02.11.1950
Neðri deild: 14. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 873 í B-deild Alþingistíðinda. (1947)
59. mál, vinnumiðlun
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Mér virðist, að það sé stefna hæstv. ríkisstj. með þessu frv. að minnka afskipti ríkisvaldsins af að tryggja mönnum atvinnu, og hún ætli nú að sleppa þeirri ábyrgð, sem hún ber á að miðla þessum málum. Ég verð að segja, að ef ætti að taka þá stefnu upp, þá er byrjað á öfugum enda. Það er hlutverk þessara vinnumiðlunarskrifstofa að tryggja mönnum vinnu, og það er eðlilegt, að ríkisvaldið geri sitt til að tryggja þegnunum vinnu. En hvað á ríkisstj. þá eftir, þegar vinnumiðlunarskrifstofurnar hafa verið lagðar niður? Jú. hún á eftir að banna mönnum að vinna. Vinnumiðlunin er eitt af höfuðafskiptum ríkisvaldsins af vinnu manna, og nú á að leggja niður þennan stuðning ríkisvaldsins, og hvað þá? Við, sem þekkjum til, vitum, að meginið af allri útgerðinni er nú að stöðvast, og við vitum, að þessi útgerð væri öll í gangi, ef ríkisvaldið tæki ekki gjaldeyrinn af þeim, sem að henni vinna, og úthlutaði honum til gæðinga sinna. Með þessu er verið að svipta smábæi og útgerðarmenn úti um land þeim gjaldeyri, sem þeir hafa unnið fyrir, og með því kippt fótunum undan afkomu fólksins. Ríkisvaldíð hefur tekið að sér að úthluta gjaldeyri þjóðarinnar. Ríkisvaldið hefur með þessu tekið á sig siðferðislega ábyrgð, það hefur tekið á sig þá ábyrgð, að það verður að afhenda þeim, sem að framleiðslunni vinna, aftur þann gjaldeyri, sem þeir afla, eða sjá þeim fyrir atvinnu. En hvað er nú ríkisstj. að gera? Hún er að neita þeirri ábyrgð og skorast undan að tryggja fólkinu vinnu, m.ö.o., vill halda valdinu til að banna mönnum að vinna, en sleppa ábyrgðinni að sjá þeim fyrir vinnu. Ég held, að ef á að auka á afskipti ríkisvaldsins, þá verði að vera samræmi í afskiptum þess.
Annaðhvort verður ríkisstj. að segja við fólkið: „Þið verðið að bjarga ykkur sjálf“, — þó að á því fyrirkomulagi yrðu auðvitað gallar, — eða: „Ég tek ábyrgðina, ég hef vald til að taka gjaldeyrinn, og ég tek ábyrgðina á að sjá ykkur fyrir sómasamlegri vinnu.“ Ríkisstj. getur ekki tekið gjaldeyrinn með valdi, úthlutað honum til gæðinga sinna og sagt við fólkið: „Ég vil ekkert hafa með það að gera, hvort þið hafið vinnu eða ekki.“ — En hver er afleiðingin, ef ekki er haft samræmi á þessari stefnu? — Við skulum athuga þá stefnu, sem fram kemur í þessu frv. Hún er sú, að alþýðan í landinu nýtur einskis af þeirri forjá, sem ríkisvaldið ætti að vera henni í atvinnumálum. En hvað er gert við gjaldeyrinn? Jú, hann er tekinn til auðugustu mannanna í Reykjavík. Alþýðan hefur þá forsjá, að gjaldeyririnn er tekinn af henni og honum svo aftur úthlutað til voldugustu mannanna í Sjálfstfl. með vissu tilliti til voldugra manna í Framsókn. Það þarf enginn að segja fólki á Vestfjörðum það í dag, að engin bót mundi ráðast á vandræðunum þar, ef þeir fengju að nota þann gjaldeyri, sem þeir vinna fyrir. Nei, það mundu koma tilboð frá Reykjavík og það mundi verða kapphlaup milli gæðinga ríkisvaldsins til að kaupa afla þeirra, því að þá yrðu þeir að kaupa þann gjaldeyri, sem fjárhagsráð útvegar þeim nú. Vestfirðir gætu rekið arðvænlega útgerð, ef þeir aðeins fengju að hagnýta þann gjaldeyri, sem þeir afla. Það er ekki verið að skapa hvöt til að framleiða, — nei, það er nánast refsivert. Það er ríkisvaldið, sem tekur gjaldeyrinn frá fátækri alþýðunni og fær hann í hendur heildsölunum. Með þessu er ríkisvaldið að drepa kaupstaðina úti um land, að drepa útgerðina, og stöðvun hennar stafar af þessu einu.
Nú kemur ríkisvaldið fram með frv. um að fella niður vinnumiðlun, sem ríkisvaldið átti að hafa. M.ö.o. að létta af sér þeirri ábyrgð, að ríkisstj. ætti að fylgjast með og reyna að hafa áhrif á, að almenningur hefði sómasamlega vinnu. Ég sé ekki betur en að þetta frv. sé spor í þá átt að rífa niður þá félagslegu þróun, sem varð á árunum 1934–37 og 1944–47, á þeim tíma, sem mest einkennist af róttækum áhrifum. En einkennilegt virðist, að þetta frv. er borið fram á sama tíma og öllum einokunarviðjum heildsalanna í Reykjavík er haldið föstum. Ég fæ því ekki séð, að nokkurt samræmi sé í aðgerðum ríkisstj. Það virðist eiga að rífa niður þá endurbótalöggjöf, sem sett hefur verið, á sama tíma og einokun þeirri, sem skapaðist á styrjaldarárunum og engum datt í hug að ætti að vera til frambúðar, er haldið gagnvart allri landsbyggðinni. Það er verið að smáhöggva af endurbótunum, en auka á sama tíma völd lítillar auðstéttar. Þetta er það, sem ríkisstj. er að segja með þessu frv. Ég held, að það væri æskilegt, að það kæmi fram skýr yfirlýsing frá ríkisstj., hvort það er meiningin að draga úr því, sem ríkisstj. á að gera til að tryggja fólkinu atvinnu, en herða á sama tíma einokunarvald heildsalanna í Reykjavík. Ég held, að ríkisstj. ætfi að gefa upp stefnu sína. Er meiningin að slaka þannig til, að Íslendingar fái frelsi til að vinna, verzla og framleiða, sem þeir ekki hafa? Það væri æskilegt, að skýr afstaða kæmi fram, því að til þess mun ætlazt, að nokkurt samræmi sé. Þetta frv. fer nú til nefndar, og eru í n. fleiri mál, sem snerta þessi sömu mál, stefnu ríkisstj. gagnvart atvinnuvegunum, og það væri æskilegt, að þá lægi ljóst fyrir stefna ríkisstj. í atvinnulífi þjóðarinnar. Ef ríkisvaldið er staðráðið í að svipta fólkið allri vinnumiðlun, þá verður það jafnframt að gefa því frelsi til að skapa sér vinnu. Ég vil láta þetta koma fram, ef ríkisstj. vill gera glögga sína afstöðu. Þetta er ekki aðeins sparnaðarfrv., heldur borið fram að kröfu íhaldsins og notað til að breyta um stefnu viðvíkjandi atvinnulífi þjóðarinnar.