18.01.1951
Neðri deild: 52. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1132 í B-deild Alþingistíðinda. (2355)
77. mál, jeppabifreiðar o.fl.
Frsm. (Ásgeir Bjarnason):
Herra forseti. Ég vil benda á, að þegar þetta frv. fór frá Nd. til Ed., var til þess ætlazt, að gerð yrði skýrsla um eigendur þessara tækja, en samkv. till. hv. 2. þm. Rang., að fella niður a-lið 2. gr., þá er ekki lengur í þessu frv. gert ráð fyrir því, að neinn aðili safni eða gefi skýrslu um, hverjir eiga þessi heimilistæki. Slíkt álít ég vera óviðunandi með öllu í löggjöf. Ég vil ítreka það, að eins og frv. kom frá Ed., þá vil ég mæla með því, en álít það óviðunandi, ef a-liður 2. gr. verður felldur burt og enginn á að safna skýrslum um þetta. Þá gæti svo farið, að fjöldi manna ætti fleiri en eina dráttarvél eða jeppa, án þess að nefndin hefði hugmynd um það.