12.01.1951
Efri deild: 48. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1116 í B-deild Alþingistíðinda. (2293)

82. mál, sala jarðeigna í opinberri eigu

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins segja örfá orð vegna þess, sem hv. 1. þm. Eyf. sagði, að það væri staðreynd, að lakar væri búið á jörðum, sem væru ríkiseign, heldur en á jörðum í eigu einstaklinga. Í ýmsum tilfellum er dálítið til í þessu, en það eru líka fleiri ástæður. Hitt er rétt, að það er eðlilegt, að menn séu til að leggja fé í byggingar á þeim jörðum, sem þeir hafa svo óbundnar hendur um að selja svo með hagnaði. Ég hygg, að meginástæðan til þess, að menn leggi frekar fé í byggingar á jörðum sínum, sé sú, að það eru líkur til þess að þær hækki, og telja þeir þetta meiri hagnaðarvon, ef þeir bregða búi. Reynslan er þessi á þeim verðfallstímum, sem við lifum á, þá hleypur verðið mikið fram. Hv. þm. gat þess, að í ábúðarlögunum væri sérákvæði um byggingar á opinberum jörðum. Þetta er rétt, en í sambandi við það held ég, að sé ástæða að athuga sérákvæðið, til þess að mæta ósk ábúanda í þessu efni. Það er engin ástæða til að nota ekki þau lán, sem veitt eru, hvort sem jörðin er í eigu ríkisins eða einstaklings. Ef þá yrði gengið lengra, yrði að bæta honum það með tilsvarandi virði á eigninni. Hann verður að fá þetta fullkomlega bætt. Ég bendi á þetta í sambandi við að koma upp þessum byggingum, en læt þetta vera nóg og hygg, að fyllsta ástæða sé til, að Alþingi hugsi ráð sitt vel, áður en það heldur inn á þessa braut, þó að sjálfsagt sé rétt, að þetta greiði að ýmsu leyti úr.