12.01.1951
Neðri deild: 48. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1145 í B-deild Alþingistíðinda. (2410)
46. mál, orkuver og orkuveita
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):
Ég vil ekki væna hv. þm. um neinar óeðlilegar skoðanir í þessu máli. Hann talaði um þessa tiltölulega litlu virkjun, sem kostaði 2 millj. kr. Ég vil benda á, að þetta er misskilningur. Þessi virkjun er ekki tiltölulega dýr, heldur tiltölulega ódýr, og miðað við þá virkjun, sem ákveða á með frv., eins og það er nú, er þessi virkjun tiltölulega ódýr.
Ég hef ekki séð þau plögg, sem síðast komu frá raforkumálastjóra, en ég hef talað við hann. Hann hefur lýst yfir við mig, að hann telji ekki hægt að svo stöddu að koma upp stórvirkjun fyrir Austurland og það væri sennilega ekki nema um tvennt að gera að svo komnu, gera ekki neitt eða ráðast í þessa virkjun, sem hér er gerð till. um.
Ég var að skyggnast í grg. um raforku Bolungavíkur, en gat hvergi séð nein ummæli um það verk, sem frv. fjallar um, og hefur þó hv. frsm. ekki kvartað yfir, að ekki lægju fyrir niðurstöður raforkumálastjóra. Afstaða hans hefur verið, að stærri virkjanir kæmu ekki til mála, og hefur hann látið þau ummæli falla við mig, að hann teldi skynsamlegast að gera þetta.