04.12.1950
Efri deild: 29. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1038 í B-deild Alþingistíðinda. (2177)

121. mál, almannatryggingar

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Mér þykir rétt að taka fram í sambandi við grg. þá, sem flutt er af nefndarm. hálfu, að ég hef alveg óbundnar hendur um frv., eins og hæstv. félmrh. tók fram. Ég þakka hæstv. félmrh. fyrir þá hugulsemi, sem hann hefur sýnt mér, með því að láta ekki taka málið til umr. hér í hv. d., meðan ég var í burtu, og kann ég það vel að meta, úr því að ekki var hægt að koma því lengra áleiðis áður en ég fór. En að sjálfsögðu verður hægt að afgr. málið fyrir áramót samt sem áður, og það er líka nauðsynlegt, vegna þess að ýmis ákvæði í þessum efnum falla úr gildi um áramót, sem þarf að endurnýja með frv. þessu.

Hæstv. ráðh. sagði, að ég og ýmsir fleiri væru óánægðir með þetta frv., bæði vegna þess, sem í það vantaði, og líka vegna ýmissa ákvæða, sem í því eru, og er þetta ekki ofmælt. Ég skal lýsa yfir, hvað vantar í þetta frv., frá því er það var samþ. næstum samhljóða þessu á síðasta þingi. Í fyrsta lagi má segja, að felldir hafi verið úr því frv., sem þá var hér til meðferðar, allir þeir viðaukar og viðbætur, sem gert var ráð fyrir, að gerð væru á tryggingal., eins og þau eru nú, sem nokkuð kostuðu, eins ég hæstv. ráðh, tók fram. Í fyrsta lagi að taka upp sérstaka bótaflokka, svo sem mæðralaun til einstæðra kvenna, sem hafa fyrir börnum fleirum en einu að sjá. Í öðru lagi sú heimild, sem gert var ráð fyrir í frv. til þess að greiða nokkra viðbót til manna, sem ekki eiga tilkall til eftirlauna af opinberu fé. Og enn fremur var gert ráð fyrir í fyrra frv., að heimildin samkv. 17. gr. væri nokkru víðtækari.

Þetta voru helztu fjárútlátin, sem voru í frv. eins og það var í fyrra, og þau hafa verið felld niður með öllu. Og mér þykir það miður, sérstaklega að því er snertir mæðralaunin, því að ég hygg ekki ofmælt, að það hafi verið nokkurn veginn einhugur hér í hv. d. um, að það ákvæði væri alveg óhjákvæmilegt, að bæta þá gloppu í l., sem þyrfti að fylla, til þess að ekki yrði of áberandi misræmi á milli manna, sem tryggingarnar veita fríðindi. Ekkert af þessu er tekið inn í frv., af því, að því er hæstv. ráðh. segir, að fjárhagurinn hjá ríkinu sé slíkur, að hann megi ekki við því að bæta þessum gjöldum á. Í sambandi við það þykir mér rétt að vekja athygli á því, að samkv. grg., sem fylgdi frv. í fyrra og enginn hefur borið brigður á, þá var gert ráð fyrir, að að óbreyttum ástæðum um tekjur Tryggingastofnunarinnar þyrfti ekki að auka neitt við tekjur hennar, til þess að hún gæti tekið á sig þessi útgjöld, sem ég nefndi. Það þótti líklegt, að að óbreyttum tekjustofnum trygginganna þyrfti ekki að sjá fyrir neinu nýju fé til trygginganna til þess að mæta þessum útgjöldum.

En það eru ekki aðeins atriðin, sem vantar í frv., sem veldur því, að ég er óánægður með það, heldur er ég líka óánægður með það vegna ákvæða, sem í því standa. Ég vík þá fyrst að 5. gr., sem ákveður, hvað lífeyririnn skuli vera og aðrar bætur, sem þar greinir. Samkv. þessari gr. er gert ráð fyrir, að lífeyrisgreiðslur verði nákvæmlega þær sömu að grunntölu eins og gert hefur verið ráð fyrir á þessu ári, þ.e.a.s. 4080,00 til einstaklinga á I. verðlagssvæði og tilsvarandi á II. verðlagssvæði. Nú er það öllum hv. þm. kunnugt, að sú hækkun, sem gerð var á eftirlaunum samkv. ákvörðun síðasta Alþ., hún nemur 15% á grunngreiðslunum. Og á lífeyri til einstaklinga er greidd sambærileg hækkun. Lífeyrir einstaklinga á l. verðlagssvæði var 3600 kr. á ári. Ef þeir, sem fá greiddan þennan lífeyri, ættu að njóta sömu hækkunar eins og eftirlaunamenn og þeir, sem eru á 18. gr. fjárl., þá ætti ekki að hækka þessa fölu, 3600 kr., í 4080 kr., heldur í 4140, eða um 15% af 3600 kr. Þetta hefur hæstv. ríkisstjórn ekki þótt fært, heldur hefur verið haldið sér við tilviljunartölu, eftir ákvæðum, sem sett voru með þál., og hæstv. ríkisstjórn hefur lagt til, að þessi hækkun verði 13,3%, eða að 1,7% vanti á þá hækkun, sem eftirlaunamenn hafa fengið. Hér munar 60 kr. á ári fyrir einstakling og munar 5 til 6 þús. kr. á ári fyrir Tryggingastofnunina, hvor talan er tekin. Mér finnst ekki nokkur sanngirni mæla með því, að lægri grunnhækkun sé greidd á þann lífeyri, sem er greiddur af almannatryggingunum, heldur en sá lífeyrir er, sem ellilaunasjóðir og lífeyrissjóðir aðrir greiða. Segja má, að þetta skipti ekki mjög miklu máli, og það játa ég. En það, sem er breyt. hér, er mjög til hins verri vegar og alger ósanngirni og að mér finnst gersamlega án nokkurs tilefnis.

Þá eru enn önnur ákvæði, sem hér eru inni í þessu frv., sem einnig eru til verulegra spjalla frá því, sem nú er. Samkv. 24. gr. frv. á að ákveða iðgjöldin og framlögin til ársloka 1954 eins og þar segir, þ.e.a.s. iðgjöld kvæntra karla á I. verðlagssvæði kr. 450, og þá eiga þau að hækka úr 390 kr. í 450 kr., eða rétt um 15%. Að mér skilst, á þetta að standa óbreytt, og hver sem dýrtíðin verður, eiga iðgjöldin eftir frv. að vera þetta, og önnur persónuiðgjöld samkv. 24. gr. hækka samkv. ákvæðum gr. um nál. 15% — ekki samkv. vísitölu á hverjum tíma, heldur á að taka þessa ákvörðun tölulega í eitt skipti fyrir öll. Hins vegar eiga iðgjöld atvinnurekenda að hækka úr kr. 4,65 í kr. 4,80 á viku á I. verðlagssvæði og úr kr. 3,50 í kr. 3,60 á viku á II. verðlagssvæði, eða um tæp 3%. — Heildarupphæð framlags sveitarfélaganna er óbreytt og framlag ríkissjóðs sömuleiðis. M.ö.o., hinir tryggðu, einstaklingarnir, sem greiða til trygginganna, eiga að taka á sig hækkun á iðgjöldunum, sem nemur sem næst 15% frá því, sem nú er, en aðrir aðilar, sem leggja fram fé til trygginganna, eiga ekki að greiða iðgjöldin með neinni hækkun eða svo að segja, þó atvinnurekendur eigi að greiða um 3% hækkun. — Nú er þess að gæta í þessu sambandi, að iðgjöld sjúkrasamlaga hafa á þessu yfirstandandi ári hækkað stórkostlega, hér í Reykjavík úr 15 í 20 kr. á mánuði, eða sem svarar 120 kr. fyrir hjón, þ.e.a.s. um tvöfalt á við það, sem gert er ráð fyrir hér, að tryggingagjaldið hækki. Og sé þessi hækkun öll talin saman, bæði á iðgjöldum til almannatrygginganna og sjúkrasamlags, þá er gert ráð fyrir, að iðgjöld hjóna hér í Reykjavík, að óbreyttum sjúkrasamlagsgjöldum, sem nú eru — sem varla er hægt að gera ráð fyrir að haldist óbreytt — hækki um 180 kr. og iðgjöld hækki nokkuð tilsvarandi fyrir aðra. Hins vegar eiga framlög sveitarfélaga og ríkisins að haldast óbreytt og einstaklinga svo að segja óbreytt. — Í 25. gr. frv. segir, að það skuli greiða vísitöluuppbót á bæturnar í samræmi við vísitölu framfærslukostnaðar, en þó aldrei hærri uppbót en sem nemur 15% hækkun. Nú er vitað, að vísitala framfærslukostnaðar er þegar komin yfir 20%, ég ætla, að hún sé 22%, eftir síðustu mánaðarvísitölu. Hér er því ekki um raunverulega hækkun bótanna að ræða, heldur beina lækkun, ef litið er til þess, hvert verðgildi peninganna er. 115 kr., sem greiddar verða eftir þessari gr., þær eru a.m.k. 7 til 8% rýrari til nota heldur en 100 kr. áður voru, og tilsvarandi lækkun hefur því orðið á greiðslunni, að meðtalinni vísitöluuppbótinni, fyrir það fólk, sem á að njóta greiðslnanna. M.ö.o., samtímis því, að hækkuð eru álögin á gjaldendurna, þá eru bæturnar skertar mjög tilfinnanlega frá því, sem nú er. Ég verð að segja, að mig undrar ekki mikið, þó hæstv. ríkisstj. byggist við því, að ég og fleiri yrðum óánægðir með þetta frv. Ég lét mér þó varla detta í hug, að svo langt yrði gengið sem raun sýnir, að það yrði ákveðið að hækka iðgjöldin á einstaklingunum, án þess að nokkur hækkun, sem teljandi sé, sé gerð á iðgjöldum annarra aðila, og samtímis yrði bannað að greiða fulla verðlagsuppbót á bæturnar.

Á þessu ári hefur verið greidd full verðlagsuppbót; en á næsta ári verður það svo, að bótaþegar trygginganna fá skarðan hlut, og þeim má ekki greiða hærri uppbót en 15%, enda þótt full uppbót sé greidd á laun samkv. vísitölu. — Nú mætti ætla, að hæstv. ríkisstjórn væri svo umhugað um fjárráð tryggingasjóðs, að hún fari af þeim sökum þessa leið. Það er rétt, að bersýnilega verður halli á starfsemi trygginganna á þessu og næsta ári. Tekjur stofnunarinnar eru svo til óbreyttar frá því 1947, en hins vegar hafa útgjöldin vaxið, sumpart vegna breytinga á lögunum og vegna uppbótargreiðslna, sem teknar voru í lög á s.l. ári. Að meðaltali nema þessar grunnuppbætur 71/2 % í 8 mánuði á þessu ári, og þær eru greiddar án þess að nokkrar tekjur hafi komið á móti. Ég geri þannig ráð fyrir, að halli á rekstri Tryggingastofnunarinnar nemi um 2–3 millj. króna á þessu ári. Út af fyrir sig er nú ekkert við þessu að segja; stofnunin hefur safnað sjóðum, og til þess er ætlazt, að henni sé þannig fært að mæta sveiflum, sem nýjar aðstæður kunna að skapa. En verði nú frv, þetta að lögum og ekki komi til önnur teljandi hækkun á tekjum stofnunarinnar á næsta ári en 15% hækkun á tryggingargjöldunum, þá ber að athuga, að iðgjöldin nema aðeins 1/3 af tekjum stofnunarinnar. Þannig mun því vanta á milli 6–7 millj. króna til þess að Tryggingastofnunin geti mætt hinum auknu byrðum, og samanlagður halli á þessum tveimur árum yrði aldrei undir 10 millj. króna. — Enda þótt nú séu í tryggingasjóði um 17 millj. króna, þá hefur aldrei verið gert ráð fyrir, að þessi sjóður yrði notaður til þess að ávísa þangað um greiðslur á lögboðnum útgjöldum, heldur á hann að geta mætt ófyrirsjáanlegum sveiflum, sem alltaf geta komið fyrir á verðlagi o.s.frv. A síðasta þingi var það t.d. ætlun fjmrh. að láta Tryggingastofnunina endurgreiða ríkissjóði 12 millj. króna úr sjóðnum. Alþingi lét þá álit sitt á þessu skýrt í ljós og skar svo úr, að Tryggingastofnunin skyldi halda sínum tekjuafgangi. Nú er fitjað upp á því sama, og á að gera fjárhagsafkomu stofnunarinnar svo þrönga, að hún éti upp að miklu leyti á 2 árum það, sem hún hefur safnað í sjóði. Í því sambandi má benda á, að með gengislækkuninni voru þessir sjóðir stórkostlega rýrðir að verðgildi miðað við núverandi vísitölu, eða nálega um 1/4 hluta. Ef þeir eiga svo líka að lækka að krónutölu, þá er sýnilegt, hvert stefnir. En verði frv. þetta óbreytt að lögum, þá er það í stuttu máli þessi stefna, sem þar með er upp tekin: Í fyrsta lagi verður felld niður aukning á tryggingum. Í öðru lagi verður dregið úr bótum. Í þriðja lagi verður veruleg hækkun á iðgjöldum einstaklinga án þess að tilsvarandi hækkun komi frá sveitarfélögum og ríkissjóði. Og þessu til viðbótar kemur svo það, að gengið skal svo á sjóði Tryggingastofnunarinnar, að þeir verða þess ómegnugir að mæta sveiflum, sem alltaf verða, þegar illa árar.

Hæstv. ráðh. tók það fram, og fyrir þau ummæli vil ég þakka honum, að honum væri ljóst, að ekki mætti ganga þannig á sjóðina nema einu sinni, og yrði að mæta hallanum öðruvísi í framtíðinni. Mér er nú óhætt að segja hæstv. ráðh. það, að það verður hvorki auðveldara fyrir hann né mig að leiðrétta misræmið í rekstri trygginganna á næsta ári heldur en nú. Tryggingastofnunin hefur í vörzlum sínum bréf frá ráðh., þar sem fyrir hana er lagt, að hún skuli í fyrsta lagi greiða fullar bætur eftir vísitölu á þessu ári, og í öðru lagi á næsta ári, en miða þá við 115 stig. Þetta er eðlilegt, þar sem ég hygg, að er gengislækkunin var samþ., þá hafi engum komið til hugar, úr því ákveðið var að greiða verðlagsuppbót á laun, að þá yrði hún ekki einnig greidd á bætur trygginganna. Til þessa var ætlazt og út frá því gengið, eins og bréf ráðh. sýnir. Samkv. tillögum, sem Tryggingastofnunin gerði til hæstv. ráðh. og fjvn., þá taldi hún, að gjöld ríkissjóðs, sveitarfélaga og einstaklinga til trygginganna þyrftu að hækka um 15% til þess að stofnunin gæti tekið það á sig að greiða verðlagsuppbót á bæturnar. Þessu verður ekki auðveldara að breyta á næsta þingi en nú er. Ef frv. væri breytt að tillögum tryggingaráðs, þá ættu þessi gjöld að hækka úr 17,3 í 191/2–20 millj. kr. Og þessi hæstv. ríkisstjórn hefur velt þyngra hlassi í fjármálum en því að finna tekjur til að mæta þessari 2–3 millj. kr. aukningu á framlaginu. Ég fullyrði það líka, að ef viljinn er aðeins fyrir hendi hjá hæstv. ríkisstj., þá finnur hún nægar leiðir til að jafna þessi met. Og verði það gert og ríkisstj. hækki sitt framlag um 15%, þá verður að telja eðlilegt, að gjald sveitarfélaganna og atvinnurekenda verði einnig hækkað um sama hundraðshluta. Hvað snertir hlutföll þau, sem gilda um framlög þessara aðila, þá hygg ég, að engar till. hafi komið fram um önnur sanngjarnari; en eins og kunnugt er, þá er þeim svo háttað, að ríkissjóður greiðir 1/3 af tekjum Tryggingastofnunarinnar, sveitarfélögin 1/6, hinir tryggðu 1/3 og atvinnurekendur 1/6. Með þeim breytingum, sem gert er ráð fyrir í þessu frv., yrðu gjöld hinna tryggðu ein hækkuð um 15%, atvinnurekenda aðeins um 3%, en ríkissjóði og sveitarfélögum sleppt með öllu við að taka þátt í að mæta hinum aukna kostnaði, en sjóðir stofnunarinnar í þess stað upp etnir.

Ég skal ekki að þessu sinni víkja mikið að breytingunum á sjúkrasamlagslöggjöfinni, en framlög til þeirra stofnana eru allt of lág, svo að telja verður óviðunandi. Samlögin hafa öll starfað með halla á yfirstandandi ári, fyrst og fremst vegna gengislækkunarinnar; en af þeim völdum hefur sjúkrakostnaður hækkað um 30% og lyf um 100% í mörgum tilfellum. En þetta skal ég geyma mér að ræða.

Hæstv. ráðh. lét orð falla um það, að samkomulag hefði orðið um það innan hæstv. ríkisstj. að leggja frv. í þessu formi fyrir Alþingi. Ég leyfði mér að skilja orð hans svo, að hæstv. ríkisstjórn yrði til viðræðna um breytingar á frv., og vil ég í lengstu lög vænta þess, að einhverju muni fást um þokað í því efni.