03.03.1951
Neðri deild: 80. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 856 í B-deild Alþingistíðinda. (1917)
194. mál, togarakaup ríkisins
Emil Jónsson:
Herra forseti. Þegar hér var til umr. frv. um heimild fyrir ríkisstj. til lántöku fyrir stuttu, þá bárum við hv. þm. V-Ísf. fram till. um það, að ríkisstj. yrði heimilað að ábyrgjast fyrir eigendur gömlu togaranna lán, sem þyrfti til að breyta kyndingaraðferðinni í þessum gömlu skipum, þannig að það væri hægt að setja í þá olíukyndingu í staðinn fyrir kolakyndingu. Það hafa verið færð rök að því, hversu þýðingarmikið atriði þetta er um rekstur skipanna, og sýnt fram á, að það mundi vera hægt að gera þá út þannig, en ekki öðruvísi, en viðbúið, að það þurfi flestir einhverja aðstoð ríkisins til þess að fá þetta gert. Þar sem um er að ræða a.m.k. 10 skip, sem gætu kannske komizt á veiðar með þessu móti, en hafa flest eða öll legið óarðbær undanfarið, þá er það ákaflega þýðingarmikið atriði, að hægt sé að koma þessum skipum á veiðar. Við urðum við því flm. þessarar till. þá, fyrir tilmæli ríkisstj., að taka þessa till. til baka og gengum út frá því, að þetta mundi verða athugað af ríkisstj., enda mun það hafa verið gert milli umr. En árangurinn virðist ekki hafa orðið annar en sá, að nú eigi að hjálpa með kaup á 2–3 af gömlu togurunum og koma þeim út á land og hjálpa til þess að þeir verði olíukyntir, en engar ráðstafanir eru gerðar til þess að hjálpa eigendum þeirra togara, sem eftir eru, til þess að koma þeim á veiðar. Án þess að fara að tefja umr. með langri ræðu, þá langar mig til að koma með brtt. við brtt. fjhn. á þskj. 792, sem er svo hljóðandi:
„Aftan við 2. tölulið bætist: Enn fremur er ríkisstjórninni heimilt að ábyrgjast allt að 2 millj. kr. lán fyrir eigendur eldri togara til þess að setja í þá olíukyndingu, þó ekki yfir 75% af breytingarkostnaði, með þeim tryggingum, sem ríkisstjórnin metur gildar.“
Í fyrri till. okkar var farið fram á, að þessi upphæð yrði ekki takmörkuð, en vegna þess, hve daufar undirtektir þetta hefur fengið, þá höfum við ákveðið að hafa ekki heildarupphæðina hærri en 2 milljónir og takmarka um leið, hversu mikinn hluta af breytingarkostnaðinum má ábyrgjast, eða 75%. Vil ég vænta þess, að hv. dm. og hæstv. ríkisstj. sjái sér fært að afgr. þessa till. jákvætt, því það er þýðingarmikið atriði, að þessu máli verði hægt að þoka áfram. — Vil ég leyfa mér að biðja hæstv. forseta að fá afbrigði fyrir þessari brtt.