18.01.1951
Neðri deild: 52. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1133 í B-deild Alþingistíðinda. (2356)
77. mál, jeppabifreiðar o.fl.
Bjarni Ásgeirsson:
Herra forseti. Úthlutunarnefndin gerði tilraun í sumar til að safna svona skýrslum. Hún skrifaði öllum formönnum hreppabúnaðarfélaganna og bað um skrá yfir alla eigendur dráttarvéla og jeppa. Þessum beiðnum var flestum svarað, en það kom í ljós, að þegar borið var saman við innflutningsskýrslur síðustu ára, þá vantaði 30–40 dráttarvélar, sem enginn vissi um. Skýrslurnar voru ekki öruggar. T.d. átti að úthluta manni einum dráttarvél. Þá stóð á skýrslunni frá búnaðarfélaginu, að hann væri eigandi dráttarvélar. Kunnugir menn öfluðu sér upplýsinga um þetta. Þá kom í ljós, að þetta var ekki rétt. Hann hafði fengið lánaða dráttarvél hjá öðrum manni, en átti hana ekki sjálfur. Þannig fékkst leiðrétting í þessu tilfelli, en á þessu er ekki hægt að byggja, skýrslusöfnunin er ekki örugg, það verður að hafa þetta eitthvað öðruvísi.