27.10.1950
Neðri deild: 11. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1137 í B-deild Alþingistíðinda. (2393)
46. mál, orkuver og orkuveita
Flm. (Sigurður Bjarnason):
Herra forseti. Á síðast liðnum vetri þann 9. marz gerði hreppsnefnd Hólshrepps í Norður-Ísafjarðarsýslu ályktun um raforkumál byggðarlagsins. Var meginefni hennar það, að skorað var á þingmann kjördæmisins að flytja á Alþ. frv. til l. um, að rafmagnsveitur ríkisins reisi orkuver og leggi aðalorkuveitu að Bolungavík. Jafnframt býðst hreppsnefndin til þess að láta af hendi endurgjaldslaust þau mannvirki, sem reist hafa verið til undirbúnings vatnsaflsvirkjun fyrir Bolungavík.
Það er í samræmi við þessa áskorun heima í héraði, sem það frv. er flutt, sem hér liggur fyrir. Ég vil leyfa mér, áður en ég kem að meginefni þess, að rekja lítillega sögu raforkumála þess byggðarlags, sem hér á hlut að máli.
Það var árið 1917, þ.e.a.s. fyrir 33 árum, sem byrjaðar voru reglulegar vatnsmælingar í Fossá í Hólshreppi, með tilliti til þess, að þar yrði reist raforkuver fyrir byggðarlagið. Þessum vatnsmælingum hefur verið haldið óslitið áfram síðan. Og hin síðari ár hafa þær verið gerðar miklu tíðar en í upphafi, eða vikulega. — Árið 1929 var undirbúningi að vatnsaflsvirkjun fyrir Bolungavík og umlykjandi sveit komið svo langt, að byrjað var á virkjun á þessum stað. Þar var byggð steinsteypustífla og gengið frá öllum útbúnaði, sem henni tilheyrði. En þegar svo var komið, þá brugðust byggðarlaginu lánsfjármöguleikar, sem reiknað hafði verið með, þegar framkvæmdir voru hafnar við stíflugerðina. Þessar framkvæmdir, sem nú var hætt við, höfðu þá kostað Hólshrepp um 30 þús. kr., sem hreppurinn einn hafði lagt fram og hefur staðið undir. Var það töluvert mikið fé á þeim tíma.
Þegar málið hafði þannig strandað vegna lánsfjárskorts, lá það niðri um allmörg ár, enda þótt Bolvíkingar hefðu ekki látið af því áformi sínu að byggja fyrir sig vatnsaflsstöð, sem framleiddi rafmagn allt að eitt þús. hestöflum. En virkjunarskilyrði eru talin fyrir hendi til þess að reisa slíkt orkuver í Fossá. Hins vegar var vatnsmælingunum og öðrum undirbúningi haldið áfram undir það, að þarna yrði virkjað. En þá gerist það, að Vestfirðingar fara að hyggja sér til hreyfings um sameiginlega virkjun fyrir vestfirzk byggðarlög. Það hafði fyrir allmörgum árum verið rætt og undirbúið töluvert, að ein álitlegustu vatnsföllin vestra yrðu virkjuð fyrir sýslurnar þarna: vesturhluta Barðastrandarsýslu, Vestur-Ísafjarðarsýslu, Norður-ísafjarðarsýslu sunnan Ísafjarðardjúps og Ísafjarðarkaupstað. Var rætt um, að Dynjandisfossarnir í Arnarfirði yrðu virkjaðir fyrir þessi byggðarlög. Svo kemst töluverður skriður á þetta mál, þegar tekið er að birta í efnahagsmálum landsmanna á síðari stríðsárunum. Þá eru samtök hafin með hreppsfélögum á Vestfjörðum um að hrinda þessu mikla mannvirki í framkvæmd. Var nú um alllangt skeið unnið af færustu mönnum að undirbúningi virkjunar Dynjandisfossa. Byggðu menn miklar vonir á, að niðurstöður þess undirbúnings yrðu jákvæðar, þannig að byggðarlögin þarna vestra gætu fengið raforku frá orkuveri við Dynjandisfossa. Á meðan þessi undirbúningur stóð, var ekki talið skynsamlegt, að einstök byggðarlög á þessu svæði, sem ég til tók, ynnu að því að undirbúa sérvirkjanir sérstaklega hvert hjá sér. Enda liggur í augum uppi, að sjálfsagt var að reyna að sameina alla krafta þarna um eitt stórt sameiginlegt orkuver fyrir þessa landshluta. En því miður varð niðurstaðan sú — ég hygg um mitt ár 1946 — að framkvæmd virkjunar við Dynjandisfossa strandaði á því, að sýnt þótti, að áliti sérfróðra manna, raforkumálaskrifstofunnar og þeirra sérfróðu manna annarra, sem kvaddir höfðu verið þarna til álitsgerðar, að virkjunin þarna í Arnarfirði yrði of dýr og lítt framkvæmanleg af þeim sökum. — Þetta voru öllum þeim byggðarlögum, sem að þessum málum höfðu unnið, mikil vonbrigði, því að flest þessara byggðarlaga, sem þarna hefðu komið til greina að fá rafmagn frá virkjun í Arnarfirði, skorti raforku mjög tilfinnanlega, og sum þeirra höfðu jafnvel alls ekki raforkunot nema að mjög takmörkuðu leyti. En þegar þannig var komið, var ekki annars úrkosta en að hin einstöku byggðarlög sneru sér að því að undirbúa sérvirkjanir heima fyrir og leysa þannig sín eigin mál án víðtækra samtaka, eins og þó áður hafði verið rætt um. Bolvíkingar urðu því, eins og ýmis önnur hreppsfélög, að taka þann kost, sem enn var eftir. Og í ársbyrjun 1947 var enn að nýju horfið að undirbúningi virkjunar í Fossá, og var kosin nefnd til þess að vinna að framgangi þess máls. Vann sú nefnd ötullega að því að láta gera nýjar áætlanir um virkjunarkostnað, miðað við að byggð yrði 700 til 1000 hestafla raforkustöð. Um þann undirbúning þarf ég ekki að fjölyrða. Áætlunin var sem sagt gerð 1947, um virkjun Fossár í annaðhvort 700 eða 1000 hestafla raforkuver. Og kostnaðurinn við 700 hestafla virkjun þarna var þá áætlaður ein millj. og 500 þús. kr., en kostnaður af 1000 hestafla virkjun 1745 þús. kr. Enn fremur var gerð áætlun um rekstrarkostnað þessarar raforkuveitu, og var hún samin af raforkumálaskrifstofunni. Tæknilegum undirbúningi þessa máls var því lokið, og hafði hann í raun og veru staðið yfir síðan 1917. Ég hygg þess vegna, að óvíða hér á landi hafi jafnlengi og af jafnmikilli kostgæfni verið undirbúnar raforkuframkvæmdir eins og á þessum stað. Vatnsmælingar eru þar svo öruggar, að sérfræðingar telja, að á betra verði naumast kosið. Annar tæknilegur undirbúningur hefur verið framkvæmdur að ráði færustu manna og af sérfræðingum.
Þegar hinum tæknilega undirbúningi var þetta langt komið, var snúið sér að því að skapa nauðsynleg skilyrði fyrir því, að heildarundirbúningi einnig fyrir því að skapa fjárhagslegan grundvöll fyrir þessar framkvæmdir yrði lokið. Niðurstaðan er svo sú, að eftir töluverð viðskipti — ef svo má segja — raforkumálaskrifstofunnar annars vegar og viðkomandi ráðuneyta hins vegar, þá var þessi undirbúningur, sem ég nú hef greint, viðurkenndur, með því að ríkisvaldið hét þessari fyrirhuguðu vatnsaflsvirkjun Hólshrepps þeim stuðningi, sem gert er ráð fyrir í raforkulögunum, þ.e.a.s. fullri ríkisábyrgð fyrir allt að 85% stofnkostnaðar og öðrum stuðningi, sem raforkulögin gera ráð fyrir. Er bréf um þetta birt sem fskj. með grg. þessa frv., og sé ég ekki ástæðu til þess að rekja efni þess.
En þrátt fyrir það, þó að heildarundirbúningi málsins væri þannig lokið og hann byggður á hinum traustasta grundvelli, eins og ég hef drepið á, þá var nú svo komið, að töluverð breyt. hafði á orðið í efnahagslífi landsmanna, og bæði hagur þjóðarinnar almennt og lánsstofnana stóð nú nokkru valtari fótum en þegar undirbúningur málsins var hafinn. Niðurstaðan var sú, að ekki reyndist unnt að fá lán, þó loforð um ríkisábyrgð lægi fyrir og þó viðurkennt væri af öllum aðilum, sem til var leitað, að ekkert brysti á tæknilegan undirbúning framkvæmdarinnar. — Þegar svo var komið, eygðu þeir menn, sem þetta mál höfðu með höndum fyrir byggðarlagið, nýjan möguleika, nefnilega þann að fá fé frá Marshallstofnuninni og gjaldeyri hjá Marshallstofnuninni til þess að byggja þetta nauðsynlega mannvirki fyrir. Var lögð í það mikil vinna og fyrirhöfn að útvega þetta fé til framkvæmdarinnar. Ég þarf ekki að rekja það, að niðurstaða þeirrar viðleitni var neikvæð. Það tókst ekki að fá Marshallfé til þess að virkja umrætt vatnsfall fyrir Bolungavík. Sú stefna var valin af hæstv. núverandi ríkisstjórn og a.n.l. af hæstv. fyrrv. ríkisstjórn, þ.e.a.s. þeirri ríkisstjórn, sem sat hér á árinu 1947 og til ársloka eða síðari hluta ársins 1949, að þessu fé skyldi varið til viðbótarvirkjana fyrir tvo stærstu kaupstaði landsins. Ég þarf ekki að endurtaka ummæli mín frá síðasta þingi um þessa stefnu. Ég benti þá á, hve hún væri varhugaverð og varaði hæstv. ríkisstj. við því að fylgja henni. Ég benti á, að ef svo færi fram, að þeir staðir, sem bezta hefðu aðstöðuna og mest þægindin, væru alltaf látnir sitja fyrir um sköpun enn meiri þæginda, þá hlyti svo að fara, að þessir staðir soguðu fólkið frá öðrum landshlutum, sem hefðu minni þægindi og lakari atvinnumöguleika fyrir fólkið, sem enn býr þar. Þessi rök voru af hálfu þess ráðh., sem ég ræddi málið við, í raun og veru viðurkennd, og að ríkisstj. bæri vel að athuga sinn gang, en niðurstaðan var sú, að gengið var fram hjá þessum stöðum, sem um áratugi hafa barizt fyrir raforkuframkvæmdum hjá sér. Ég skil vel nauðsyn Akureyrar og Reykjavíkur á aukinni raforku. Ég veit, að þar vantar rafmagn, en við vitum einnig, að þessir staðir hafa þó fengið glæsilegar rafveitur, og ástandið er hvergi betra nú, þegar á að fara að byrja á þessum miklu viðbótarframkvæmdum. Hér er því verið að framkvæma ranglæti gagnvart öðrum stöðum á landinu og haldið fram stefnu. sem leiðir til hins mesta háska fyrir þjóðina. Við getum staðið upp og barmað okkur yfir því, að fólkið flýi utan af landi og offjölgun sé í Reykjavík, en við getum haldið áfram að stuðla að þessu, ef þessari stefnu, sem ég nú hef lýst, verður fylgt áfram. Þótt gengið sé til móts við óskir þeirra byggðarlaga, sem bezt hafa undirbúið rafveitur hjá sér, þá þarf það heldur alls ekki að þýða það, að þurft hefði að hætta við raforkuframkvæmdirnar fyrir Akureyri og Reykjavík, enda geri ég sízt kröfu til þess, en ef vilji og skilningur er fyrir hendi hjá stjórnvöldum þessara mála, þá er hægt að leysa vandkvæði fleiri staða en gert hefur verið.
Sé ég svo ekki ástæðu til að fjölyrða um þetta atriði, en get ekki látið hjá líða, þegar útséð er um, að Marshallfé fáist til annarra rafveitna en fyrir Akureyri og Reykjavík, að láta hæstv. ríkisstj. vita, að það eru til þm., sem ekki eru ánægðir með þessa þróun, og fólk úti á landi, sem fylgist vel með þessu. — Þegar útilokað reyndist að fá Marshallfé í þetta raforkuver, þá voru Bolvíkingar neyddir til að fara bráðabirgðaleið, og var þá horfið að því ráði að reisa bráðabirgðadieselstöð, og hefur þetta nú verið undirbúið í vetur og sett upp 220 kw. varadieselstöð, sem síðar á að renna inn í fyrirhugaða virkjun frá Fossá, því að Bolvíkingar hafa ekki hætt við baráttu sína fyrir virkjun Fossár, og fól hreppsnefnd Hólshrepps mér að flytja á Alþingi frv. þess efnis, að rafmagnsveitum ríkisins væri falið að virkja Fossá til þess að reisa 700–1000 hestafla orkuver, og um það fjallar þetta frv. Í frv. er lagt til, að ríkisstj. sé heimilað að taka lán vegna þessara framkvæmda eða ábyrgjast lán, sem rafmagnsveitur ríkisins taki, að upphæð allt að 1,3 millj. kr. Af þessari upphæð megi taka sem lán úr raforkusjóði allt að 1 millj. kr., þó ekki meira en sem nemi 1/3 hluta af stofnkostnaði mannvirkjanna. Í grg. frv. er áætlaður kostnaður samkv. áætlun raforkumálaskrifstofunnar. Er erlendur kostnaður áætlaður 1 millj. og 160 þús. kr., en innlendur kostnaður 1 millj. 920 þús. kr., eða samtals rúmar 3 millj. kr. Ég þarf ekki að endurtaka það, að allur tæknilegur undirbúningur er á hinum traustasta grundvelli, og fyrir liggja mjög ýtarlegar og ábyggilegar kostnaðaráætlanir.
Ég vil að lokum aðeins segja það, að frumskilyrði þess, að Bolungavík, sem er þorp með rúmlega 700 íbúa, fái að blómgast og vaxa, er það, að þorpið fái aukna raforku. Atvinnuástand hefur verið þar gott að undanförnu, og fólkið hefur trú á framtíð staðarins. Þar eru til mörg og mikil atvinnutæki og allgóð höfn og akvegasamband er að skapast við aðra staði. Allt veldur þetta því, að þorpið hefur verið í uppgangi. En sá vöxtur hefur að nokkru leyti byggzt á því, að fólkið hefur alveg ákveðið vænzt þess að fá raforku. Ég teldi því illa farið. ef ekki væri gert allt, sem hægt er, af hálfu hins opinbera til að ýta undir það, að þetta byggðarlag fái betri aðstöðu og fái að stunda áfram framleiðslustörf sín af þrótti og áræði, en í Bolungavík er einhver harðsnúnasta sjómannastétt hér á landi. Sjór er þar sóttur af óvenjulegu harðfengi, og bjargræðisviðleitni manna er yfirleitt einlæg og ákveðin. Ég vænti því, að Alþingi taki þessu frv. vel, og eftir 30 ára baráttu fyrir raforkuumbótum, þá væri það illa farið, ef ekki væri litið á þarfir þessa byggðarlags. Ég veit, að margir erfiðleikar steðja að, en við megum ekki alltaf horfa niður fyrir fætur okkar og halda, að kyrrstaðan ein blasi við okkur. Við verðum að trúa á batnandi tíma og úrbætur í baráttumálum fólksins. Ég geri mér því vonir um, að frv. verði vel tekið. og legg til, að því verði vísað til 2. umr. og hv. iðnn. að lokinni þessari umr.