02.02.1951
Efri deild: 61. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1173 í B-deild Alþingistíðinda. (2454)
173. mál, gengisskráning o.fl.
Brynjólfur Bjarnason:
Hæstv. ráðherrum hefur ekki borið saman um eitt atriði í þessu máli. Hæstv. dómsmrh. hélt því fram í ræðu sinni, að ákvæði laganna, sem samþ. voru fyrir jólin um þetta efni, væru óskýr, og því væri Alþingi skylt að gera þau skýrari. Hæstv. landbrh. hóf aftur á móti mál sitt með því, að þau væru fullkomlega skýr og ekki ástæða til að deila um nein ákvæði í þeim. Síðar kom í ljós, að það, sem ráðherrann átti við, var það, að sama vitleysan væri í gengisbreytingarlögunum sjálfum og lögunum, sem samþ. voru fyrir jólin. Ég skal sízt neita því, að það megi finna vitleysu í gengisbreytingarlögunum. Reynslan hefur einmitt sýnt það, að þau eru ein vitleysa frá upphafi til enda. En hvað viðvíkur skoðun ráðherrans á því ákvæði þeirra, að kaup skuli ekki breytast samkvæmt vísitölu frá 1. ágúst, þá er það skýrt tekið fram í greinargerðinni, hvað átt er við með því. Þar stendur, að 1. ágúst 1951 verði komið á fullt jafnvægi í verðlagsmálunum og því þarflaust að hafa ákvæði um, hvernig kaup skuli greiða eftir þann tíma. Þá verði verðlag tekið að lækka og traustum grundvelli komið undir atvinnulíf þjóðarinnar. Vitleysan er sem sé ekki fólgin í orðavali, heldur í forsendunum fyrir gengisbreytingarlögunum, og annað hefur ekki gerzt en reynslan hefur sannað, að þessar forsendur voru rangar. Það er ekkert annað, sem hefur gerzt. En þetta vissum við nú allir fyrir jól, er umrædd lög voru samþ., og er það því engin afsökun fyrir afglöpum ríkisstj.
Formælendur þessa frv., sem hér er verið að ræða, hafa haldið því fram, að við stjórnarandstæðingar höfum lagt þann skilning í frv., sem var samþ. fyrir jólin um þetta efni, að tilgangur þess væri sá að fyrirbyggja kauphækkun í hlutfalli við vísitöluna eftirleiðis. Þetta er alveg rétt. Stjórnarandstaðan sakaði ríkisstj. um, að þetta væri tilgangur hennar með frv. En allar ræður hæstv. viðskmrh. virtust ganga út á það eitt að mótmæla þessum skilningi stjórnarandstöðunnar. Nú hefur það hins vegar komið í ljós, að skilningur stjórnarandstöðunnar á frv. hefur verið réttur og ræður hæstv. viðskmrh. fleipur eitt. Kjarninn í þessu atriði er sá, að ríkisstj. vill ekki viðurkenna, að hún er að gera tilraun til að lögfesta kaupið. Ég fullyrði, að verkalýðurinn á fullan rétt á að fá kaup sitt greitt samkvæmt þeim samningum, sem hann hefur áður gert, og að bændur eiga þann rétt óskertan, sem verið er að taka af þeim með 2. gr. þessa frv. Frv. er eingöngu fram borið til að svipta þessa aðila réttindum sínum.
Ræða hæstv. dómsmrh. hér áðan var annars athyglisverð að mörgu leyti. Hann hélt því fram, að með þessum lögum væri verkalýðsfélögunum tryggt fullt frelsi. Nú benti ég á það áðan, að með þessum lögum eru löglegir samningar verkalýðsfélaganna að engu gerðir. Þegar þau eiga nú á hættu, að ríkisvaldið geri samninga þeirra að engu jafnharðan og þeir eru gerðir, þá er mér spurn: Hvers virði er slíkt frelsi fyrir verkalýðsfélögin? En aðalinntak ræðu hæstv. dómsmrh. var þetta: Verkalýðurinn getur fengið kauphækkun með því að gera verkföll, en hann má bara ómögulega fá hana fyrirhafnarlaust. Með verkföllum getur hann fengið kauphækkun, en það skal kosta hann baráttu, því að það má ómögulega semja við hann friðsamlega. Það er ekkert við því að segja samkvæmt þessari kenningu, þótt atvinnulífið liggi dautt eða lamað um lengri tíma, eða þótt tapist 100 millj. kr. í erlendum gjaldeyri, eins og í togaradeilunni í sumar. Bara að verkalýðurinn fái ekki samkv. samningum sitt kaup eins og honum ber baráttulaust! Sem sagt, ráðherrann vill stríð og mér er spurn hvers vegna. Ef þjóðin í heild tapar svo tugum millj. kr. vegna verkfallanna, skyldu þá að þeim afstöðnum verða betri skilyrði til að unna verkalýðnum betri kjara, og skyldi slíkt tap borga sig betur, jafnvel þótt ekki næðist nein veruleg kauphækkun með verkfallinu en ef orðið yrði við sanngjörnum kröfum launþega í upphafi? Þessi afstaða hæstv. ráðh. er alltorskilin og ekki undarlegt, þótt spurt sé: Vill hann fá deilur til að geta velt ábyrgðinni á efnahagsmálunum yfir á aðra, eða telur hann sig vera búinn að búa svo í haginn, að nú sé tími til þess kominn fyrir hann og hans stétt að láta kné fylgja kviði gegn verkalýðnum í landinu og berjast við hann til úrslita? Hæstv. ráðh. mundi kannske svara, ef svo færi, að til verkfalla kæmi. að það væru verkalýðssamtökin, sem hæfu stríðið. En það er ekki rétt, — það var hafið af hæstv. ríkisstj. með gengislækkunarl., með þeirri árás, sem felst í frv., sem hér er til umr., og þeim ráðstöfunum, sem nú hafa verið gerðar á bak við þingíð. Mótaðgerðir verkalýðsfélaganna eru aðeins óhjákvæmileg varnarbarátta.
Hæstv. landbrh. lagði ríka áherzlu á það í ræðu sinni, að bændur mundu krefjast hækkaðs verðs á landbúnaðarafurðum, ef verkamönnum yrði greitt kaup samkvæmt samningum. Má ég spyrja: Hvað getur það gagnað bændum, ef sú kenning hans og félaga hans er rétt, að dýrtíðin hækki að sama skapi og éti upp verðhækkanirnar, hvort sem um er að ræða kauphækkanir eða verðhækkanir á landbúnaðarafurðum, — hvað gagnar þá bændur að krefjast hækkaðs verðs? Ef kenningin væri rétt, þá hlytu þvert á móti slíkar verðhækkanir á landbúnaðarafurðum að vera stórtjón fyrir bændur, vegna þess að þær hafa að jafnaði í för með sér rýrnandi sölu. Þetta er sem sagt ein sönnunin fyrir því, að þeir trúa ekki sínum eigin kenningum, þeir afsanna þær sjálfir í sömu ræðunni sem þeir flytja þær með mestum fjálgleik. Annars er það um þetta að segja, að þó að verð á landbúnaðarafurðum hækki sem svarar auknum framleiðslukostnaði vegna þeirra kauphækkana, sem leiðir af hækkaðri verðlagsvísitölu, sem verkalýðsfélögin fengju samkvæmt samningum, þá skiptir það ekki miklu máli fyrir verðlagsmyndun í landinu, vegna þess hvað kaupgjaldið er orðið sáralítið brot af framleiðslukostnaði landbúnaðarafurða.
Að lokum vil ég minna hv. þdm. á það, en enginn af ráðh. hefur svarað því, sem ég kom inn á í minni fyrstu ræðu, hvort þeir teldu fært, að l. verði látin verka aftur fyrir sig, þannig að ekki beri að greiða kaupgjald samkvæmt samningum eða samkvæmt því, sem dómstólarnir kynnu að skera úr, frá 1. febr. og þangað til l. öðlast gildi. En samkvæmt þessum l. er tekið fram, að frá 1. febr. skuli þau vera í gildi, — þau eru því látin verka aftur fyrir sig. Það hefur enginn svarað þessari spurningu, hvort menn telja fært að láta l. verka aftur fyrir sig. Af hverju hæstv. ríkisstj. hefur ekki svarað þessu, veit ég ekki, en ég tel víst, að það sé vegna þess, að henni hafi orðið ógreitt um svör.