12.12.1950
Neðri deild: 37. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1008 í B-deild Alþingistíðinda. (2133)
88. mál, aðstoð til útvegsmanna
Finnur Jónsson:
Frv. þessu hefur nú verið útbýtt með breytingum á þessum fundi. Ég hef ásamt hv. 2. landsk. lagt nokkrar brtt. inn á skrifstofu Alþingis nú eftir hádegið, en mun óska eftir að lýsa brtt. nú, ef það er ætlunin að ljúka umræðunni. Þar sem þessu frv. var ekki útbýtt fyrr en nú, er eini kosturinn að leggja fram brtt. nú. (Forseti: Ég hygg, að ræða megi þessar brtt. sem skrifl. Þó hafa verið gerðar ráðstafanir til að hraða þeim sem mest úr prentun.)
Við 2. umr. þessa máls í gær rakti bæði ég og hv. 2. landsk. þær brtt., sem L.Í.Ú. óskaði, að gerðar yrðu á frv. þessu, og ég vil nú leyfa mér að skýra þær nánar. Ég leyfi mér þá að skýra frá því, að það hafa komið fram kvartanir frá L.Í.Ú. vegna þeirra breytinga, sem frv. hefur tekið. — Upphaflega var gert ráð fyrir því í frv., að lánstíminn færðist aftur um 3 ár hjá stofnlánadeildinni og fiskimálasjóði. Landssambandið taldi sig samþykkt þessu. En nú á að breyta þessu og jafna því niður á það, sem eftir er lánstímans. Geta menn síðan talið það líklegt, ef erfiðleikarnir eru teknir bókstaflega, að útgerðarmenn geti staðið í skilum á afborgunum og vöxtum til stofnlánadeildarinnar og fiskimálasjóðs, sem er enn þá hærra en undanfarin ár? Þá skal þess líka gætt að reikna með 6% dráttarvöxtum í viðbót. Við teljum, að samþykkt L.Í.Ú. sé á fullkomnum rökum reist, og þess vegna leggjum við til, að frv. verði breytt í sitt upprunalega form, þannig að lánstíminn lengist um 3 ár. Með þessu móti yrði tekið tillit til sameiginlegra óska Landssambandsins, að ekki séu þegar í byrjun hækkaðar afborganir, svo að útgerðarmenn geti ekki staðið í skilum. Ég held þetta sé langhyggilegasta leiðin bæði fyrir útgerðarmenn og lánsstofnanir. Því að það sér hver heilvita maður, að það er ekki lítils virði fyrir lánsstofnanirnar, að staðið sé í skilum með lánin. Ég held, að hv. Alþingi gerði vel, ef það athugaði þetta. Ég hygg, að þarna fari saman hagsmunir útvegsmanna og lánsstofnana. Það er sjálfsagt ágætt fyrir lánsstofnanir að geta innheimt lánsfé sitt með skjótum hætti, en einnig afleitt að setja slík skilyrði, sem ekki verða uppfyllt, — og verður það að teljast mjög óhyggilegt. — Þá kom einnig fram ósk um það, að útgerðarmenn og útgerðarfélög, sem erfitt eiga með að standa í skilum með afborganir og vexti af lánum stofnlánadeildarinnar, gætu fengið nokkurn frest.
Ég lýsti við 2. umr. þessa máls, að þessi tilmæli væru sett fram vegna eindreginna áskorana útgerðarmanna á Norðurlandi, sem komizt hafa af án aðstoðarlánanna, en eiga nú erfitt með að standa í skilum með vexti. Í samræmi við þetta leggjum við til, að á eftir 4. mgr. 3. gr. komi: „Heimilt er stjórn skuldaskilasjóðs að ákveða, að greiðslufrestur skv. 1. mgr. þessarar greinar skuli einnig veittur þeim útgerðarmönnum, sem síldveiðar stunduðu fyrir Norðurlandi 1945–4950 og hafa ekki fengið aðstoðarlán, enda telji sjóðsstjórnin þá eiga erfitt með greiðslu“. — Það verður sem sé lagt í vald sjóðsstjórnarinnar, hvort þessi aðstoð verði veitt eða ekki. Þegar tillit er tekið til, að flestir þessara manna hafa gert út í 6 síldarleysissumur, þá sýnist ekki ósanngjarnt, þótt þessi aðstoð verði veitt. — Þá leggjum við til, að 2. mgr. þessarar greinar, sem verður 3. mgr. 3. gr., verði svohljóðandi: „Dráttarvextir af vangoldnum afborgunum af lánum Sfofnlánadeildar og Fiskveiðasjóðs skulu ekki reiknast fyrir þann tíma, sem liðinn er, en frá gildistöku þessara laga skulu dráttarvextir reiknaðir 0.5% af vangoldinni upphæð fyrir hvern mánuð, sem greiðslan dregst“. Það er því gert ráð fyrir skv. þessari till., að haldið verði áfram að reikna dráttarvexti framvegis, en sú breyting gerð, að fyrir þessi 3 ár, sem vanskil hafa átt sér stað, verði ekki reiknaðir dráttarvextir. — Það er vitað, að allur fjöldi útgerðarmanna hefur tapað, og þá sýnist ekki ósanngjarnt, þótt bankarnir reikni sér ekki meiri vexti en af venjulegum lánum. Þetta er alveg samkv. óskum L.Í.Ú. og gengur ekki á rétt eins eða neins, — en mundi hins vegar koma að tilætluðum notum. — Við 5. gr. er það skilyrði fyrir aðstoðinni, að auglýsing sé birt í Lögbirtingablaðinu. Við þessa gr. leggjum við til, að bætt sé: „Heimilt er þó stjórn skuldaskilasjóðs að veita undanþágu frá ákvæði þessarar greinar um auglýsingu, telji hún, að umsækjandi hafi gert fulla grein fyrir fjárhag sínum.“ Þessi till. er einnig tekin eftir eindregnum óskum L.Í.Ú., og er það lagt í vald stjórnar skuldaskilasjóðs að auglýsa í Lögbirtingablaðinu eða ekki. Þar sem hér er ekki beinlínis um gjaldþrotaráðstafanir að ræða,. þá ætti að vera útlátalaust að setja þetta ákvæði í lögin. Ég held, að ekki séu hagsmunir neins fyrir borð bornir, en hins vegar útgerðarmönnum greiði gerður.
Nú — við fyrri umr. þessa máls vakti ég og fleiri máls á því, að útlit væri fyrir, að þessar aðgerðir kæmu að sáralitlum notum fyrir ýmis sjávarþorp og aðra staði úti á landi, ef skuldabréfin fengju ekki meira gildi en nú er ætlazt til. Hæstv. atvmrh. gaf þá yfirlýsingu, að hann hefði grun um, að líklegt væri, að lánsstofnanir vildu taka skuldabréfin til greiðslu á nokkuð annan hátt en í frv. segir. — Þetta tel ég ófullnægjandi, en ég mun þó ekki flytja brtt., þar sem ég vona, að framkomin yfirlýsing hæstv. atvmrh. megi hafa enn meira gildi en hún gaf vonir til. — Nú er hins vegar ekki víst, að hann verði í þessu embætti allan þennan tíma, sem skuldabréfin eru í gildi eða í 15 ár —, en vonandi verður það þá í erfðaskrá hans til eftirmannsins, að skuldabréfin fái að halda sínu sama gildi. Ég vil þó benda á það, að þau munu setja fjölda fyrirtækja í erfiða aðstöðu fjárhagslega, svo að ekki sé meira sagt. — Síðar skal ég lýsa brtt. okkar við 14. gr. Ég gat þess í gær, þegar frv. þetta kom fram, að stjórn skuldaskilasjóðs skyldi vera skipuð 3 mönnum, einum frá hvorum banka og einum frá ríkisstj., en nú er ætlunin að hafa mennina 4, og er mér sagt, að viðbótarmaðurinn eigi að vera frá Framsfl. Nú er fjarri því, að ég sé að amast við því, að hv. þm. N–Þ. komist í stjórn skuldaskilasjóðs. Ég hef trú á því, að hann geti komið þar að miklu gagni. Fyrst það á að fjölga á annað borð í n., þá er langeðlilegast, að n. verði skipuð 5 mönnum og fengi þá stjórn L.Í.Ú. einn mann. Ef gert er rað fyrir, að tveir verði frá bönkunum og 2 frá ríkisstj., þá er óhætt að segja, að þar sé kross undir og ofan á og vel séð fyrir hagsmunum beggja, bæði ríkis og bæja. Og þótt 5. manni yrði bætt við og L.Í.Ú. fengi hann, þá verður ekki betur séð en hagsmunum ríkis og bæja sé vel borgið. — Enn fremur vil ég segja það, að þetta mundi fremur flýta fyrir störfum n., þar sem þarna mundi bætast við maður vel kunnugur útgerðarmálum og útgerðarmönnum. Þótt vizkan í þessari n. sé mikil fyrir, ætti það ekki að skaða, þótt einn fróður bættist við. Nú er ætlazt til, að atkv. formanns skeri úr málum, en auðvitað mundi það ákvæði falla brott, ef þessi breyt. yrði samþ.
Þá vil ég segja það út frá þessum till. í heild, að ég tel, að þær hafi ekki í för með sér nein útgjöld fyrir ríkissjóð og gangi ekki á rétt eins eða neins, en á hinn bóginn gera útvegsmenn mun ánægðari, sem getur þó ekki talizt nein ánægja fyrir útgerðarmenn að láta framkvæma, þótt þetta sé orðað svo, að þetta sé aðstoð. Auðvitað vildu útgerðarmenn miklu heldur geta staðið í skilum, en nú verður ekki komizt hjá, að ríkið styrki þennan atvinnuveg, þótt bezt væri, ef hann þyrfti á engum styrkjum að halda. — Ég held, að ríkisstj. gerði vel í því að athuga, hvort hún geti ekki fallizt á þessar till. Þær eru ekki lagðar fram af neinni óvild, heldur af þeim, sem vilja, að þessi mál fái sem skynsamlegasta athugun.
Þá læt ég útrætt um tillögurnar, en vil spyrja hæstv. atvmrh. um framkvæmd þessa máls. Á fundi L.Í.Ú. komu fram raddir um það að taka upp ákvæði, að við mat á skipum, sem mörgum er heldur illa við, verði tekið tillit til lögboðinna afskrifta. Þó mun vera erfitt að setja ákvæði í lögin vegna þess, að mörg skipin fara mjög lækkandi í mati, og þá einnig, að skip hafa hækkað í verði. Þótt ekki séu samþ. nein ákvæði í till. um þetta, þá mun sú nefnd, sem starfar, verða að fara með þessi mál. Ekki komu ákveðnar till. frá L.Í.Ú. um þetta. En ástæðan fyrir því, að menn töldu rétt að afskrifa skipin niður, var sú, að menn héldu, að útvegsmenn stæðu ekki undir skipum sinum, ef matið væri líkt og kaupverð. — Nú spyr ég hæstv. atvmrh., hvort rætt hafi verið um þetta milli hans og skilanefndarinnar, hvernig mati á þessum eignum verði hagað, — hvort þetta verður lagt undir vald skilanefndarinnar eða undir vald matsmanna skipanna, og væri þá ekki óeðlilegt, að matsmennirnir fengju fyrirmæli um, hvernig þeir ættu að haga sínu verki. — Ég skal þá ekki fjölyrða frekar um þetta, en ítreka tilmæli mín um það, að till. þessum verði tekið með velvild af hæstv. ríkisstjórn.