15.12.1950
Efri deild: 41. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1023 í B-deild Alþingistíðinda. (2154)
88. mál, aðstoð til útvegsmanna
Frsm. (Jóhann Jósefsson):
Herra forseti. Ég get að mörgu leyti verið sammála hv 4. landsk. að því er snertir formála hans fyrir till. og almennar umr. um málið. Ég tel, að þetta frv. leysi ekki nema að örlitlum hluta vandamál útvegsins, en til þess er stefnt með frv. að leysa þennan litla hluta, og þegar farin er þessi leið, skuldaskilaleiðin, verður að fara eftir vissum formúlum og reglum. Ég er sammála í því, að vandamál útvegsins, sem aldrei hafa verið nálægt því eins mikil og þau eru nú, séu mjög stutt komin á þessu þingi hvað lausn áhrærir. Við höfum oft staðið í þessum sporum á jólaföstunni, að vita ekki fótum okkar forráð um það, hvernig koma ætti útgerðinni af stað. Þá hefur oft verið farin sú leið að láta ríkið ábyrgjast fiskverðið, og þá urðu þessi vandamál nátengd afgreiðslu fjárl., samningar við útvegsmenn, ríkisstj. og bankana, og allt þetta tafði afgreiðslu fjárl., og það var vitað, að slíkt var öllum um geð, og ríkisstjórnin hlaut ámæli fyrir slóðaskap, en með öllu því illa var það þó gott við þetta, að þegar á leiðarenda kom nokkru eftir áramót, var nokkuð fyrir því séð, að útvegurinn stöðvaðist ekki, og til þess, að það gæti skeð, tók maður við ónotum og brigzlyrðum frá mönnum og flokkum og þoldi slíkt af því, að maður vissi, að það þýddi lítið að afgreiða fjárl., ef útvegurinn gengi ekki á eðlilegan hátt. Nú er annar háttur á hafður og afgreidd fjárl. og skuldaskil, en höfuðmálið er enn óleyst, og bólar ekkert á lausn á því. Og hafa því erfiðleikarnir aldrei áður verið slíkir. Ég er því sammála inngangi hv. 4. landsk. að till. þeim, sem hann flutti ásamt hv. 6. landsk., og tek undir með honum í því, að fyrir áramót þyrfti að vera búið að ganga frá rekstrarvandamálum útvegsins eða þá að ganga að lausn þeirra með fullum krafti strax upp úr áramótum; að því verða allir flokkar að starfa og leggja sinn hlut að, að þau verði leyst á sem happasælastan hátt. Brtt. þær, sem hv. 4. landsk. mælti fyrir, eru ekki ósanngjarnar, en hann kom þó ekki með brtt. við það, sem mér finnst ósanngjarnast og ég felli mig verst við, en það er hve gjaldgildi skuldabréfanna er skorið við nögl, og hefði ég viljað, að hæstv. atvmrh. hefði getað verið hér til að upplýsa það atriði, svipað og hann gerði í Nd., en hann er nú sem stendur veikur. Ég talaði við hann og gat fengið að vita, hvaða yfirlýsingar hann gaf í Nd., sem voru þess valdandi, að brtt. um þetta atriði voru teknar þar til baka, þar sem hæstv. ráðh. lét ótvírætt í ljós, að hann teldi nær víst, að bankinn mundi athuga þetta með fullri velvild og taka bréfin upp í skuldir viðskiptavina sinna, sem yrðu að taka þau upp í skuldir, sem bátaútvegurinn stæði í við þá. Þetta vildi ég fá fram, þó að þetta sé auðvitað ekki bindandi eins og l., að gjaldgengissvið þessara bréfa væri fært út. Það er slæmt fyrir kröfuhafa að skera niður kröfur sínar um, ég veit ekki hvað mikið, og taka síðan við skuldabréfum, sem hafa jafntakmarkað gildi og er eftir orðalagi frv. Og ég tel það mjög mikilsvert, að þetta skyldi koma fram í Nd. Ég veit, að höfuðmótbáran gegn þessu er sú teoretíska hagfræðiástæða, að með því að hafa gjaldgengissviðið mjög rúmt sé verið að auka inflationina með slíkri bréfaútgáfu. Ég get því eftir ástæðum sætt mig við, að málið gangi svo fram, eftir að hafa fengið þessa yfirlýsingu frá hæstv. atvmrh. Brtt. hv. 4. og 6. landsk. eru ekki óréttlátar eða ósanngjarnar, en það virðist sem málið sé komið í svo fastar skorður, að litlar líkur séu til að fá fram fleiri brtt. en eru á þskj. 380. Og þó að óskir þær, sem eru að baki þessara brtt., séu fjarri því að vera ósanngjarnar, þá eru þær ekkert afgerðaratriði í málinu. Ég get því ekki mælt með, að deildin samþ. þær, þó að mér þyki það leitt, því að ég veit, að þær verða felldar í Nd., svo að ekkert er unnið við að samþ. þær hér nema að þveita málinu milli deilda. Ég sé svo ekki ástæðu til að hafa fleiri orð um málið. Þessi frv. um skuldaskil eru mikil deiluatriði og vafaatriði, svo að þess er ekki að vænta, að hver sé ánægður með hvern paragraf í þeim, og ég segi fyrir mig, að þó að ég greiði frv. þessu atkv., þá er það ekki vegna þess, að ég sjái í því neinn sérstakan lausnarstein fyrir útveginn, en ég viðurkenni, að það reyni að leysa hlut af vandamálum hans.