18.12.1950
Efri deild: 43. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1126 í B-deild Alþingistíðinda. (2326)
77. mál, jeppabifreiðar o.fl.
Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):
Herra forseti. Þetta frv., en það er komið frá Nd., er í raun og veru að mestu þess efnis, að það má teljast reglugerðaratriði. Þó eru e.t.v. einstök atriði, sem telja má rétt, að leitað sé til löggjafar um. En við tókum ekki sérstaka afstöðu til þess og leggjum til, að frv. verði samþ., þó með nokkrum breyt., sem við flytjum á þskj. 386.
Það voru aðallega tvö atriði, sem landbn. taldi ástæðu til að setja ákvæði um. Það, að allar dráttarvélar í landinu skyldu skrásettar með sams konar spjöldum og bifreiðar, til öryggis á vegum úti.
T.d. vita allir Reykvíkingar, að hér er verið að aka alls konar farartækjum til og frá höfninni, án þess að á þeim séu nokkrir einkennisstafir. Og einnig vita menn það vel, að akstur slíkra tækja á þjóðvegum úti getur valdið árekstri við bíla, og þá er ekki heldur hægt að sjá, hver sé valdur að slíkum slysum, nema vélareigandi gefi sig fram.
Það var því skoðun landbn., að það væri til aukins öryggis, að hver vél hefði sína einkennisstafi, svo að hægt væri að reka réttar síns eins gagnvart þeim og öðrum farartækjum. En aftur á móti var það skoðun n., að sýna bæri þeim meiri linkind en bílum, og því var skrásetningargjaldið ekki ákveðið hærra en sjötti hluti af skrásetningargjaldi bíla, eða 10 kr. Og ekki heldur, að koma þyrfti með þessar vélar árlega til skrásetningar, heldur skyldi þetta skrásetningargjald greitt í eitt skipti fyrir öll, og svo við hver eigendaskipti. Þetta var sem sé af öryggisástæðum.
Í öðru lagi er það, að sú nefnd, sem hefur haft úthlutun þessara véla á hendi, hefur komizt í vandræði að vita, hver sé réttur eigandi hverrar vélar. Því er það gert að skyldu, að viðkomandi búnaðarfélag safni og gefi upplýsingar um alla dráttarvélaeigendur á sínu félagssvæði og sendi þessar upplýsingar til úthlutunarnefndar.
Þetta er gert til þess að bæta nokkuð úr þeim glundroða, sem verið hefur í þessum efnum, en það munu nú vera nokkuð á annað hundrað dráttarvélar, sem vitað er um, að til eru í landinu, en enginn eigandi er skrásettur að.
Þetta hefur komið úthlutunarnefnd í nokkurn vanda, því að þá hefur verið hætta á, að tveimur vélum væri úthlutað til sama mannsins; því töldum við sjálfsagt að taka þetta atriði upp. Þetta gerir auðvitað dálítið aukið starf fyrir sýslumenn, en ekki fyrir aðra.
Ég er búinn að gleyma, hvað það eru margar vélar í landinu til, sem ekki hafa verið skráðir eigendur að, en hv. 1. þm. N-M. sagði mér það, og hann man það efalaust rétt og getur upplýst það hér.
Sem sagt, við töldum vegna öryggis og réttlátrar úthlutunar rétt að taka þetta upp, enda eru þessar till. að efni til shlj. till., sem samþ. voru í fyrra hér á þinginu.
Ég þarf ekki að vera langorður, en mér virðist, að ef brtt. hv. þm. Barð. verður samþ., þá falla jeppalögin alveg úr gildi, og þá hefur þetta frv. ekki við neitt að styðjast, og hafa þingmenn þá játað, að þetta sé rétt.