03.02.1951
Efri deild: 63. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1224 í B-deild Alþingistíðinda. (2495)

173. mál, gengisskráning o.fl.

Haraldur Guðmundsson:

Herra forseti. Sú breyt., sem gerð var á þessu frv. í Nd., var ekki efnisleg, heldur aðeins orðalagsbreyting. Þetta sýnir glöggt, hve ríkisstj. hefur vandað undirbúning þess. Ég tel, að með þessu frv. geti verið efnt til stórvandræða, en á engan hátt til bóta fyrir þjóðfélagið. Ég greiði því að sjálfsögðu atkv. gegn því.