15.12.1950
Neðri deild: 42. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 903 í B-deild Alþingistíðinda. (1972)

59. mál, vinnumiðlun

Forseti (SB):

Mér hefur borizt frá hv. 5. þm. Reykv. brtt. við 6. gr. frv. um, að orðin „stjórnarmanna og“ í síðustu málsgr. falli niður. Hefur hv. þm. lýst þessari brtt. sinni. Hún er of seint fram komin og þar að auki skrifleg. Þarf tvöföld afbrigði til þess að hún megi komast hér að.