03.03.1951
Neðri deild: 80. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 861 í B-deild Alþingistíðinda. (1923)
194. mál, togarakaup ríkisins
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Herra forseti. Ég vil leyfa mér að benda á þrjú atriði í sambandi við brtt. hv. þm. Hafnf. og hv. þm. V-Ísf. Í fyrsta lagi vil ég taka það fram, að það er áreiðanlegt, að ef núverandi eigendur skipanna, t.d. í Reykjavík og Hafnarfirði, álitu, að hagkvæmast og bezt væri fyrir þá að setja olíukyndingu í skipin, væru þeir búnir að gera það eða byrjaðir á því, þar sem þeir eru það vel efnum búnir, að þeir geta gert það án ríkisábyrgðar. Þessir menn eiga um tvo kosti að velja: að láta skipin liggja með nokkru tapi eða kosta til olíukyndingar, — og hafa þeir valið fyrri kostinn. Ég tel, að ef ríkið eigi að ganga í þetta mál, sé nauðsyn á betri upplýsingum. Það liggur ekkert fyrir um málið, svo að ríkið taki ábyrgð á lánum til þess að eigendur skipanna komi þessu máli í framkvæmd. — Efa ég stórlega, að ástæða sé til að gera þetta. Í öðru lagi kom fram í ræðu hv. þm. Hafnf., að aðeins væri um 2 millj. kr. að ræða, en ekki talað um, hver væri veðréttur skipanna. Gæti svo farið, að það yrði tvöfaldur veðréttur og yrðu þetta 2 millj. kr. að viðbættum veðrétti. Það er áhættuákvörðun, hvort taka eigi sjóveðið eða sleppa skipunum og taka þetta sem hreint tap. Þetta er ákaflega áhættusamt og 2 millj. kr. ábyrgð gæti alveg eins orðið 4 millj. kr. ábyrgð. Það veit enginn fyrr en á skellur. Ég sé ekki ástæðu til að koma yfir á ríkið ábyrgðinni af endurbót þessara togara. Ef hún er nauðsynleg, efa ég ekki, að bæjarútgerðirnar og eigendur togaranna munu leysa þetta sjálfir. Það er annað mál með staði úti á landi, sem aflabrestir hafa herjað. Mér finnst ekki hægt að mæla með því, að þessi viðbótartill. verði samþ., og mæli ég eindregið gegn því að hún verði samþ.