14.12.1950
Neðri deild: 40. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 890 í B-deild Alþingistíðinda. (1961)

59. mál, vinnumiðlun

Frsm. 2. minni hl. (Jónas Árnason):

Herra forseti. Þó að við hv. 3. landsk. skilum ekki sameiginlegu nál., þá greinir okkur ekki á í skoðunum. Ég legg til, að frv. þetta verði fellt. Með frv. er gert ráð fyrir, að ríkið hætti stuðningi og að greiða kostnað við vinnumiðlun í landinu, en slíkt skuli greitt af bæjarfélögunum, ef slíkri starfsemi er á annað borð haldið uppi. En það eru engar skynsamlegar ástæður sjáanlegar fyrir þessari breytingu. Þegar atvinna var enn næg í landinu, fengu vinnumiðlunarskrifstofurnar góðan stuðning frá ríkinu, en nú eru aftur komnir þeir tímar, að atvinnuleysið ógnar verkalýðnum, og þá er lagt fram á Alþ. frv. um, að ríkið svipti þessar stofnanir þeim styrk, er þær nutu á tímum nægrar atvinnu, og lami með því móti stórlega starfsemi þeirra. Ég sé því engin rök, sem mæli með frv. þessu, og legg til, að það verði fellt.