14.11.1950
Efri deild: 19. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 944 í B-deild Alþingistíðinda. (2058)

89. mál, verðlag

Flm. (Rannveig Þorsteinsdóttir):

Herra forseti. Með þessu frv. er lagt til að gera þrjár breyt. á l. um verðlag, verðlagseftirlit og verðlagsdóm. — Það hefur sýnt sig, að fornsölur hafa haft vörur á boðstólum svo að segja nýjar, sem eru ófáanlegar annars staðar, og við verði, sem annars staðar er óþekkt. Sumpart er þetta verð svona hátt vegna þess, að fornsölurnar kaupa vörurnar hærra verði en heildsöluverð þeirra er, og sumpart vegna þess, að þær leggja meira á en venjulega álagningu. Ég vil aðeins leyfa mér að nefna hér eitt dæmi: Gólfteppi, sem var fyrir nokkrum mánuðum keypt á 1600 kr., er nú til sölu í fornverzlun á 4200 kr., og þannig eru mörg dæmi um vörur, sem fornverzlanir hafa á boðstólum — stundum á þreföldu verði. Það mun vera nokkur vafi á því, hvort verðlagsákvæðin nái til þessara verzlana, en það er að minnsta kosti enginn vafi á því, að þau ná ekki til þess, að hægt sé að gera ráðstafanir til að hindra, að þær geti haft til sölu þessar óheyrilega dýru vörur og þannig aukið ágóða sinn og álagningu, því að það er gefinn hlutur, að ef keyptur er hlutur á 2000 kr. og síðan seldur með skaplegri álagningu, þá hefur fornsalan minna upp úr því en ef hún keypti hann á 3000 kr. og seldi siðan. — Þá miðar 2. gr. frv. að því að útiloka, að vefnaðarvara, sem ætluð er til sölu í verzlunum, sé seld til iðnaðar, nema til þess sé ætlazt, og 3. gr. er til lagfæringar á hegningarákvæðum l., sem margir hafa séð að þurfa lagfæringar við.

Ég vona, að þessar till. nái því, sem til er ætlazt, og leyfi mér að vænta þess, að frv. verði vísað til 2. umr., og þar sem frv. um verðlag, verðlagseftirlit og verðlagsdóm var í allshn. á síðasta ári, geri ég það að till. minni, að málinu verði vísað þangað að lokinni þessari umr.