15.12.1950
Neðri deild: 42. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 918 í B-deild Alþingistíðinda. (1982)
59. mál, vinnumiðlun
Frsm. 1. minni hl. (Gylfi Þ. Gíslason):
Herra forseti. Mig langar til að segja fáein orð í tilefni af ræðu hv. 7. þm. Reykv., en hún mótaðist nokkuð af því, að hann heyrði ekki síðari hluta umræðnanna um þetta mál í gær. Höfuðrök hv. þm. fyrir málinu voru þau, að það væri óeðlilegt, að bæjarskrifstofurnar hefðu ekki meiri hluta í stjórn vinnumiðlunarskrifstofunnar, og enn fremur hitt, að óþarft væri, að tvær vinnumiðlunarskrifstofur væru hér í bænum. Það sem hv. þm. sagði var rökstuðningur fyrir gömlu frv. um vinnumiðlun, sem flutt var af hv. þm. N-Ísf. og náði ekki fram að ganga; en efni þessa frv. er um allt annað og meira. Efni þess er fyrst og fremst það að afnema rétt ríkisvaldsins til þess að skipa fyrir um vinnumiðlun, og er það stærsta sporið, sem stigið yrði aftur á bak með samþykkt þess. Á þetta atriði minntist hv. þm. hins vegar ekki. Við Alþfl.- menn vorum andstæðingar hins fyrra frv., en vegna þessa ákvæðis erum við þó enn andstæðari þessu frv. Ég get að vissu leyti skilið, að það séu óskir bæjarstjórnanna að hafa meirihluta í stjórnum vinnumiðlunarskrifstofanna og kalla þau rök, sem að því hníga, ekki fráleit. En að afnema afskipti ríkisvaldsins af þessum málum, það er hins vegar fráleitt, og þess finnast ekki dæmi meðal nokkurra nágrannaþjóða okkar, að ríkisvaldið sé afskiptalaust um þessi mál. Ég hef leitað upplýsinga um það í félmrn., og sá háttur, sem hér á upp að taka, væri einsdæmi í nálægum löndum, og hin ríkjandi skoðun er þar alls staðar sú, að eðlilegt sé og nauðsynlegt, að ríkið hafi þarna hönd í bagga.
En í tilefni af ræðu hv. 7. þm. Reykv. og afstöðu hans vil ég leyfa mér að spyrja hann og hæstv. forsrh., hvort það væri hugsanlegt, að fallið yrði frá því að fylgja þessu frv. fast eftir, ef samkomulag gæti orðið um lausn málsins á svipuðum grundvelli og lagt var til í frv. hv. þm. N-Ísf. á sínum tíma. Það hlýtur að vísu eitthvað að hafa gerzt síðan það frv. var á döfinni, fyrst það er nú nauðsynlegt að stíga enn stærri spor aftur á bak en þar var gert ráð fyrir; en eins og kunnugt er, þá var Framsfl. á móti því og átti sinn þátt í að það var fellt. En væri nú gerð þessi breyting á lögunum, að bæjarstjórnirnar fengju meiri hluta í stjórnum skrifstofanna, þá vildi ég spyrja, hvort ekki gæti orðið sú stefnubreyting í málinu, að ákvæðið um að afnema afskipti ríkisvaldsins yrði numið burt, og málið þannig leyst í meiri friði en nú horfir.
Þá vildi ég enn fremur, að gerð yrði úrslitatilraun til þess að sameina hinar tvær stofnanir, sem starfa að vinnumiðlun í Rvík og ég játa, að er óeðlilegt að séu tvær, án þess þó að öll afskipti ríkisins yrðu felld niður. Það hafa verið gerðar tilraunir til þess, en ég tel ástæðu til að gera nú í því efni úrslitatilraun, og fresta þá meðferð þessa máls á meðan. Allar líkur eru til þess, að með samþykkt þessa frv. verði mjög dregið úr vinnumiðlun í landinu; en það er sérstaklega alvarlegt mál nú, þegar að kreppir í atvinnu- og fjárhagsmálum þjóðarinnar.
Þessu frv. hefur líka að vonum verið harkalega andmælt af verkalýðsfélögum og bæjarstjórnum ýmissa kaupstaða, svo sem Hafnarfjarðar, Ísafjarðar, Siglufjarðar o.fl., og allt eins af hálfu Sjálfstfl.-manna sem annarra í þessum bæjarstjórnum. Enn fremur hlýtur það að skipta verulegu máli, að stefna frv. er þveröfug við það, sem tíðkast í nágrannalöndum okkar, og í fullu ósamræmi við samþykktir um þessi mál, sem Íslendingar hafa staðið að á alþjóðavettvangi. Þetta eru allt svo veigamikil atriði, að ég skil ekki, hvernig unnt er að komast fram hjá þeim og taka málið til frekari athugunar.