17.01.1951
Neðri deild: 51. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1129 í B-deild Alþingistíðinda. (2345)

77. mál, jeppabifreiðar o.fl.

Skúli Guðmundsson:

Herra forseti. Eins og hv. frsm. landbn. benti á, hefur hv. Ed. gert nokkra breyt. á þessu frv. — Ég var að yfirfara þetta frv. nú í morgun. Ég er nú flm. þess hér í þessari hv. d. upphaflega. Og eitt atriði er í frv., sem ég vil hafa aðstöðu til að athuga nánar en mér hefur gefizt tími til enn. Mælist ég því til þess við hæstv. forseta, að umr. verði frestað og mál þetta verði tekið af dagskrá þessa fundar. Það mun ekki taka langan tíma að gera þessa athugun á málinu. Og ég vil benda á, að þetta er síðasta umr. um málið, svo að ekki ætti að vera hætta á, að málið dagaði uppi, þó afgreiðslu þess yrði ekki lokið á þessum fundi.