02.03.1951
Neðri deild: 77. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 850 í B-deild Alþingistíðinda. (1904)
194. mál, togarakaup ríkisins
Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):
Herra forseti. Ég skal fyrst snúa mér að fsp. hv. 8. landsk. út af því, sem segir hér í 1. gr. frv., en þar stendur, með leyfi hæstv. forseta: „Heimilast henni að nota til þess lán það, er um ræðir í 1. gr. laga þessara, og taka til viðbótar þau lán, sem með þarf“. Ég skal viðurkenna, að þetta orðalag er kannske óheppilegt að sumu leyti, en það er ekki tilætlun ríkisstj. að fá neina nýja heimild með þessu, heldur er það algerlega bundið við heimildina í frv., sem síðast var verið að ræða um. Og ég get gefið þessa yfirlýsingin skýrt og ákveðið og tel því ástæðulaust að ræða um það frekar. Náttúrlega mætti breyta þessu orðalagi í n., ef ástæða þætti til þess.
Þá vil ég segja nokkur orð út af ræðu hv. þm. Borgf. Hann gerði hér fsp. til ríkisstj. varðandi úthlutun togaranna og einnig varðandi þá heimild, sem ríkisstj. var veitt í 22. gr. fjárl. um sérstakar ráðstafanir á einhverjum af þessum nýju togurum. Ég skal taka fram, að það var rétt frá skýrt hjá hv. þm., þar sem hann nefndi hina fyrstu auglýsingu ríkisstj. varðandi togarana, frá 1. apríl s.l. vor, þar sem mönnum eða stofnunum var gefinn kostur á að sækja um togara með þeim kjörum, sem þá voru auglýst og miðuð voru við þær heimildir, sem voru í l. En það sýndi sig, að ekki var hægt að afsetja togarana með þessum kjörum, og þegar svo hafði gengið fram undir haust, að engar líkur virtust til þess, að þetta mundi takast, tók ríkisstj. þá ákvörðun að leita eftír því að afsetja togarana með öðrum hagstæðari kjörum fyrir kaupendur, og það er það, sem nú er óskað eftir, að Alþ. veiti heimild til. Það þótti alls ekki fært á þeim tíma að bíða eftir því, að Alþ. kæmi saman, og slæmt að sitja uppi með alla togarana, áður en búið væri að ganga frá sölu á neinum þeirra. — Þó að þannig væri skipt um og boðin hagstæðari kjör, var þó langt frá því, að kapphlaup væri um togarana fyrst þar á eftir. Gekk mjög illa að koma í verk afsetningu fyrstu togaranna á hinum nýja grundvelli. En svo varð mjög snögg og ég vil segja að sumu leyti einkennileg breyting á þeirri tregðu, sem verið hafði á því að óska eftir þessum nýju skipum, þegar kom fram um áramót, því að þá var eins og allir vildu fá þessi nýju skip. Það mun vera rétt, sem hv. þm. Borgf. sagði, að bæjarstjórn Akraness hafi sótt um togara á sínum tíma, en þessi aðili hreyfði ekki neinu til þess að semja við ríkisstj. um það, alls ekki samkv. auglýsingunni frá 1. apríl og ekki heldur síðar, og það var áreiðanlega ekki fyrr en þá eftir áramótin, þegar samninganefnd kom frá Akranesi og óskaði að gerast kaupandi að einum hinna nýju togara. En í því sambandi ber að athuga, að þá var Alþ. búið að taka nokkuð afdrifaríka ákvörðun í þessu máli með þeirri áskorun, sem gerð var í sambandi við 22. gr. fjárl., þar sem ríkisstj. beint fellst á að taka mjög til athugunar að ráðstafa einhverju af togurunum með tilliti til atvinnuskilyrða úti um land, en ekki með tilliti til þess eins, hvort hægt væri að afsetja togarana með þeim alinennu kjörum, sem ákveðin voru, og varð þetta til þess að skapa nýtt viðhorf ríkisstj. í þessu máli. Og það er rétt, sem hv. þm. Borgf. sagði, að þetta var ekki gert að frumkvæði ríkisstj. sjálfrar, heldur tveggja alþm., annars af Vesturlandi, hv. þm. N-Ísf. (SB), og hins af Austurlandi, hv. 2. þm. S–M. (VH), sem báru fram þessa till., og náði hún, að því er mig minnir, ágreiningslaust samþykki Alþ. við afgreiðslu fjárl. Ég geri ráð fyrir, að það sé ekki tilviljun, að það vill svo til, að annar sá hv. alþm., sem bar fram þessa till., er af Vestfjörðum, útgerðarplássinu þar, og hinn af Austfjörðum, útgerðarplássinu þar, heldur stendur þetta ábyggilega í sambandi við hin erfiðu atvinnuskilyrði á báðum þessum stöðum, að þessu er þannig varið, og af þeim ástæðum er það, að ríkisstj. lagði þann skilning í þessa ályktun, að það ætti ekki eingöngu að taka tillit til þeirra skilyrða, sem skipin væru látin af höndum með, heldur ætti fyrst og fremst að taka tillit til atvinnuástandsins á viðkomandi stöðum og hvort með því mætti bjarga einhverju við. En það er einmitt mjög gott að fá þetta rætt nú á Alþ., svo að stj. verði ljóst á eftir, hvaða heimild hún hefur í þessu máli.
Ég efa það ekki, að bæjarstjórn Akraness geti staðið að kaupum á einum af þessum togurum, sem nú eru í boði. Hv. þm. Borgf. benti á það, að atvinnuástandið þarna væri ekki glæsilegt, og bar fyrir sig aflabrest á vertíðinni. Það er að vísu rétt, að bátaflotinn hefur aflað illa enn sem komið er en þó er það nú alveg víst, að Akranes er einn af þeim stöðum á landinu, þar sem atvinnulífið er einna blómlegast. Má færa ýmis rök fyrir því og t.d. þau, að það hefur sýnt sig við atvinnuleysisskráningu, að ekkert atvinnuleysi er á Akranesi. Staðurinn liggur alveg sérstaklega vel við miðunum hér fyrir bátaútveginn, og þó að enn hafi svo til tekizt á þessari vertíð, er engan veginn útilokað, að úr því geti rætzt. Hitt er aftur alvarlegra, hvernig horfir t.d. á Vestfjörðum. Það má nú heita, að þar sé komin alveg hávertíð, en það má víst svo heita, að engin branda hafi fengizt þar úr sjó til þessa, og það er náttúrlega mjög uggvænlegt ástand, og mér finnst, að þetta hljóti miklu frekar að styrkja ákvörðun Alþ. í vetur í sambandi við fjárl. en að draga úr henni.
Ég gat ekki látið hjá líða að láta þessi orð falla. Það er síður en svo, að ríkisstj. hafi ekki tilhneigingu til þess að verða við óskum eins myndarlegra manna og Akurnesingar eru, að þeir geti fengið togara, þar sem þeir hafa nú fengið áhuga fyrir því, þó að sá áhugi hafi verið mjög daufur á löngu tímabili í sumar. En það er bara ekki hægt að láta þau fáu skip, sem til umráða eru, nema í fáa staði. Það er það, sem hér kemur til greina. Ég skal taka það fram, að það eru sennilega 3 togarar, sem eftir er að ráðstafa enn þá. Þeim er alveg óráðstafað og verður ekki ráðstafað fyrr en Alþ. er búið að ganga frá þessu máli, bæði hinni almennu heimild um, að lána megi almennt upp í 90% af andvirði þeirra, og gengið hefur verið úr skugga um það, hvað vakti fyrir Alþ., þegar það gekk frá ályktuninni í sambandi við fjárl. í vetur, sem ríkisstj. dregur ekki í efa, hvernig hafi átt að skilja. Hv. þm. Borgf. vildi skilja þetta á þann veg, að því aðeins væri heimilt að ráðstafa skipunum með hagstæðari kjörum en þetta frv. ráðgerir, ef ekki væri hægt að afsetja þau á annan hátt. Ég held, að þetta megi ekki lesa út úr ályktuninni í vetur, þar sem tekið er tillit til atvinnuástandsins á viðkomandi stöðum.
Ég skal einnig geta þess út af till., sem hv. þm. V-Ísf. (ÁÁ) bar hér fram við annað frv., í sambandi við elztu togarana, að ríkisvaldið veitti einhverja aðstoð til þess að skinna þá upp að einhverju leyti, að hann boðaði í gær, að hann mundi taka þessa till. upp í sambandi við þetta frv. Ríkisstj. er tilbúin að ræða það mál, enda mun þetta frv. að sjálfsögðu fara í þá n., sem hv. þm. á sæti í. — Ég gleymdi því áðan að óska, að frv. yrði vísað til 2. umr. og hv. fjvn., þar á það að sjálfsögðu heima.