17.11.1950
Neðri deild: 23. fundur, 70. löggjafarþing.
Sjá dálk 1227 í B-deild Alþingistíðinda. (2512)
44. mál, sveitarstjórnarkosningar
Einar Olgeirsson:
Herra forseti. Út af því, sem hv. þm. A-Húnv. var að segja, þá vil ég viðurkenna, að það er vafalaust rétt, að þessi breyt., sem hér liggur fyrir frv. um, miðar í rétta átt.
Viðvíkjandi fyrra atriðinu, sem hv. þm. A-Húnv. talaði um, um hækkun tölu þeirra, sem þyrftu að krefjast hlutfallskosningar, til þess að gild yrði tekin krafan um það, upp í t.d. 1/5 hluta kjósenda, þá held ég, að það sé dálítið hæpin uppástunga. Það er eitt af því, sem reynt er að komast hjá í sambandi við alla kosningalöggjöfina, að knýja kjósendur til að lýsa opinberlega yfir sinni afstöðu. Öll hugsunin um stillendurna í sambandi við framboð og takmörkun á hámarkstölu þeirra og annað slíkt, — þetta miðar allt saman að því að varðveita hina raunverulegu leynd við þessar kosningar, og þess vegna er hæpið að heimta mjög háa tölu manna, sem þurfi að krefjast hlutfallskosninga, til þess að krafan sé gild tekin, því að menn vita, að í sveitahreppum mundi það í mörgum tilfellum jafngilda opinberri atkvgr., ef fara ættu fram mjög almennar undirskriftir í sambandi við þetta.
En viðvíkjandi hinu ákvæðinu, sem hv. þm. A-Húnv. kom inn á, um það, hvort það bæri að koma í veg fyrir, að útstrikanir verkuðu á val frambjóðenda á listunum eða hjálpuðu til þess, þá er sannleikurinn sá, að það er viss réttlátur þáttur í þessum ákvæðum um að láta listana vera þetta næma fyrir útstrikunum. Það er þessi þáttur, að með þeim flokkauppstillingum, sem eiga sér stað, þá er auðvitað valréttur einstaklinga á milli hinna einstöku frambjóðenda ákaflega mikið fyrir borð borinn. Og þessi fyrirmæli, sem í l. eru nú, sem gera útstrikanirnar svona áhrifaríkar, þau eru að vissu leyti þó möguleikar fyrir einstaka kjósendur til að geta haft þó nokkur áhrif á val manna innan þess lista; sem þeir kjósa, og miðar ofurlítið í áttina til þess að tryggja kjósandanum nokkurn rétt til þess að gera upp á milli hinna einstöku frambjóðenda, sem er hægt að strika út.
Það er ekki nema gott að vekja máls á þessu og ræða það. Og fyrst minnzt var á þetta, fannst mér rétt að láta þessa skoðun í ljós, svo að hv. n. hefði fleiri álit að athuga.