02.03.1951
Neðri deild: 77. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 847 í B-deild Alþingistíðinda. (1901)
194. mál, togarakaup ríkisins
Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):
Herra forseti. Þetta frv. er borið fram af ríkisstj. og er breyt. á l. nr. 50/1950, um togarakaup ríkisins. Í þessum l. er ríkisstj. heimilað að lána kaupendum togaranna allt að 75% af andvirði þeirra. Nú sýndi sig í sumar, er stjórnin gerði ráðstafanir til að selja togarana, að ekki er hægt að losna við þá með þessum skilyrðum. Stjórnin hefur orðið að lána kaupendum þeirra allt að 90% af andvirði þeirra. Af þessum ástæðum er þetta frv. borið fram, til þess að fá heimild til að gera þetta, sem þegar hefur verið gert, og sömuleiðis að fá heimild til að selja þá togara, sem eftir er að ráðstafa. Ég vil í þessu sambandi geta þess, að við afgreiðslu fjárl. í vetur var samþ. heimild í 22. gr. að taka til athugunar víð staðsetningu togaranna, að taka tillit til þeirra staða, þar sem atvinnuástandið er erfiðast. Stjórnin lítur svo á, þó að heimild sé til að ráðstafa togurunum á öðrum grundvelli, að það sé hagstæðara fyrir kaupendur, að þetta sé ákveðið. Í 1. gr. er tekið fram, að heimild sú, er stj. var veitt á fjárl., haldist. Þó að heimildin taki ekkert ákveðið fram, ræður hún með hvaða kjörum skipin séu látin af hendi. Það er vilji Alþingis, að fullt tillit sé tekið til atvinnuástands og hnikað til með kjörin eftir því. Ég vil taka þetta fram við 1. umr. málsins og upplýsa þetta hér í umr., svo að það orkaði ekki tvímælis, hvaða heimild stjórnin hefur. Flm. eru hér og geta skýrt nánar, ef þörf gerist, hvað fyrir þeim vakti.
Mér finnst ekki vera ástæða til að hafa fleiri orð um þetta að sinni. Eins og fram kemur í aths., er þegar búið að ganga frá sölu 4 togara og verið að ganga frá sölu nokkurra, og er þó ekki öllum ráðstafað af þeim 10 togurum, er hér um ræðir. — Ég sé svo ekki ástæðu til að taka fleira fram.