13.12.1950
Efri deild: 38. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1060 í B-deild Alþingistíðinda. (2186)
121. mál, almannatryggingar
Forsrh. (Steingrímur Steinþórsson):
Herra forseti. Þó það sé nokkuð liðið á nótt, langar mig til að segja örfá orð um þetta mál, en ég skal reyna að stilla máli mínu mjög í hóf, enda hafa umr. farið það rólega og skipulega fram, að það er ekki ástæða til að teygja lopann mjög.
Ég mælti nokkur orð við 1. umr. þessa frv. hér í hv. d. og skýrði frá því, hvers vegna ríkisstj. hefði að sínu áliti orðið að leggja frv. fram á þann hátt, sem hún gerði, og þá m.a. fyrst og fremst að fella úr því þær till. til aukningar, sem voru í því frv., sem lá hér fyrir Alþ. í fyrra. Ég mun ekki fara að endurtaka neitt af því, sem ég þá sagði varðandi þetta efni almennt, en ég vil leyfa mér að snúa mér að þeim brtt., sem hér liggja fyrir, og segja um þær örfá orð.
Brtt. á þskj. 352 eru frá heilbr.- og félmn., og stendur n. sameiginlega að þessum till. Frsm. n. mælti svo skilmerkilega fyrir þeim, að ég get stytt mál mitt nokkuð.
1. brtt., við 24. gr. frv., um sjúkrasamlög, fjallar um, að í stað þess, að í 5. lið segir, að hámark framlags ríkissjóðs og sveitarsjóðs skuli vera 60 kr. á ári, leggur n. til, að það verði 62 kr. á ári að viðbættri verðlagsuppbót samkv. vísitölu. Ég vil geta þess, að þegar frv. var lagt fram, var mér ljóst, að framlagið, sem hér var um að ræða, var skorið við nögl og það þyrfti að hækka það. Einnig vil ég geta þess, að ýmis atriði í sambandi við sjúkrasamlagsmálið þyrftu athugunar við, og gæti það orðið til sparnaðar.
Í 3. lið var tekið upp það nýmæli, að ríkisstj. geti ákveðið greiðslur sjúkrasamlaga fyrir viss lyf og skuli takmarkaðar frekar en nú er gert í l. Ég skildi ummæli frsm. n. þannig, að réttur sé til að nota þetta ákvæði. Það er ljóst, að ekki er hægt að framkvæma þessa grein öðruvísi en þetta ákvæði verði notað.
Mér þykir vænt um að heyra þessa yfirlýsingu nm. — Ég hef lofað að tala stutt, en enn eru fleiri atriði, sem þyrfti að taka til endurskoðunar við næstu skoðun laganna. Það er t.d. aðstaða lækna til sjúkrasamlaga. Því er ekki að leyna, að margir líta svo á, að þeir hafi hærri laun en eðlilegt er fyrir þjónustu sína, sem er raunar mjög mikilvæg. — Ég vil benda á þetta atriði, þetta er eitt af þeim atriðum, sem hljóta að koma til athugunar síðar. Ég mun því fallast á þessa till. n. eins og hún er sett fram, enda er komið samkomulag milli n. og ríkisstj. að hækka framlagið. Hitt er annað mál og er mér ljóst, að atriði hafa breytzt, en ég vænti þess, að allir aðilar sætti sig við þetta mál. Ekki get ég þó sætt mig við þá till. að hækka þessa upphæð upp í 69 kr.
2. brtt. n., við 24. gr., er veigamikill þáttur í frv. Alhnikið hefur verið að henni fundið, t.d. af 4. þm. Reykv., hvernig frá greininni væri gengið. Var ætlað að hækka iðgjaldagreiðslur um 15%, en iðgjöld atvinnurekenda ekki nema um 2–3%, en gert ráð fyrir, að ríkissjóður og sveitarfélög greiddu sama gjald. Gert var ráð fyrir, að greiðsluhalli, sem tryggingarnar yrðu fyrir, væri um 6 millj. Ég hef grun um, að hv. 4. þm. Reykv. eigi forðabúr og geti séð um, að þessi halli verði ekki svo mikill. Hann sagði, að með því að breyta hlutföllunum, sem lögð höfðu verið fram, væri ruglað þeim grundvelli, sem þarna ætti að vera. Þótt gerð hafi verið einhver hlutföll í upphafi, er það engin Biblía, sem ekki má breyta. — Ég get fallizt á það, sem hann sagði, að þetta þyrfti að athuga nánar og betur. — Í þessu frv. var lagt til að binda vísitöluna við 145, og var þetta gert á þeim forsendum, sem ég veit, að hv. þm. Barð. er kunnugt um, að ákvörðun er tekin, áður en vitað er, hvernig fari um launagreiðsluna. — Það er ekki rétt að leggja fram till. á Alþingi, sem ekki er hægt að samþykkja. Ég vil lýsa því yfir, að mér hefur aldrei dottið í hug að hafa aðra vísitölu við tryggingarnar en launagreiðslu almennt. — Ég get í raun og veru látið þetta nægja um þessa veigamestu brtt. n., og ég mun fallast á hana, ef greiðsla verður miðuð við 8,33%, sem var meðalvísitala s.l. árs.
Nú vil ég geta þess, að 3. brtt. n., sem er við 25. gr., er bein afleiðing af því, sem við höfum verið með. Í frv. er iðgjaldagreiðsla bundin við 15 %.
Við 30. gr. er smábrtt., sem ég hef ekkert um að segja. Að n. hefur hugsað þannig, að í stað þess að í 30. gr. segir: „Tekjuafgangi Tryggingastofnunarinnar, eins og hann nú er orðinn og síðar kann að verða, skal varið til þess að mæta halla, er verða kann á rekstri trygginganna einstök ár ...“, komi: „að mæta ófyrirsjáanlegum halla“. Ég hef ekkert á móti, að þetta orð sé sett þarna inn í. Það er aðeins orðalagsbreyting.
Að lokum leggur n. til, að aftan við 37. gr. frv. bætist svo hljóðandi bráðabirgðaákvæði: „Ríkisstjórninni er heimilt, að fengnum tillögum frá tryggingaráði, að ákveða jafna hundraðshlutahækkun á iðgjöld og framlög til tryggingaráðs, ef kaupgjald í landinu verður greitt með hærri verðlagsvísitölu en 115 á árinu 1951 og sýnilegt er, að Tryggingastofnunin þurfi á því fé að halda til þess að greiða bætur með fullu vísitöluálagi án þess að skerða tryggingasjóðinn óeðlilega. Jafnframt heimilast ríkisstjórninni að greiða úr ríkissjóði þann hluta, sem honum ber að greiða vegna áhættu“. — Ég vil taka það fram, að ég tel þetta bráðabirgðaákvæði óþarft. Ég álít það gefið að ganga frá frv. eins og n. leggur til, og verði rekstrarhalli trygginganna nokkru minni. Þó hann verði hærri, er ekki víst, að hann verði það mikill, að nokkur hætta verði fyrir almannatryggingarnar á næsta ári. Ég lýsti því yfir fyrr, að það væri fullur ásetningur minn að ganga ekki það nærri tryggingunum, að hætta væri fyrir stofnunina. Valdið í þessu máli er í höndum ríkisstjórnar, ef of nærri er gengið Tryggingastofnuninni. Ég vona, að það þurfi ekki að koma fyrir á næsta ári. Yrði þá Alþingi að koma saman á miðju ári, og þá yrði að ræða fleira en tryggingarnar.
Sumum till. hér er ég algerlega sammála og mun ekki vera á móti því, að þær verði samþ. — Nú liggja fyrir aðrar brtt., en ég fer fljótt yfir, til að þurfa ekki að þreyta ykkur, hv. þm., nú um miðja nótt.
Ég hef við fyrri umr. gefið yfirlýsingu varðandi almannatryggingar, sem hefðu aukin útgjöld fyrir ríkissjóð í för með sér. Þær till., sem liggja fyrir á þskj. 358 frá hv. 4. þm. Reykv. og hv. 7. landsk. þm., eru allar um hækkun á lífeyri og tryggingaiðgjöldum og um leið hækkun útgjalda. Ég vil vísa til þess, sem ég hef áður sagt, að það er ekki hægt að auka tryggingarnar, þótt margir álíti, að hér sé um að ræða beztu almennu stofnun ríkisins. Það er hrein óþolinmæði og ekki hægt að vænta þess, að mögulegt sé að byggja upp fullkomnar tryggingar á örfáum árum. — Í þessu sambandi vil ég vísa til jarðræktarlaganna, sem eru að mörgu leyti hliðstæð þessum. Þau eru um að rækta jörðina og skapa lífvænleg skilyrði á landi. Oft hefur gætt óþolinmæði manna og verið gert gys að, að l. hefur verið breytt hvað eftir annað, oft á hverju ári. — En hvað er eðlilegra, meðan ekki er séð, hvað er bezt? — Ég álit, að svipað sé um almannatryggingarnar. Tilgangurinn með þeim er að bæta kjör fólksins og rækta fólkið og gefa því mannsæmandi líf. Þetta þarf allt þróun. Við erum nú í öldudal, hvað snertir fjárhag þjóðarinnar. Ég álit tvísýnt að ætla nú á þessu stigi að gera þær öflugri. Það verður að gá í kringum sig og athuga aðstæðurnar, og er ekki aðeins átt við ríkisstjórn. Það vita allir, hve erfitt er að hafa greiðsluhallalaus fjárlög næsta ár. — Það er tvísýnt að hækka gjöldin, og í stað þess, að tryggingarnar eiga í eðli sínu að vera vinsælar, gætu þær orðið óvinsælar. — Ég vil sporna á móti öllum breytingum nú, eins og sakir standa, og er þakklátur form. heilbr.- og félmn. fyrir, að hann tók undir með mér um þetta atriði. — Vona ég, að úr rætist um fjármálin og við komumst brátt upp á öldutoppinn, og þá verði hægt að bæta tryggingarnar, þar sem á vantar. Vonandi þarf ekki lengi að bíða þess. — Vel er hægt að mæla fyrir þessum till., en spurningin er sú, er eðlilegt og er hægt að gera það nú? Ég álít ekki, enda þótt það afli mér óvinsælda að mæla svo. Ef Alþingi stæði í ábyrgð fyrir greiðslu og það færu að falla millj. á þennan hátt, hvað mundi það gera? — Nú er farið að skjóta upp þeim hugsunum, að hver beri ábyrgð á sínu, Alþingi geti ekki borið ábyrgðina. Þetta er vandamál, sem mér finnst ekki hægt að ganga fram hjá. Það er ekki hægt að auka útgjöld til trygginganna, a.m.k. ómögulegt fyrir þann, sem hefur félmrn. til meðferðar.
Ég ætla ekki að hafa orð mín fleiri og ætla ekki að ræða um einstakar brtt. á þskj. 358 og 383. Ég mæli gegn þeim með mínum rökstuðningi og frá mínu sjónarmiði, og ég held, að mér sé óhætt að segja sjónarmiði allrar ríkisstj.
Hér hafa komið fram brtt., og get ég sagt sama um þær, þó þær séu annars eðlis en brtt. á þsk7. 371. En hvað því líður að fella niður 7. og 10. gr., er ég mótfallinn hvoru tveggju. Hins vegar mun ég láta afskiptalaust, hvort síðari brtt. aftan við 11. gr. verður samþ. eða ekki. En í rauninni er hún ekkert annað en heimild að geta tekið þátt í kostnaðinum, ef sveitarfélögin hafa hjúkrunarkonu eða aðstoðarkonu. Ég vissi, að 8. þm. Reykv. flutti frumv. um húsmæðrahjálp, og fannst mér þetta eiga heima þar og taldi það eðlilegt, að aðstoð kæmi frá almannatryggingunum. Ég skal ekki hafa nein afskipti af því, hvort till. er samþ. inn í frv. eða ekki. — Ég læt þessu þá lokið, en tek fram, sem reyndar hefur komið fram hjá hv. frsm. n., að nauðsyn er að hraða þessu frv. og samþ. það áður en þingmenn fara í jólaleyfið. Mér hefur virzt á umræðunum, að það væri áhugamál allra að flýta fyrir því eins og hægt væri.