30.11.1950
Neðri deild: 31. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1125 í B-deild Alþingistíðinda. (2317)
77. mál, jeppabifreiðar o.fl.
Ingólfur Jónsson:
Herra forseti. Ég vil þakka landbn. fyrir, að hún hefur gengið inn á mínar till. Um þessa orðalagsbreytingu tekur ekki að deila. Hér er ekki aðeins átt við amerískar bifreiðar, heldur og hliðstæðar bifreiðar frá öðrum þjóðum, og er í rauninni ástæðulaust að deila um þetta atriði.
Í brtt. landbn. á þskj. 182 er lagt til, að síðasti liður 2. gr. falli niður, en landbn. flytur brtt., sem eru að efni til alveg þær sömu og þær, sem ég flutti á þskj. 198, og get ég alveg fallizt á till. n. að þessu leyti, og ég þakka n., að það sjónarmið skuli hafa orðið ofan á, því að eins og flutningum er nú háttað, þá getur verið alveg eins nauðsynlegt fyrir þá bændur, sem búa á þeim stöðum, þar sem flutningar og samgöngur eru greiðar, að fá dráttarvélar, en hins vegar á þeim stöðum, þar sem samgöngur eru ekki eins góðar, er heppilegra fyrir bændurna að fá jeppabifreiðar, því að þær geta komið að nokkru leyti í staðinn fyrir dráttarvélar, en eru á hinn bóginn hentugar til flutninga.
Ég sé svo ekki ástæðu til að ræða þetta mál frekar og þakka n. fyrir, að þetta sjónarmið skuli hafa verið látið ráða.