18.12.1950
Neðri deild: 43. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1025 í B-deild Alþingistíðinda. (2160)

88. mál, aðstoð til útvegsmanna

Finnur Jónsson:

Herra forseti. Þetta mál hefur tekið nokkrum breyt. í hv. Ed. í samræmi við þær yfirlýsingar, sem hæstv. atvmrh. hefur gefið hér í þessari hv. d.

Sú breyt. hefur verið gerð á frv., að stj. Skuldaskilasjóðs er heimilað að veita útgerðarmönnum greiðslufrest á ógreiddum afborgunum lána, þótt þeir fái ekki aðra aðstoð samkv. l. þessum. — Enn fremur hefur verið samþ. tili. um það, að dráttarvextir af vangoldnum afborgunum af lánum skuli falla niður við gildistöku þessara l., en skuli frá þeim tíma reiknast 1/2% fyrir hvern mánuð. — Í þriðja lagi hefur verið gerð sú breyt., að gert er ráð fyrir því, að Landssamband ísl. útvegsmanna tilnefni einn mann í stj. Skuldaskilasjóðs, þannig að hún verði skipuð 5 mönnum.

Þrátt fyrir þetta verða nokkrir annmarkar á frv., og má þar helzt nefna, að skuldabréf sjóðsins hafa ákaflega þröngt gildi til greiðslu, eins og bent hefur verið á, og eru líkur til, að sum fyrirtæki, sem standa nærri útgerðinni, sérstaklega á smástöðum úti á landi, verði fyrir miklum búsifjum af l. og vafasamt nema þau geti valdið útgerðinni stórhnekki. Ég mun þó ekki flytja brtt. um þetta atriði, treystandi yfirlýsingum hæstv. atvmrh. um það, að hann muni hafa áhrif á, að sala bréfanna verði nokkuð víðtækari en gert er ráð fyrir í frv.

Í sambandi við brtt., sem ég flutti ásamt hv. 2. landsk. þm. við umr. í þessari hv. d., en tók aftur, mun ég leggja fram skrifl. brtt. um, að lánstíminn varðandi skipakaup lengist um 3 ár, svo sem upphaflega var ákveðið í frv., þegar það var sent Landssambandi ísl. útvegsmanna til umsagnar. Ég legg mikla áherzlu á, að þessi till. verði samþ., því að ég hygg, að því verði ekki mótmælt, að það sé ákaflega varasamt og vafasamt að gera ráð fyrir því, að útgerðarmenn geti greitt afborganir af lánum sínum á mun styttri tíma en upphaflega var gert ráð fyrir. Ég get ekki skilið, hvað fyrir þeim vakir, sem hafa gert breyt. á þessu, frá því sem upphaflega var lagt til af hæstv. atvmrh. að gengi fram í þessu máli, því að það er ljóst þeim, sem eitthvað eru þessum málum kunnugir, að óvarlegt er að gera ráð fyrir slíkrí hækkun.

Ég mun þess vegna leyfa mér að leggja hér fram skrifl. brtt. við 3. gr., um að í stað orðanna: „samanlagðar upphæðir gjaldfallinna afborgana deilist með jöfnum árlegum upphæðum á þau ár, sem eftir eru af lánstímanum“ komi: lánstíminn lengist um 3 ár.

Það var talað um það hér í þessari hv. deild, en hefur ekki verið tekið upp í hv. Ed., að rétt mundi vera að veita stj. skuldaskilasjóðs heimild til að veita undanþágu um auglýsingu, ef hún teldi, að umsækjandi hefði gert fulla grein fyrir fjárhag sínum. Með þessu væri það lagt á vald skuldaskilasjóðsstj., en í henni er ráðgert að eigi sæti trúnaðarmenn frá banka og ríkisstj., og verður það því ekki talið óvarlegt, þótt þetta ákvæði sé ekki í lögunum.

Ég hef nokkuð minnzt á þessar till. áður í umr., og þarf ég því ekki að fjölyrða um þær, en vænti þess fastlega, að þær verði teknar til greina. Að vísu má segja, að þessi síðari till. hafi ekki neina fjárhagslega þýðingu fyrir framkvæmd málsins, en mér er kunnugt um, að það eru þó nokkrir menn, sem leggja áherzlu á að fá hana samþ. — Um fyrri till. vil ég aðeins segja það, að ég álít, ef hv. Alþ. lætur þetta mál fara frá sér eins og það kom frá hv. Ed., að það sé ákaflega mikil hætta á því, að það gagn, sem annars gæti orðið af skuldaskilasjóðsl., verði miklu minna en ella væri og jafnvel stefnt að því að gera þau tilgangslaus með því að setja þessi ákvæði inn í l., sem nú eru í frv.