03.02.1951
Neðri deild: 61. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1216 í B-deild Alþingistíðinda. (2479)
173. mál, gengisskráning o.fl.
Helgi Jónasson:
Herra forseti. Ég skal ekki lengja umr. mikið með langri ræðu, en ég get ekki látið hjá líða að lýsa afstöðu minni til þessa máls, því að ég er ekki alveg á sama máli og flokksbræður mínir um það. Þær umr., sem hér hafa farið fram um frv., hafa aðallega snúizt um 1. gr. þess, sem mér virðist vera árétting á lögum um þetta efni, sem samþ. voru fyrir jólin, og er ég sammála formælendum frv. að því leyti, að mér virðist það hafa verið tilgangur þeirra laga að binda kaupgjald við vísitöluna 123 og verkamenn yrðu að gera nýja kjarasamninga, ef þeir hygðust fá kaup sitt hækkað. Ég var þeirrar skoðunar þá og er það enn, að hin mikla togstreita á milli kaupgjalds og verðlags í landinu hafi ekki verið og verði engum til góðs, hvorki verkalýðnum sjálfum né atvinnurekendum, og ég var því fylgjandi í vetur, að kaupgjaldsvísitalan yrði fest í 115 stigum. Ég lít svo á, að þar sem atvinnuvegir okkar eru stöðugt að dragast saman og þjóðartekjurnar fara sífellt minnkandi, þá ættu allir að geta séð, að það er enginn grundvöllur fyrir kauphækkun. Mér dettur þó ekki í hug, að laun verkamanna séu yfirleitt of há í sjálfu sér, því að auðvitað væri æskilegt, að þau gætu verið hærri. En það er bara enginn grundvöllur fyrir hækkun þeirra hjá atvinnuvegunum. Ég hef því alltaf verið þeirrar skoðunar, að rétt væri að gæta hófs í þessu efni, en reyna frekar með einhverjum öðrum ráðum að gera lífskjör manna viðunandi. Því get ég ekki tekið undir þær umr., sem hafa farið hér fram um 1. gr. frv. En það er um 2. gr., sem ég vildi segja örfá orð.
Við vitum, að með gengisbreytingarlögunum frá í fyrra var komið á mikilli röskun á tekjum þjóðfélagsins og skiptingu þeirra á milli stétta. Tilgangur þeirra var einmitt sá að flytja fjármagn á milli stétta, og það voru þeir, sem landbúnaðinn stunda, og aðrir, sem vinna á landi, sem færðu fórnir til þeirra, sem stunda sjávarútveginn. Það var talið nauðsynlegt, að þessar fórnir yrðu færðar, og þær voru líka færðar, og sérstaklega af þeim, sem stunda landbúnaðinn, því að auk þeirra hækkana, sem urðu á þeim vörum, sem þeir þurfa til lífsframfæris, þá hækkaði líka allt það, sem þeir þurfa til síns atvinnurekstrar. Við vitum, að gífurleg hækkun hefur orðið á áburði, fóðurbæti, benzíni, vélum o.fl., en í gengisbreytingarlögunum var reynt að koma til móts við bændur í þessu efni, þ.e. með 9. gr. þeirra. Áður var það svo í lögum, að bændum var ekki heimilt að hækka verð á afurðum sínum nema einu sinni á ári, en með gengisbreytingarlögunum var þessu breytt, með því að 9. gr. þeirra gefur til kynna, að leyfilegt sé að hækka landbúnaðarafurðir oftar á árinu, ef verðlag hækkar. Um þetta hafa nú risið deilur, en ég held, að allir þeir, sem hafa borið landbúnaðinn fyrir brjósti, hafi talið 9. gr. skýlausa hvað þetta snertir. Og samkvæmt henni var framleiðsluráð landbúnaðarins búið að ákveða um áramótin nokkra hækkun á mjólk, sem átti að koma nú um mánaðamótin, og ég fullyrði, að það var full þörf á að fá þá hækkun. Hér á Alþingi deila menn um það, hvort verkamönnum beri að fá laun sín greidd samkvæmt vísitölu 123 eða 128, en má ég benda á það, að launavísitala bænda er nú aðeins 115 stig, og ég hygg það mundi þjóta hátt í sumum hér, ef þannig væri statt um verkamenn, og ef athugað er, að þegar laun bænda eru reiknuð út, þá er áætlað, að þeir vinni í 9 stundir á dag í 300 daga á ári, en ég fullyrði, að enginn bóndi vinnur minna en 9 stundir alla daga ársins að jafnaði. Þeir hafa engan sunnudag til hvíldar eða helgidag, og þeirra atvinnurekstur er þannig, að hann krefst vinnu alla daga. Það er fullvíst, að það er allt of lítið að reikna með 9 stunda vinnudegi í 300 daga á ári hjá bændum og þeim alls ekki í vil, og er að því er gáð, að launavísitala þeirra er aðeins 115 stig, þá er enginn vafi á því, að það mundi þjóta hátt í ýmsum hér, ef þannig væri ástatt fyrir verkamönnum. Af þessum ástæðum get ég ekki stutt frv., og ég harma það, að ekki skuli vera hægt að verða við kröfum bænda um þá hækkun á mjólk, sem ég tel að þeir eigi fullan rétt á. En um það þýðir ekki að fást, þótt stjórnin sjái sér þetta ekki kleift, en ég vildi aðeins láta þetta koma fram af hálfu fulltrúa bænda, að það er ekki ósanngjarnt, þótt komi fram krafa frá bændum um hækkun á verði afurða þeirra. Skal ég svo ekki þreyta fundarmenn með lengri ræðu um þetta efni.