30.11.1950
Neðri deild: 31. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1106 í B-deild Alþingistíðinda. (2254)
61. mál, dragnótaveiði í landhelgi
Frsm. minni hl. (Sigurður Ágústsson):
Herra forseti. Það eru aðeins nokkur orð til þess að svara hv. 2. þm. N–M., því að hann misskildi ræðu mína nokkuð í sambandi við það, sem ég sagði, að það væri álit sjómanna, að dragnótabátar færu yfir 1/15 –1/10 hluta þess grunns, sem botnvörpungar veiða á. — Það er aðeins þetta, sem ég vil upplýsa, því að hann og hv. flutningsmenn segja, að það sé alger eyðilegging á fiskimiðunum, þar sem dragnótaveiðar eru stundaðar, og hv. þm. sagði það hér rétt áðan, að dragnótaveiðar væru búnar að eyðileggja viss svæði.
Svo er það annað í þessu sambandi, og það er sú skoðun, sem kom fram í ræðu hv. þm., að það væru mest aðkomubátar, sem væru að eyðileggja veiðina fyrir þeim stöðum, sem næst liggja svæðunum, en ég hygg hins vegar, að þetta sé öfugt, og það er rétt að geta þess einnig, að það eru minnstu bátarnir, 10–20 smál., sem geta aðallega stundað þessa veiði, og oft er hún einnig stunduð á opnum bátum.
Ég vil taka það fram, að það ákvæði í gildandi lögum er rétt, að þær stofnanir, sem vinna í þágu sjávarútvegsins og eru alveg hlutlausar, taki ákvörðun um, hver svæði séu friðuð og hver ekki.