02.03.1951
Neðri deild: 77. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 848 í B-deild Alþingistíðinda. (1903)

194. mál, togarakaup ríkisins

Pétur Ottesen:

Mig langar að segja nokkur orð um þetta mál, þó að það snerti ekki beinlínis frv. Það er ekki alveg eins og það lá fyrir í gær, en nú er búið að breyta því örlítið.

Í sambandi við úthlutun togaranna vildi ég segja þetta: Stjórnin gaf út auglýsingu, 5. apríl s.l. um að þessir togarar væru til sölu og mönnum gefinn kostur á að gerast kaupendur að þeim með ákveðnum skilmálum. Nánar var vísað í atriði frá n., sem hafði haft málið með höndum, og sérstaklega til G.J. Önnur skilyrði, er sett voru fyrir sölu togaranna, voru, að kaupendur tækju að sér hluta af láni, sem tekið væri í Englandi, og ættu að greiða 1/10 hluta af kaupverði þeirra, þegar samningar væru gerðir um kaupin. Um fleiri skilmála mun hafa verið að ræða. Að þessu hefur orðið langur aðdragandi, en nú er komið að sölu þeirra. Þessu máli hefur lyktað eins og hæstv. forsrh. upplýsti, og er þegar búið að semja um sölu á meiri hluta togaranna á þeim grundvelli, sem stjórnin hafði lagt. Nú er það vitað, að eftir á að úthluta a.m.k. þremur skipanna. Það er líka vitað, að tveir umsækjenda eru reiðubúnir að uppfylla þessa skilmála, sem hafa þó ekki fengið því framgengt, að stjórnin seldi þeim skipin. Mér skilst, að synjun til þessara umsækjenda sé miðuð við það, að stjórnin hyggst að ráðstafa skipunum á annan hátt. Eins og kom fram hjá hæstv. forsrh. og í frv. eins og það er nú, var vitnað í grg. og tekin upp í tillgr. samþykkt sú, sem gerð var við afgreiðslu fjárl. fyrir jólin í vetur. Þessi samþykkt hljóðar svo, 17. liður 22. gr.: „Ríkisstjórninni er heimilt að gera ráðstafanir til þess, að nokkrir hinna nýju togara, sem nú eru í smíðum, verði staðsettir á þeim útgerðarstöðum, sem við erfitt atvinnuástand búa.“ — Þetta er byggt á því, að þeim, sem skipin keyptu, þóttu kostirnir nokkuð harðir. Þetta mál horfði svo uggvænlega við, að tvísýnt var, hvort stjórninni tækist að selja skipin með fyrrgreindum skilmálum. Þátttaka mín í atkvgr. var t.d. byggð á þeim skilningi, að til þessarar heimildar yrði ekki gripið, nema ekki tækist að selja skipin samkvæmt framansögðu. Þess vegna lít ég svo á, að ríkisstj. hafi aðeins heimild til að grípa til þessara ráðstafana, ef ekki væri hægt að selja skipin með þeim skilmálum, sem settir voru í upphafi um sölu þeirra. Ég vil því nota þetta tækifæri til að beina því til stj., að sá aðili, sem ég hef umboð fyrir, Akranes, æskir þess, að gengið sé frá sölu eins þessara skipa þeim til handa með þeim skilyrðum, sem stjórnin hefur sett um söluna. Ég lít svo á, að með þeirri auglýsingu, sem ríkisstj. gaf út um þetta, og þeim skilyrðum, sem umboðsmönnum hennar var falið að leggja til grundvallar í samningunum um þetta efni, þá sé hreint og beint verið að gabba þá aðila, sem í trausti þess hafa gert kauptilboð í skipin og óskað mjög eindregið eftir því, að ríkisstj. standi við þá auglýsingu, sem hún gaf út um þetta efni, og þau skilyrði, sem hún fól umbjóðendum sínum að byggja söluna á. Ef það er nú þannig, að þetta er ekki rétt hjá mér, að sá aðili, sem ég hef hér nefnt, hann sé dæmdur úr leik af þessum sökum, bið ég náttúrlega afsökunar á því. En ef það er hins vegar þannig, að það ætti að fyrirmuna þeim um það, að boði þeirra yrði tekið, þá tel ég, að það sé ekki rétt að farið og að slíkri ráðbreytni beri að mótmæla. Ég vil enn fremur benda á það, að með tilliti til þess, að í fjárlagaheimild til handa ríkisstj., sem ég lít svo á, að sé þeim takmörkunum háð, sem ég hef lýst, er talað um staði, þar sem erfitt atvinnuástand sé, — ég vil í þessu sambandi benda á það að því er Akranes snertir, að þar er að vísu einn togari fyrir, en aðalafkoma manna á Akranesi byggist hins vegar á bátaútveginum enn sem komið er. Allir vita um það, hve erfiðlega hefur að undanförnu gengið með bátaútveginn í heild, og t.d. það sem af er þessari vetrarvertíð, en nú er hún um það bil hálfnuð undir venjulegum kringumstæðum, og þó meira en hálfnuð að því er venjulegt aflamagn snertir, þá er svo ástatt nú, að mjög lítill afli er kominn á land á þessum hluta vertíðarinnar og útlitið þess vegna mjög uggvænlegt um afkomu manna þarna, sem að langsamlega mestu leyti byggist á því, að bátaútvegurinn gangi vel. — Ég kýs því að heyra hjá hæstv. forsrh., hvernig ástatt er í þessum efnum, og endurtek það, sem ég sagði áðan: Ef það er svo, að það hafi aðeins orðið dráttur á því, að bæjarstjórn Akraness fengi togara keyptan, en meiningin sé, að svo geti orðið, þá er það náttúrlega að ófyrirsynju að vera með slíka fyrirspurn. Þetta upplýsir hæstv. ráðh., en drátturinn á þessu er orðinn það langur, að mér fannst ástæða til að nota þetta tækifæri til að fá úr því skorið, hversu ástatt er í þessu efni, enda til þess ætlazt af mér, að ég fylgist með í þessu atriði, þar sem það er trú manna þar heima fyrir, að hér geti verið um verulegt hagsmunaatriði að ræða fyrir þá, og auk þess, að þeir hafi alveg sama rétt eins og þeir, sem nú hefur verið samið um sölu á togurum til, — sama rétt og þeir og eru reiðubúnir að standa við þau skilyrði, sem öðrum hafa verið sett.