02.11.1950
Neðri deild: 14. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 882 í B-deild Alþingistíðinda. (1951)
59. mál, vinnumiðlun
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Hæstv. forsrh. minntist sérstaklega á tvenn rök fyrir frv., önnur þau, að reynslan hefði sýnt, hve lítið vinnumiðlunarskrifstofan hefði verið notuð undanfarin ár, en það hefur þær eðlilegu orsakir, að undanfarinn áratug höfum við búið við lítið atvinnuleysi og sú stjórn, sem þá sat lengst við völd, nýsköpunarstjórnin, beitti sér að því af alefli að tryggja öllum sem mesta og bezta atvinnu. Hins vegar gerir sú ríkisstj., sem nú situr að völdum, ráðstafanir til þess að draga úr atvinnu manna um leið og hún vill leggja niður vinnumiðlunarskrifstofuna eða a.m.k. afskipti ríkisins. Ég held því, að þessi röksemd, að reynslan hafi sýnt, að ekki hafi verið þörf fyrir vinnumiðlunarskrifstofuna, verði ekki notuð til þess að réttlæta það, að leggja eigi þessa stofnun niður, þegar sýnt er, því miður, að einmitt vegna stjórnarstefnunnar er vaxandi þörf fyrir miðlun á vinnu, ávísun á vinnu, sem upphaflega var tilgangurinn með vinnumiðlunarskrifstofunni.
Hin höfuðrökin voru sparsemi fyrir ríkissjóð, og hæstv. forsrh. fannst ekki viðeigandi að gera grín að því, þó að hugsað væri um að spara ekki hærri upphæð en 100 þús. kr. Það er nú dálítið einkennilegt prinsip hjá hæstv. ríkisstj., þar sem ekki er um stærri upphæð að ræða, hvar hún kýs að taka þann sparnað. Útbýtt hefur verið skýrslu hér til okkar, sem er þskj. nr. 33. Í þessari skýrslu er eitt höfuðatriðið langur og mikill bálkur um vinnumiðlun, sérstök samþykkt nr. 88 um skipulagningu vinnumiðlunar, og þar eru till. viðvíkjandi þessu máli, þar sem m.a. er mælt svo fyrir í 2. gr. þessarar samþykktar, bls. 14: „Vinnumiðlunin skal byggð upp af kerfi af vinnumiðlunarskrifstofum, er nái um allt landið og sé undir einni miðstjórn fyrir allt ríkið.“ Þegar nú ríkisstj. er samkvæmt eigin ósk búin að fá þessa skýrslu og borga fyrir það 110 þús. kr., skýrslu, sem við gátum líka fengið ókeypis hvar sem var, á að breyta þveröfugt við skynsamleg fyrirmæli í þessari skýrslu til þess að spara. Við eigum að borga 110 þús. kr. fyrir að fá þetta uppkast, þar sem við hefðum getað aflað upplýsinga um það sjálfir ókeypis, hvernig við ættum að haga vinnumiðluninni, en svo þegar við erum búnir að borga 110 þús. kr. fyrir þetta, eigum við að spara okkur að framkvæma það og hafa ekki neina vinnumiðlunarskrifstofu. — Ég nefni þetta sem dæmi um það, hvernig ríkisstj. fer aftan að hlutunum.
Svo vil ég segja eitt, því að hæstv. forsrh. sagði, að bæirnir gæfu kostað þetta. Hvað geta bæirnir hér á Íslandi staðið undir miklu til frambúðar? Er til nokkurs að hrúga stöðugt meira og meira ofan á bæina? Ég tala ekki um Reykjavík, því að hún er undantekning, heldur á ég við bæi úti um land. Ég held nú, að það væri nær, að ríkið tæki á sig ofurlítið af þeim byrðum, sem bæirnir verða nú að bera, en ríkið sparar nú á þann hátt að skella byrðunum ofan á bæina, sem eru að kikna undir þeim byrðum, sem á þeim hvíla. Það er nú orðið mjög almennt atvinnuleysi í mjög mörgum kaupstöðum úti um land, og það verður sannarlega að teljast nokkuð kalt af ríkinu að ætla sér að spara við sig þannig, svo að segja á þeirra kostnað.
Hæstv. ráðh. minntist á, að ég hefði sagt, að það mundi líklega verða næsta skrefið hjá ríkisstj. að banna mönnum að vinna. Ég sagði það ekki, heldur sagði ég, að það væru aðgerðir ríkisvaldsins, sem bönnuðu mönnum að vinna og framleiða. Ég skal nefna sem dæmi, að fyrir tveimur árum framleiddum við íslendingar 30 þúsund tonn af freðfiski, og þessi vinna er ein undirstaðan undir atvinnulífi fjölda kaupstaða um allt land. Með ráðstöfunum ríkisvaldsins hefur þessi framleiðsla verið sett niður í 15 þúsund tonn á s.l. ári, með samræmdum ráðstöfunum ríkisstj. og bankavaldsins, af hálfu ríkisstj. með því að banna mönnum frjálsa verzlun með þessa framleiðslu, sjálfstæða markaðsleit og innkaup í staðinn og af hálfu bankanna með því að neita framleiðslunni um lán út á meira en 15 þús. tonn. Það hefur þannig verið skorið niður úr 30 þús. í 15 þús. tonn á ári. Það er enginn efi á því, að það er hægt að selja og kaupa inn vörur aftur til Íslands fyrir eins mikið og áður var gert, 30 þús. tonn, en það þarf mun meiri atorku við það en áður og það þarf að fara fleiri leiðir til þess að ná í verðmæti fyrir þennan útflutning en áður þurfti, það þarf að leyfa einstaklingum að hafa miklu óbundnari hendur um sína starfsemi í þessum efnum en verið hefur. Hvað gerir hæstv. ríkisstj. í þessu? Með því að fella allar þær till., sem fram hafa komið um það að rýmka til í þessum efnum, bannar hún mönnum þessa framleiðslu, bannar mönnum að flytja inn vörur, þó að hún gæti haft allan hemil á verðlagi í þessu sambandi. Og það er engum vafa bundið, að það, sem gerir nú þorpum úti um allt land langerfiðast að draga fram lífið, það er þessi dauða hönd frá valdhöfunum hér í Rvík, sem lögð er á þeirra starfsemi. Þetta kalla ég að banna að vinna. Hins vegar skal ég ekki gera þetta mál sérstaklega að umtalsefni. Ég vildi aðeins leiðrétta þann misskilning, sem kom fram í ræðu hæstv. forsrh.
Ég vil að lokum benda á eitt atriði í 6. gr. frv., sem ég skil ekki fyllilega og álít ekki æskilegt, en þar stendur m.a.:
„Skulu þrír þeirra kjörnir af hlutaðeigandi bæjarstjórn með hlutfallskosningu, og skal einn þeirra sérstaklega kjörinn sem formaður stjórnarinnar.—“
Ég get ekki skilið þetta fullkomlega. Ef kjósa skal 5 menn og 3 þeirra með hlutfallskosningu, og einn þeirra sérstaklega sem formann stjórnarinnar, þá hlýtur annaðhvort að vera, að af þessum 3 mönnum, sem kosnir eru með hlutfallskosningu, sé einn tilgreindur sem formaður, eða þá að sá hljóti formannsstöðuna, sem fær flest atkvæði. Eða á máske að kjósa formanninn sérstaklega eftir á? Það er ekki hægt að kjósa formann með hlutfallskosningum, en það er hægt að ákveða, að einn þessara þriggja skuli vera formaður, t.d. sá efsti á listanum. Þetta er óljóst orðalag og gæti valdið misskilningi og deilum, og því æskilegt, að nefndin athugi þetta júrídíska atriði og fái úr því skorið, ef mögulegt er.