04.12.1950
Efri deild: 29. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1034 í B-deild Alþingistíðinda. (2176)
121. mál, almannatryggingar
Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):
Herra forseti. Ég tel rétt, að ég láti fylgja þessu frv. örfá orð, þótt ég fari ekki á þessu stigi að ræða það neitt í einstökum atriðum. Er eðlilegra, að það bíði 2. umr., þegar sú n., sem boðaði frv. og hefur flutt það, hefur fjallað um það og gert við það sínar aths.
Frv. þetta er seint fram komið, og er það að nokkru leyti sök ráðun., að hafa ekki komið því fyrr fram, en nú um sinn hefur það beðið, af því að hv. 4. þm. Reykv. (HG), sem er aðalforstjóri almannatrygginganna, hefur ekki verið hér á landi, en mér fannst eðlilegra, og varð það að samkomulagi við hann, að frv. kæmi fram í þeirri d., sem hann á sæti í, og sömuleiðis að hann væri viðstaddur, þegar það yrði tekið hér til meðferðar.
Frv. þetta er í fyrstu samið af tryggingaráði samkv. ósk þáv. félmrh. Frv. lá fyrir Alþ. í fyrra, og núv. ríkisstj., þegar hún tók við völdum seint á því þ., tók þá ákvörðun að leggja til við Alþ., að frv. færi ekki fram að því sinni, af þeirri ástæðu, að í frv. voru allmiklar till. um auknar tryggingar og þá um leið till. um aukin framlög frá ríki, bæjarfélögum og einstaklingum til þess að vega upp á móti þeim að nokkru leyti.
Ég lýsti því yfir á þ., að frv. þetta yrði tekið til meðferðar og athugunar, áður en Alþ. kæmi næst saman, og mundi þá lagt fram á einn eða annan hátt. Nú hefur ríkisstj. haft málið til meðferðar, og hún hefur orðið ásátt um það að leggja til, að frv. yrði lagt fram í þeirri mynd, sem það hefur nú. Það er að ýmsu leyti mjög breytt frá því, sem það lá fyrir í fyrra. Í fyrsta lagi eru felld niður ákvæðin um auknar tryggingar og þá um leið ákvæði til hækkunar útgjalda fyrir Tryggingastofnunina.
Þetta er annað meginatriðið, sem hér er um að ræða, að það var af þessum ástæðum, að ríkisstj. þorði ekki að mæla með samþykkt frv., að hún óttaðist, að það mundi koma á daginn, að erfitt yrði, bæði fyrir ríkið og bæjarfélög og einstaklinga einnig, að standa undir auknum byrðum í sambandi við almannatryggingarnar, — þó að allir séu á einu máli um, að tryggingarnar út af fyrir sig, á þeim grundvelli, sem þær hér hafa verið, séu ágætur hlutur og að sjálfsagt sé að efla þær, eftir því sem unnt er. En þó er það þannig, að maður verður að sníða sér stakk eftir vexti. Og ástandið er þannig nú í fjárhagsmálunum, ekki aðeins ríkisins, heldur og ekki síður ýmissa bæjarfélaga, að það sýnist vera komið alveg að þeim takmörkum, sem hægt er að fara að til að veita fé til ýmissa nauðsynlegra hluta, og þá ekki síður almannatrygginganna heldur en annars. T.d. hefur mjög borið á því, hve miklir erfiðleikar eru á að innheimta gjöld frá sveitarfélögum til trygginganna, og er það að verða alvarlegt áhyggjuefni, hvernig með það verði farið. Það þarf ekki að lýsa því, að á yfirstandandi ári hafa komið fram mjög margháttaðir erfiðleikar í atvinnu- og fjárhagsmálum okkar, sem ekki var gert ráð fyrir í fyrra, þegar þingi sleit þá. Ég get bent á í því sambandi, hvernig síldarvertíðin brást fyrir Norðurlandi, svo að hún hefur aldrei brugðizt eins. Og ég get bent í þessu sambandi líka á togarastöðvunina í sumar, sem hafði gífurlega alvarlegar afleiðingar í för með sér fyrir atvinnulíf og fjárhagsástandið yfirleitt með þjóðinni. Í þriðja lagi má benda á, að ýmislegt hefur það komið fram varðandi sölu á ýmsum afurðum, sem hefur orðið erfiðara viðfangs fyrir okkur en gert var ráð fyrir í fyrra, þegar gengisbreyt. var gerð og þær ráðstafanir aðrar, sem áttu að verða til þess að létta fyrir atvinnu- og fjármálalífi þjóðarinnar. — Allt þetta hefur orðið til þess, að þegar farið var að athuga þetta mál, sem hér er til umr., í þingbyrjun, þá virtist sízt glæsilegra en á síðasta þingi að gera till. um auknar tryggingar, sem hefðu í för með sér aukin útgjöld fyrir ríki, bæjarfélög og einstaklinga. Og það er af þessum almennu ástæðum, sem ég hér hef nefnt, sem út úr þessu frv. hafa verið felld þau ákvæði, sem veita verulega auknar tryggingar, en þá um leið hafa aukin útgjöld í för með sér fyrir ríki og aðra aðila, sem að almannatryggingunum standa.
Ég skal taka fram, að mig persónulega tekur mjög sárt að vera á móti vissum hlutum, sem hér er lagt til, að felldir séu niður, og svo mun vera fyrir ríkisstj. allri. Og það er aðeins það, sem við teljum brýna nauðsyn, sem gerir það að verkum, að við getum ekki annað en lagt til, að svo verði gert. Og kem ég að því síðar, þegar ég minnist á það, sem ríkisstj. leggur til, að sé heildarframlag ríkissjóðs til trygginganna á þessu ári.
Greiðslur frá tryggingunum til þeirra, sem bætur fá frá þeim á einn eða annan hátt, eru nú miðaðar við það, að greidd er sama uppbót, eða 15%, eins og greitt er á laun starfsmanna ríkísins. Á fjárl. síðasta árs voru veittar til almannatrygginganna sjálfra úr ríkissjóði 47,3 millj. kr. Það er lagt til í því frv., sem hér liggur fyrir nú, í 24. gr., sem ákveður iðgjöldin til tryggingasjóðs, að framlag ríkissjóðs samkv. 146. gr. l. sé nálega það sama og í fyrra, eða 17,4 millj. kr., og að heildarupphæð framlaga sveitarfélaga sé sömuleiðis eins og verið hefur. Og þá gildir það eins — það liggur í augum uppi —, að hafi fjárlög í fyrra verið miðuð við að greiða ekki vísitöluálag, heldur miðuð við grunnvísitöluna hundrað eins og nú er reiknað með, eða þrjú hundruð, eins og var áður, þá vantar nú hér í þetta, sem lagt er til, að greidd sé vísitöluhækkun, sem hefur orðið og greidd hefur verið að undanförnu. Og ríkisstj. leggur til, að þetta sé gert, ekki af því, að ætlazt sé til, að klipið sé af þeim réttindum, sem þeir tryggðu eiga að fá, heldur af því, að ríkisstj. lítur svo á, að tryggingasjóðir almannatrygginganna séu svo miklir, að það megi leggja á þá næsta ár að greiða þetta, án þess að framlag til trygginganna á fjárl. sé hærra. — Ég veit, að forstjóri trygginganna, hv. 4. þm. Reykv., mælir á móti þessu, og hefur hann ekki verið myrkur í máli við mig um það, að hann telji þetta ekki fært. Ekki þó út af fyrir sig af því, að talin sé hætta á því, að tryggingasjóðirnir geti ekki staðið undir þessu þetta eina ár, heldur af því, að með þessu sé gengið á nauðsynlega tryggingasjóði, sem eigi að ver a fyrir almannatryggingunum, og það megi ekki gera. Ég get þess bæði fyrir mig persónulega og ríkisstj. í heild, að hún gerir þetta ekki með glöðu geði og hefði mjög gjarnan viljað geta lagt fram svo mikið fé úr ríkissjóði, að ekki þyrfti að ganga á þessa tryggingasjóði, sem safnazt hafa á undanförnum árum. Hitt er það, sem mun koma fram hér á Alþ., þegar fjárl. verða rædd við 2. umr., sem mun verða nú á næstunni, hve miklir erfiðleikar eru á afgreiðslu fjárl., þanni~ að viðhlítandi sé. Og það er eitt af því nauðsynlega, sem ekki má nú bregðast, að Alþ. afgr. greiðsluhallalaus fjárl. Það verður að takast. Þar sem þannig er ekki lagt fram úr ríkissjóði samkv. þessu frv. nú fullt framlag, sem almannatryggingarnar þurfa að hafa, til þess að geta greitt sömu bætur sem þær hafa gert áður, þá hefur heldur ekki þótt fært, að sveitarfélögin greiddu hærra. Þess vegna er ætlazt til þess, að tryggingasjóðir almannatrygginganna taki þann halla á sig. sem verður af því, að sveitarfélögin greiða ekki nema einfalt framlag á móti ríkissjóði eins og áður. Ég gat þess, að erfitt væri með innheimtu frá sveitarfélögunum, og er það næg skýring á því, að ekki er unnt að gera kröfu til þess, að þeim hlutföllum verði raskað milli ríkissjóðs og sveitarfélaganna í þessu efni, sem áður hefur verið. Hins vegar er hér lagt til í þessu frv., að einstaklingar verði látnir greiða 15% hækkun eða sem svarar 15 vísitölustigum í viðbót við það, sem áður hefur verið. Ég veit, að þetta getur verið mikið deiluatriði. En bæði er það, að mér virðist það ekki sjálfsagt, þó að þessi hlutföll hafi verið fundin einu sinni milli sveitarfélaga, ríkissjóðs og einstaklinga, að það megi ekki rifta því hlutfalli og hreyfa þetta til að einhverju leyti, og það er einnig skoðun mín, að það sé rétt að láta einstaklingana bera þessa hækkun, sem hér er um að ræða. sem svarar til þeirra auknu fríðinda, sem þeir hafa fengið með 15% uppbótinni á launin. En tryggingasjóðirnir verða í raun og veru að skoðast sem sameign ríkisins og sveitarfélaganna, sem búið sé að leggja til hliðar áður af samanspöruðu fé, sem hægt sé að grípa til í erfiðleikum eins og þeim, sem nú eru í þessum málum. En ég tek fram sem mína skoðun í þessu máli. að þó ég leggi til sem félmrh. nú, að þetta sé gert að þessu sinni, þá er fjarri mér að vilja, að gengið sé svo nærri sjóðum trygginganna, að þeim sé veruleg hætta búin. Og þetta verður ekki hægt að gera nema einu sinni. Það verður að taka til annarra úrræða á næsta ári til þess að fá það fram, sem viðhlítandi er hvað þetta snertir. Það má að vísu búast við, að sá halli, sem tryggingarnar bíða, ef frv. er afgr. í því formi, sem það er nú, nemi allmörgum millj. kr., kannske sex til sjö millj. kr. eða eitthvað nálægt því, og er það vitanlega veruleg upphæð. En þess ber að gæta, að sjóðir trygginganna eru á okkar mælikvarða, jafnvel í okkar útþynntu krónum, orðnir tiltölulega mjög miklir. Og má segja, að þar séu tvær samverkandi orsakir til, það, að ríkissjóður hefur lagt tiltölulega mikið til þeirra og að það hefur verið góður búmaður, sem með þetta hefur farið, sem er forstjóri trygginganna. Og hann og þeir, sem með honum ráða. hafa safnað verulegum birgðum í sínar kornhlöður. Og það er vel, að svo hefur verið gert. En ég álít það ekki vafamál, að Alþ. geti notað það fé, sem sparað er þarna saman, þegar harðast er hjá ríkissjóði, eins og hér er gert ráð fyrir. — Þetta vil ég taka fram almennt um þessi mál.
Ég tók fram áðan, að ég mundi ekki á þessu stigi málsins ræða neitt hér einstakar gr. frv. Frv. þetta er í meginatriðum óbreytt frv., sem tryggingaráð afgr. í fyrstunni. Þ.e.a.s. í þessu frv. eru þær gr. þess, sem ráðuneytið og ríkisstj. hafa fallizt á, að nú ættu fram að ganga. Eru þar ýmis atriði, sem komið hefur fram við starfrækslu almannatrygginganna, sem þykir betur fara, og er nokkuð breytt til með tilliti til þess. Og ástæða hefur þótt í smávægilegum atriðum að fella nokkuð niður úr frv.
Ég veit, að hv. heilbr.- og félmn. muni taka þetta frv. nú til meðferðar fyrir 2. umr. málsins. Náttúrlega er ástæðulaust að vísa því beinlínis til n., þar sem hún hefur orðið við beiðni minni um að flytja það. Veit ég, að fram muni koma ýmsar brtt. við frv., a.m.k. frá einstökum mönnum í n. Og að sjálfsögðu er ég til viðtals við n. um hvaða atriði frv. sem er, eftir því sem hún kynni að óska eftir.