákvæmlega þá upphæð, sem nauðsyn ber til í hverju tilfelli að greiða. En ég lagði áherzlu á, að það hlyti að vera hægt að komast í flestum tilfellum nálægt því sanna um útgjöld einstakra liða, ekki sízt ef nægilega er byggt á reynslu undanfarinna ára, og undir öllum kringumstæðum taldi ég, að það sé mjög auðvelt að komast a.m.k. nær áætlunum heldur en hefur verið í fjárl. fyrir árið 1948. Ég vil nefna dæmi, sem ég gat um í framsöguræðu minni. Það er 11. gr., þar sem útgjöldin fara 41/2 millj. fram úr áætlun fjárl., eða um 25%. Ég tók það fram þá, að ég væri ekki með neinar ásakanir á hendur einstökum aðilum, ég tel þetta miklu alvarlegra mál en að ástæða sé til að taka þetta persónulega. Ég vildi vekja athygli á því, hvað það er varhugavert að viðhafa slík vinnubrögð. Það kann að vera að einhverju leyti fjvn. að kenna, en þó vil ég ekki kannast við það, að hún hafi ekki farið eftir þeim gögnum, sem fyrir hafa legið, og reynt að fá það sannasta út úr hverju atriði sem hægt var.

Hv. þm. Vestm. taldi það aukaatriði, í hvaða formi fjáraukalög væru lögð fyrir Alþ. Það er nú svo, að fjvn. telur það ekki aukaatriði, hvort t.d. á 20. gr. fjárlaga 1948 komi 62 millj. eða rúmar 73 millj., sem mundi vera á þeirri gr., ef sú aðferð um uppbyggingu fjáraukalaga hefði verið viðhöfð, sem fjvn. leggur áherzlu á að sé notuð, m.ö.o., hún ætlast til, að sú raunverulega umframgreiðsla komi fram, án þess að þær séu lækkaðar með því, sem kannske hefur tekizt að spara á einhverjum öðrum lið í sömu gr. Hún lítur svo á, að þó fjmrh. hafi tekizt annaðhvort að losna við ákveðin útgjöld eða draga úr þeim, þá hafi hann ekki heimild til þess að ráðstafa því fé til annarra hluta, öðruvísi en að á eftir komi samþykkt Alþ.

Ég sé ekki ástæðu til að hafa þessi orð mín miklu fleiri og skal ekki ræða um þetta mál í þeim anda, sem mér virtist hv. þm. Vestm. hafa tilhneigingin til að færa málið inn á. En ég vil enn vekja athygli á því, sem ég taldi í framsöguræðu minni aðalatriði málsins, þ.e.: Á það að vera ríkjandi venja áfram, að það þyki raunverulega engum tíðindum sæta, þótt útgjöld ríkisins fari jafnvel 40–50% fram úr áætlun fjárl. og þessar stóru umframgreiðslur liggi svo ekki fyrir Alþ. til samþykktar fyrr en 2–4 árum eftir að þessar greiðslur hafa átt sér stað? Þetta er aðalatriði málsins og það, sem ég vildi vekja athygli á með framsöguræðu minni.