15.12.1950
Efri deild: 41. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 954 í B-deild Alþingistíðinda. (2100)

127. mál, skattgreiðsla Eimskipafélags Íslands

Frsm. meiri hl. (Gísli Jónsson):

Herra forseti. Út af framkomnum aths. vil ég segja nokkur orð. — Hv. 1. þm. Eyf. lýsti því, að hann væri raunverulega andvígur skattfríðindunum. En hann mundi hins vegar samþ. frv. nú, m.a. vegna þess, að félagið yrði annars að greiða eignaraukaskatt fyrir hluthafa og hann nokkuð þungan á þessu ári. Ég mun ekki ræða þessi atriði og læt nægja fylgi hans við frv. og er honum þakklátur fyrir yfirlýsingu hans.

Hv. 4. þm. Reykv. lýsti sig andvígan skattfríðindunum sumpart vegna þess, að þau skilyrði, sem félaginu hafi verið sett, hafi ekki verið uppfyllt og ekki sé trygging fyrir því, að ágóði félagsins verði notaður til almenningsheilla —, og minntist hann á það, að ágóðinn af leiguskipunum hefði átt að renna í ríkissjóð — eða þá ríkið að öðrum kosti að verða hluthafi í félaginu. — Ég get ekki upplýst nú, hvort þessi skilyrði hafi verið uppfyllt nú eða ekki. Ég vil benda hv. þm. á, að Alþingi á að sjá um, að eignir félagsins séu notaðar til almenningsheilla. Félagið greiðir nú 4% arð til hluthafa. Auðvitað er hægt að svipta þessu og taka skattfríðindin af. Svo að ég get ekki séð, að hv. þm. geti bundið fylgi sitt við þá ástæðu að ætla, að þetta verði ekki gert. Ef það sannast, að E.Í. hafi ekki notað þetta fé til almenningsheilla, þá getur Alþingi gert það, sem því sýnist. Hitt atriðið, að arðurinn renni til félagsins, getur ekki heldur verið nein ástæða. Ef svo væri ekki, þá er ekki nema um tvennt að ræða: 1) Félagið verði gert upp vegna taps á eigin skipum. 2) að láta ríkið verða hluthafa í félaginu, — og það er þetta, sem hv. þm. vill. — Ber skipaútgerð ríkisins sig svo vel, að það sé æskilegt, að ríkið geri út fleiri skip? — Vegna þessara fríðinda, sem félagið hefur notið frá upphafi, þá er nú svo komið, að það á þennan glæsilega skipastól, sem siglir meira að segja fyrir erlend skipafélög og aflar þar með Íslandi gjaldeyris og ber uppi heiður og nafn Íslands á erlendum höfnum. Allt þetta væri útilokað, ef fylgt væri stefnu þeirra, sem afnema vilja skattafríðindin, því að þá væri félagið í raun og veru, eins og flest önnur félög, sem rekin hafa verið sem fyrirtæki einstaklinga, steindautt, vegna þess að okkar skattalög bera í sér dauða hvers fyrirtækis, sem þau ná til. En það er það, sem þessir menn stefna að, sem vilja ekki láta Eimskipafél. Ísl. njóta skattafríðinda áfram, að einstaklingafyrirtæki, hvort sem þau eru rekin í sambandi við einstaka menn eða sem hlutafélög, geti ekki safnað fé og gegnt sínu starfi, heldur fari þetta allt yfir á ríkið og ríkissjóð, þannig að það sé ríkið, sem sé atvinnurekandinn og forsjónin í þessum hlutum í landinu. Þetta er stefnumál, og af þessari stefnu er afstaða hv. 4. þm. Reykv. sprottin. Ég hefði talið, að miklu fremur hefði verið ástæða til að viðurkenna hagsýni Eimskipafél. Ísl. og lofa því að starfa áfram, af því að það hafði hugsun á því að leigja skip á stríðstímanum, til þess að jafna hallann á rekstri sinna eigin skipa. Því að annars hefði Eimskipafél. Ísl. orðið að gefa upp baráttuna fyrir að halda rekstrinum í góðu horfi. Og því má ekki heldur gleyma í sambandi við Eimskipafél. Ísl., að það hefur á tvennum ófriðartímum, 1914 til 1918 og 1939 til 4945, verið sá aðilinn, sem hefur haldið uppi sambandi milli Íslands og útlanda, þegar svo að segja engir aðrir fengust til að gera það, og það þannig, að þessa þjóð hefur ekki skort vörur og við höfum getað lifað nokkurn veginn sem menningarþjóð, jafnvel þó ófriður væri árum saman. Nú vilja sumir hv. þm. launa þetta hlutverk, sem félagið leysti af hendi á hættutímum og erfiðleikatímum, með því að lama þetta félag svo fjárhagslega, að það verði að draga stórkostlega saman sinn rekstur. — Ég vil geta þess, að óbeinlínis greiðir Eimskipafél. Ísl. stórkostlegar fjárfúlgur í ríkissjóðinn í sambandi við ýmis gjöld, sem renna í ríkissjóð, sem ríkissjóð munar mjög mikið um og meira en nokkurn tíma tekjuskattinn af félaginu. Því að væri það vængstýft eins og hér er ætlazt til af sumum hv. þm., þá mundi að sjálfsögðu umsetning þess, fjármagn og geta um leið minnka svo mjög til að skapa mönnum atvinnu og til þess að afla gjaldeyris fyrir þjóðina og til þess að bera uppi með heiðri nafn landsins erlendis, eins og það jafnan hefur gert frá fyrstu byrjun síns starfs.

Hv. 1. landsk. þm. sagði, að úr því að það væri verið að bera þetta mál, sem hér liggur fyrir, fram á hverju þingi, þá hefði verið eðlilegast að vera ekki að takmarka tímann, sem þetta gilti fyrir.

Ég er eiginlega alveg á sömu skoðun. Ég álít, að þetta hefði ekki átt að gilda aðeins um tvö ár, heldur um ótiltekinn tíma, svo lengi sem Eimskipafélag Ísl. sinnir þessu hlutverki, sem það gerir, og greiðir ekki nema 4% í arð og ver ekki sínum hagnaði nema til almenningsheilla. Og ég mundi hafa flutt brtt. um þetta nú, ef ekki væri það á móti því, að það kostaði það, að frv. yrði þess vegna að fara aftur til hv. Nd., svo fremi að sú brtt. væri samþ. En ég vil ekki tefja fyrir málinu, og treysti því, að það nái fram að ganga. Ég treysti því, að svo margir verði unnendur Eimskipafél. Ísl. á Alþ. framvegis, að þessu máli verði aldrei hætta búin, svo oft sem það kemur til afgreiðslu þingsins.

Út af aths. frá hv. 1. þm. N-M., sem lýsti hér yfir, að hann væri á móti málinu, og gerði þá fyrirspurn, hvort félagið uppfyllti enn þá skilyrðin, sem sett eru í 3. gr. l., þ.e. að flytja ákveðinn hluta námsmanna ókeypis milli landa, og hvort n. hefði ekki kynnt sér þetta, vil ég taka fram, að málið var ekki tekið til athugunar í hv. fjhn. fyrr en í dag. Það hefur ekki verið tími til þess að leita slíkra upplýsinga. Mér þykir hins vegar líklegt, að með breyttu viðhorfi í landinu, síðan þetta ákvæði var sett, þá hafi einnig það breytzt, að Eimskipafél. Ísl. hafi ekki gert þetta — hvorki kannske haft aðstöðu til þess eða jafnvel- að ekki hafi verið þörf fyrir að það væri gert, á sama hátt sem þörfin var fyrir þetta á þeim tíma, sem þetta ákvæði var sett. Þó er mér ókunnugt um, nema félagið geri þetta enn að einhverju leyti. Og um það má fá upplýsingar. En sé ekki þetta skilyrði uppfyllt, þá finnst mér ekkert á móti því, að það sé á valdi fjmrh. að meta það til fjár, hvað þetta sé mikið atriði, sem þannig er óuppfyllt, og láta Eimskipafél. greiða fyrir það. Það getur ekki gert ákaflega mikinn mismun, hvernig þessu er farið nú. Ég vil í sambandi við þetta benda á, að í mörg undanfarin ár hefur Eimskipafél. Ísl. ekki haft í raun og veru annað farþegaskip í förum en Brúarfoss. Því að hin skipin eru flest ekki farþegaskip, þó að þau geti tekið nokkra farþega, og á síðasta sumri að nokkrum hluta var Gullfoss í förum hjá félaginu sem farþegaskip. — En n. er ekki kunnugt um, að hve miklu leyti þetta skilyrði hefur verið uppfyllt.

Hitt atriðið, sem hv. þm. spurði um, eftir hvaða reglum Eimskipafél. Ísl. afskrifaði sínar eignir, þá óskaði hv. þm. alveg sérstaklega upplýsinga um það í sambandi við það, sem félagið á að greiða í skatt vegna skipanna og annarra eigna. Og hv. þm. telur, að þetta atriði sé undirstaða þess, hvort þetta mál eigi fram að ganga. Ég upplýsi, að það er ekki afstaða meiri hl. n. Það hefur engin áhrif á mína afstöðu til málsins. Ég hefði hins vegar álitið rétt, að Eimskipafél. Ísl. hefði ekki heldur átt að greiða þennan eignaraukaskatt,.en geri það ekki að neinu ágreiningsatriði, enda er það eftir ákvæðum í öðrum lögum. En það hefur engin áhrif á mína afstöðu til málsins, hvort Eimskipafél. Ísl. greiðir hann. Það er og verður þjóðarblessun, að Eimskipafél. Ísl. fái að starfa og inna sitt hlutverk af hendi, án þess að vera vængstýft fjárhagslega. Það hefur sýnt sig öll undanfarin ár, að félagið hefur rækt þetta hlutverk vel. Og það hefur sýnt sig, að það er eina gufuskipafélagið í landinu, þrátt fyrir það þó önnur hafi komið upp, sem hefur getað staðizt öll þessi áföll, sem það hefur gert einmitt fyrir þau skattfríðindi, sem Alþ. hefur veitt því. Öll önnur félög, sem hafa komið hér upp til að inna af hendi sama hlutverk, eru horfin að meira eða minna leyti. Og hversu stórt atriði gæti það ekki orðið fyrir Íslendinga, ef siglingar gætu orðið með stærstu atvinnugreinum landsmanna með fjölgun á skipum flotans, svo að við gætum þannig tekið inn mikið af erlendum gjaldeyri. Hvaða atriði er þetta fyrir Norðmenn? Það sama gæti orðið hjá okkur og hjá Norðmönnum í þessu efni, svo framarlega að ekki sitji á Alþ. of margir skammsýnir menn á þessum sviðum. En flestallar tilraunir til þess að koma upp flutninga- og farþegaskipum hér á landi hafa orðið til einskis, vegna þess að þegar vel hefur gengið fyrir slíkum fyrirtækjum, hefur allur ágóðinn verið tekinn af þeim, og þegar illa hefur gengið fyrir þeim, hafa þau ekki haft í neitt hús að venda, en orðið að gefast upp. Þetta er nú sú raunasaga.

Ég get þess vegna ekki upplýst það, sem hv. þm. spurði hér um. Meiri hl. n. þótti ekki ástæða til að tefja málið til þess að fá þessar upplýsingar, vegna þess m.a., að það hefði ekki haft nein áhrif á afstöðu þess nefndarhluta til málsins. Ég hygg því, að þær aths., sem fram hafa komið, séu nægilegt svar.