27.10.1950
Neðri deild: 11. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 28 í B-deild Alþingistíðinda. (206)

4. mál, gjald af innlendum tollvörutegundum

Einar Olgeirsson:

Herra forseti. Ég hef tekið eftir því, að það hefur orðið svo, sem mun líklega vera af vangá, að þetta frv. hefur ekki farið til n. til athugunar milli 1. og 2. umr., og finnst mér því rétt — þó að það komi kannske ekki til með að skipta miklu máli um afgreiðslu þess — að það fái venjulega, þinglega meðferð. Geri ég að till. minni, að frv. verði vísað til hv. fjhn. milli 2. og 3. umr., úr því það var ekki gert eftir 1. umr.