12.12.1950
Neðri deild: 37. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1015 í B-deild Alþingistíðinda. (2139)

88. mál, aðstoð til útvegsmanna

Finnur Jónsson:

Ég vænti þess af hæstv. ráðh., þegar l. þessi koma til framkvæmda, að hann hlutist þá til um, að skuldaskilasjóðsstjórnin fylgi vissum reglum um mat á skipunum og framkvæmdin verði í samræmi við þær óskir, sem fram kunna að koma á fundi Landssambandsins. Ég hef lýst því, að ég mundi ekki flytja um þetta brtt., því að mér er ekki ljóst, hvernig hægt væri að koma þessu fyrir í lagabálki, og vildi ég flytja þessa ósk frá Landssambandinu.

Út af tilmælum ráðh. um, að tilteknar brtt. verði teknar aftur, vil ég taka fram, að við flm. höfum í trausti þess, að þær efnisbreyt. fáist á frv. í Ed., sem hæstv. ráðh. greindi, komið okkur saman um að taka þær till. aftur. En einmitt vegna þess, að þetta frv. kemur aftur hingað til þessarar d., þar sem ákveðið mun vera að breyta því í Ed., þá getum við líka, til þess að tefja ekki fyrir málinu hér, tekið hinar aðrar till. aftur, og mundum þá leggja þær fram, þegar málið kemur hér aftur til d., í því formi, sem við teldum þá ástæðu til, ef málið hefði ekki fengið þær breyt. í Ed., sem við gætum fallizt á.