03.03.1951
Neðri deild: 80. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 858 í B-deild Alþingistíðinda. (1920)
194. mál, togarakaup ríkisins
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Ég vil lýsa ánægju minni yfir því, að það er þó samkomulag í n. og ríkisstj. um þá till., sem þegar er flutt, um þessar 2 milljónir, sem eiga að stuðla að því að setja olíukyndingu í gömlu togarana og koma þeim út á land. Enn fremur vil ég lýsa fylgi mínu við þá till., sem flutt er nú, viðbótartill. frá hv. þm. Hafnf. og hv. þm. V-Ísf. um að bæta við 2 millj. króna, og ég álít, að það sé mjög sanngjarnt að gera þarna meira, og ég flutti þáltill. um það ásamt fleiri þm., sem nú er hjá fjvn., að skora á ríkisstj. að reyna að stuðla að því, að allir gömlu togararnir komist út. Ég vil benda hv. þm. á það í sambandi við þær athuganir, sem farið hafa fram á gömlu togurunum, að þegar talað er um gróða eða tap eða að lána ákveðna fjárhæð á mánuði til eigenda gömlu togaranna upp í taprekstur, þá hefur verið reiknað þannig, að eigendurnir hafa sagt: svo framarlega sem það væri olíukynding í gömlu togurunum, þá mundum við ekki þurfa á að halda nokkrum styrk. — Ef það er rétt, að það sé hægt að gera þessa breyt. hér heima, að setja olíukyndingu í togarana, og það kosti ekki nema 1/2 milljón, þá ætti það eftir því að dæma að borga sig á einu ári, út frá því verði, sem menn nú reikna með á fiskinum, og jafnvel með því að hjálpa í bráð.
Ég vil benda á, að framundan virðist vera ekki aðeins hækkun á síldarverði, heldur líka síhækkandi verð á fiski, og ef við breytum sem flestum af gömlu togurunum nú og höfum þá til undir síldarvertíðina, þá getur það þýtt, að þetta borgi sig fjárhagslega þegar á þessu ári; og það væri blóðugt að sleppa því tækifæri og fara svo kannske að eiga við þetta, þegar síldarvertíðin er komin. Ég held þess vegna, að hæstv. ríkisstj. ætti, úr því hún hefur brugðizt vel við þeim uppástungum, sem fram hafa komið hvað snertir að koma gömlu togurunum út á land, að taka vel undir þessa till., sem komin er fram frá hv. þm. Hafnf. og hv. þm. V-Ísf. Það er tvímælalaust þarna á ferðinni að geta notað sér möguleika, sem nú eru framundan viðvíkjandi okkar fiskveiðum, sem okkur veitir ekki af að reyna að nota í tíma. Það er ekki það mikið í húfi, þó að hæstv. ríkisstj. leyfi stuðningsmönnum sínum að samþ. þessa till., hún er þá ekki nema heimild, ef eitthvað breytist, þannig að stjórninni virtist vera fásinna að leggja í þetta, og hún þarf þá ekki að nota þessa heimild. — En ég held, að það sé rétt gert að taka á móti þessum möguleika, sem þarna er boðið upp á.