03.03.1951
Neðri deild: 80. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 856 í B-deild Alþingistíðinda. (1916)

194. mál, togarakaup ríkisins

Frsm. (Skúli Guðmundsson):

Herra forseti. Fjhn. hefur athugað frv. á fundi sínum nýlega og hefur gefið út nál., sem verður á þskj. 792, en liggur ekki fyrir enn, — það er ekki komið frá prentsmiðjunni. Ég skal með fáum orðum gera grein fyrir efni þess. Í fyrsta lagi er gerð orðalagsbreyt. á 1. gr. frv., en 2. málsgr. 1. gr. hljóðar þannig: „Heimilast henni að nota til þess lán það, er um ræðir í 1. gr. laga þessara, og taka til viðbótar þau lán, sem með þarf.“ Nefndin leggur til, að í staðinn fyrir orðin „taka til viðbótar þau lán. sem með þarf“ komi: önnur lán, sem heimilað er að taka í þessu skyni. — Því það er ekki þörf á að láta nýja lántökuheimild vera í þessari gr., vegna þess að í l., sem hafa verið sett, og í frv., sem liggur fyrir og verður að l. á þessu þingi, er heimild fyrir ríkisstj. til viðbótarlántöku; því þótti þetta heppilegra orðalag. — Hin brtt. frá n. er um það, að á eftir 2. gr. komi ný gr., sem ég vil leyfa mér að lesa upp. Hún hljóðar svo, með leyfi hæstv. forseta:

„Ríkisstjórninni er heimilt að ábyrgjast allt að 2 millj. króna lán til kaupa á gömlum togurum og til að setja olíukyndingu í þá, gegn fyrsta veðrétti í skipunum, enda fari ábyrgðin ekki fram úr 75% af kostnaðar- eða matsverði skipanna með olíukyndingu.“

Þessi brtt. er borin fram af n. í samráði við ríkisstj. Ég skal taka það fram, að 2 nm., hv. þm. V-Ísf. og hv. 2. þm. Reykv., áskilja sér rétt til að flytja viðbótartill. um breyt. á frv., og skilst mér, að þeir muni ætla að flytja slíkar till. — Fleira sé ég ekki ástæðu til að taka fram af hálfu n.